Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Þór 19-307 í Innri-Múla á Barðaströnd.
Þór 19-307 í Innri-Múla á Barðaströnd.
Á faglegum nótum 14. apríl 2023

Afkvæmarannsóknir hjá bændum 2022

Höfundur: Árni Brynjar Bragason, ráðunautur hjá RML.

Haustið 2022 voru gerðar upp 62 afkvæmarannsóknir hrúta úti á búum hjá bændum sem töldust styrkhæfar. Í heild voru afkvæmahóparnir 629 og þar af eiga veturgamlir hrútar 375 afkvæmahópa.

Umfangið er dálítið minna en haustið 2021 en þá voru búin 70 og afkvæmahóparnir 713. Samantekt yfir niðurstöður styrkhæfra afkvæmarannsókna sem framkvæmdar voru af bændum veturinn 2021 til 2022 er að finna á heimasíðu RML undir liðnum Forrit og skýrsluhald.

Að vanda eru niðurstöður birtar eftir sýslum og stutt umsögn fylgir um niðurstöður fyrir hvert bú. Hafa ber í huga að erfitt er að bera hrútana saman á milli afkvæmarannsókna.

Hins vegar er líklegt að hrútur sem sker sig mikið úr í samanburði innan bús muni einnig sýna yfirburði sína í öðrum hjörðum. Í afkvæmarannsóknum fyrir sæðingastöðvarnar er einmitt reynt að etja saman yfirburðahrútum frá fleiri en einu búi til að styrkja samanburðinn og auka öryggi á niðurstöðunum. Í þessari umfjöllun eru ekki teknir fyrir hrútar sem voru í afkvæmarannsóknum sæðingastöðvanna, þótt þær afkvæmarannsóknir hafi uppfyllt skilyrði um að vera styrkhæfar. Um þær afkvæmarannsóknir er fjallað sérstaklega í annarri skýrslu sem er aðgengileg á heimasíðu RML.

Reglur um styrkhæfar afkvæmarannsóknir 2022:

  • Að lágmarki 5 hrútar í samanburði og þar af a.m.k. 4 veturgamlir (fæddir 2020).
  • Hver hrútur eigi að lágmarki 8 afkvæmi af sama kyni ómmæld og stiguð og a.m.k. 15 afkvæmi með kjötmatsupplýsingar.
  • Hrútarnir skulu notaðir á sem jafnasta ærhópa þar sem aldur er blandaður. Ekki er tekinn gildur afkvæmadómur hrúta sem eingöngu eru notaðir á veturgamlar ær nema allir hrútarnir í samanburðinum séu notaðir á veturgamlar ær (gemlinga). 
  • Að gengið sé frá uppgjöri afkvæmarannsóknar í Fjárvís.is.
  • Styrkupphæð miðar við 6.000 krónur á hvern veturgamlan hrút.

Þór 19-307 í Innri-Múla á Barðaströnd sýnir líkt og haustið 2021 fáheyra yfirburði bæði í mati á lifandi lömbum og í kjötmatseinkunn. Hann hefur verið einn besti hrúturinn á sínu heimabúi undanfarin ár en samt með öfluga keppinauta.

Þór er sonur Spaks 16-302 sem stóð á toppnum á búinu í afkvæmarannsóknum 2017-2019 og sýndi jafnan mikla yfirburði. Spakur 16-302 faðir Þórs var aðkeyptur frá Broddanesi 1 en móðir Þórs er sonardóttir Sigurfara 09-860 frá Smáhömrum og dótturdóttir Gullmola 08-314 í Innri-Múla sem var sonur Gullmola 05-552 í Broddanesi 1. Þór er greinilega frábær lambafaðir eins og hann á kyn til. Manni 21-052 frá Hriflu í Þingeyjarsveit er í öðru sæti í heildareinkunn. Þessi veturgamli hrútur er sonur Barkar 17-842 frá Kjalvararstöðum en móðir hans dóttir Dreka 13-953 sem kom á sínum tíma inn á stöð frá Hriflu. Manni varð því miður ekki langlífur og skilaði aðeins þessum eina afkvæmahópi.

Athygli vekur að Börkur 17-842 faðir hans á sex syni í afkvæmarannsóknum árið 2022 og þrír þeirra rata inn á topplistann yfir þá hrúta sem ná bestum árangri í kjötmatseinkunn í þessum rannsóknum. Í þriðja sæti er 18-083 sem var í afkvæmarannsókn í Hlíð í Hörðudal en er til heimilis á Vatni í Haukadal. Þessi hrútur er fenginn frá Hesti sem lamb og er hann hálfbróðir Ramma 18-834 að föðurnum. Móðurfaðir 18-083 er sonur Tanga 13-954 frá Klifmýri. Þessi hrútur tók þátt í afkvæmarannsókn á Vatni haustið 2021, fékk prýðilegan vitnisburð og var þar í öðru sæti.

Þegar raðað er eftir kjötmatseinkunn kemur Þór 19-307 í Innri-Múla efstur en um hann hefur þegar verið fjallað. Næstur kemur Oddur 21-539 í Lækjarbug í Hraunhreppi en hann er aðkeyptur frá Oddsstöðum í Lundarreykjadal. Faðir hans Krókur 20-149 er sonur Ramma 18-834 frá Hesti. Að bak móður Odds í annan ættlið standa tveir Oddsstaðahrútar sem voru á sínum tíma fengnir inn á stöðvarnar, þeir Spakur 14-801 og Náli 15-806. Hálfbróðir Odds að föðurnum, Haki 21-151 mun væntanlega etja kappi við hrúta Hestbúsins í afkvæmarannsókn þar á komandi hausti. Svarti-Pétur 20-593 í Nýpugörðum í A-Skaftafellsýslu er sonur Glæpons 17-809 frá Hesti. Hann gaf best gerðu sláturlömbin í Nýpugörðum sl. tvö haust. Móðir hans er dóttir Mávs 15-990 frá Mávahlíð. Svarti-Pétur hefur nú lokið sínu hlutverki sem kynbótahrútur. Þór 20-398 á Gilsbakka í Hvítársíðu er sonur Mjölnis 16-828 frá Efri- Fitjum. Þór hefur staðið efstur í afkvæmarannsóknum á Gilsbakka sl. tvö haust. Móðir hans er dóttir Kára 10-904 frá Ásgarði. Sá fimmti í röðinni er Örn 20-761 á Klifshaga 2 í Öxarfirði, sonur Fálka 17-821 frá Bassastöðum. Örn er sívalhyrndur enda kominn af hyrndu fé í móðurætt. Móðurfaðir hans, Ares 15-777, var mikið notaður í Klifshaga 2 og reyndist vel.

Oddur 21-539 í Lækjarbug í Hraunhreppi.

Í töflu þrjú má sjá þá stöðvahrúta sem áttu flesta syni sem tóku þátt í afkvæmarannsóknum á síðasta ári. Þar kemur ekki á óvart að Viðar 17-844 frá Bergsstöðum á flesta syni. Enginn af 23 sonum hans nær hins vegar að vera efstur í heildareinkunn í afkvæmarannsókn. Glitnir 19-848 frá Efri-Fitjum á næstflesta syni, eða 18, en aðeins einn þeirra nær að standa efstur í heildareinkunn í afkvæmarannsókn. Rammi 18-834 frá Hesti á 15 syni og þrír þeirra ná að standa efstir í heildareinkunn og fleiri synir hans raða sér mjög ofarlega. Rammi hefur verið gríðarlega öflugur í að skila þykkum bakvöðva til afkomenda sinna og þykkt bakvöðvans vegur einmitt þungt í mati á lifandi lömbum undan hrútunum. Sá eiginleiki var hins vegar ekki sá sterkasti hjá Viðari 17-844 eða Glitni 19-848 þó kostir þeirra séu um margt óumdeildir. Mjölnir 16-828 frá Efri- Fitjum á 14 syni og þrír þeirra standa á toppnum í þessum samanburði á sínum heimabúum. Hjá kollóttu stöðvahrútunum á Fennir 19-857 frá Heydalsá 1 flesta syni, eða fimmtán, en enginn þeirra nær toppnum á sínu heimabúi. Viddi 16-820 frá Fremri- Gufudal á hins vegar átta syni og þrír þeirra ná að standa efstir á sínum heimabúum. Fálki 17-821 frá Bassastöðum á þarna níu syni og ná þrír þeirra að standa efstir í samanburði við félaga sína. Afkvæmarannsóknir hjá bændum hafa gegnt mikilvægu hlutverki í ræktunarstarfinu í sauðfjárrækt um árabil. Margoft hafa niðurstöður úr einstökum rannsóknum beint kastljósinu að efnilegum hrútum sem síðar hafa endað sem stöðvahrútar. Þátttaka í þessu starfi hefur verið nokkuð breytileg eftir landsvæðum
og fer sá munur síst minnkandi. Það virðist orðið tímabært að endurhugsa svolítið framkvæmd þessa mikilvæga þáttar þannig að hann skili enn betri árangri bæði fyrir einstök bú og ræktunarstarfið í heild. Á þessu ári verður framkvæmdin þó sú sama og verið hefur því afkvæmarannsóknir hefjast í upphafi fengitíma ár hvert og því þegar búið að koma af stað efniviði í afkvæmarannsóknir fyrir haustið 2023.

Tafla 1. Hrútar sem sýna mesta yfirburði innan bús í heildareinkunn.

Tafla 2. Hrútar sem sýna mesta yfirburði í kjötmatseinkunn í samanburði innan bús.

Tafla 3. Stöðvahrútar sem áttu flesta syni í afkvæmarannsóknum 2022.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...