Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Gabríel Kristinn Bjarnason, besti ungkokkur Norðurlanda, Aþena Þöll Gunnarsdóttir og Sveinn Steinsson lentu í öðru sæti í flokknum „Nordic Green Chef“ og Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði öðru sæti í keppninni um nafnbótina Matreiðslumaður Norðurlanda 2022.  
Gabríel Kristinn Bjarnason, besti ungkokkur Norðurlanda, Aþena Þöll Gunnarsdóttir og Sveinn Steinsson lentu í öðru sæti í flokknum „Nordic Green Chef“ og Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði öðru sæti í keppninni um nafnbótina Matreiðslumaður Norðurlanda 2022. 
Mynd / Brynja Kr. Thorlacius
Líf og starf 12. apríl 2022

Röðuðu sér í efstu sætin í öllum keppnisflokkum

Höfundur: smh

Íslenskir matreiðslumenn gerðu góða ferð til Herning í Danmörku á Norðurlandamót matreiðslumanna sem haldið var dagana 29. og 30. mars. Náðu þeir besta heildarárangri Íslendinga á þessu móti og röðuðu sér í efstu sætin í öllum flokkum. sem haldið var dagana 29. og 30. mars. Náðu þeir besta heildarárangri Íslendinga á þessu móti og röðuðu sér í efstu sætin í öllum flokkum.

Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði öðru sæti í keppninni um nafnbótina Matreiðslumaður Norðurlandanna árið 2022, en norski keppandinn varð sigurvegari. 

Gabríel Kristinn Bjarnason sigraði í keppninni um útnefninguna „besti ungkokkur Norðurlandanna“. Matreiðslumeistarinn Sveinn Steinsson og útskriftarneminn Aþena Þöll Gunnarsdóttir kepptu saman í liðakeppni í flokknum „Nordic Green Chef“ og lentu í öðru sæti. Um nýjan keppnisflokk er að ræða þar sem unnið er með grænmetisfæði. 

Besti ungkokkur Norðurlanda, Gabríel Kristinn Bjarnason.

 

Betri árangur en vonast var eftir 

Þátttaka Íslendinga á Norðurlandamótinu er á vegum Klúbbs íslenskra matreiðslumeistara. Í tilkynningu frá klúbbnum er haft eftir Þóri Erlingssyni, forseta hans, að hann sé himinlifandi með árangur keppendanna. „Þau hafa staðið sig frábærlega og unnið þetta af mikilli fag­mennsku. Nú fögnum við og svo förum við á fullt í næsta verkefni sem er heimsmeistara­keppnin í Lúxemborg í nóvember komandi.“

Aþena Þöll Gunnarsdóttir.

Sveinn og Aþena kepptu sem lið, eins og fyrr segir en þessi keppnisflokkur hefur verið í undirbúningi hjá samtökum matreiðslu­manna á Norður­lönd­unum um nokkurt skeið og er gert ráð fyrir að þessi keppni, eða sam­bærileg, eigi eftir að verða að alþjóðlegri keppni. „Þetta er betri árangur en ég hefði þorað að vona,“ var haft eftir Sveini þegar úrslitin lágu fyrir.

Sveinn Steinsson.

Að missa af síðustu lestinni
Líf og starf 30. desember 2025

Að missa af síðustu lestinni

6 pör spiluðu alslemmu í spili dagsins, 14 fóru í hálfslemmu en nokkur létu duga...

Fjölmargir krýndir í yngri flokkum
Líf og starf 30. desember 2025

Fjölmargir krýndir í yngri flokkum

Dagana 29. og 30. nóvember fóru fram tvö Íslandsmót. Annars vegar Íslandsmót ein...

Myndflöturinn logar
Líf og starf 28. desember 2025

Myndflöturinn logar

Bjart er yfir sýningu Eggerts Péturssonar í Hafnarborg. Sýningin heitir Roði en ...

Feðgin skrifa um réttir á Íslandi
Líf og starf 28. desember 2025

Feðgin skrifa um réttir á Íslandi

Feðginin Anna Fjóla og pabbi hennar, Gísli B. Björnsson, eru nú á fullum krafti ...

Húsfreyjan í Ytri-Hlíð lyfti grettistaki
Líf og starf 28. desember 2025

Húsfreyjan í Ytri-Hlíð lyfti grettistaki

Vopnfirðingurinn Oddný Aðalbjörg Methúsalemsdóttir vann á sinni tíð ötullega að ...

Ár öryggis og frelsis
Líf og starf 28. desember 2025

Ár öryggis og frelsis

Völva bændablaðsins hefur nú kastað beinunum enn á ný og lesið í stjörnurnar fyr...

Jól á fjöllum
Líf og starf 28. desember 2025

Jól á fjöllum

Íslendingar eiga sannkallaða jólasögu sem er Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson. Hú...

Hera og Gullbrá
Líf og starf 23. desember 2025

Hera og Gullbrá

Barnabókin hugljúfa, Hera og Gullbrá er eftir rithöfundinn Marínu Magnúsdóttur, ...