Brennið þið vitar
Sögu- og menningarstund var haldin um Elfars Guðna Þórðarsonar listmálara í Menningarverstöðinni Hólmaröst á Stokkseyri fyrir skömmu.
Tilefni var að 20 ár eru frá því að listaverkið Brennið þið vitar var afhjúpað.
Af þessu tilefni tók Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi, undir verkstjórn Björns Inga Bjarnasonar, saman veglegt rit um tilurð menningarverstöðvarinnar og listaverksins Brennið þið vitar.
Menningarverstöð verður til
Hraðfrystihús Stokkseyrar var endurbyggt og stækkað verulega eftir mikinn bruna þann 30. maí 1979. Reisugildi hins nýja endurbyggða húss var þann 12. október sama ár.
Árið 2006 var hafist handa við breytingar á húsnæðinu til þess að gera það aðgengilegt fyrir þessa nýju notkun og til varð Menningarverstöðin Hólmaröst.
Elfar Guðni Þórðarson var fyrsti listamaðurinn sem var með vinnustofu í Hólmaröst. Elfar kallaði vinnustofu sína Svartaklett og er heitið sótt í fjöruna rétt vestan við Stokkseyrarbryggju.
Hluti af innkomu Elfars Guðna í Menningarverstöðina árið 2001 var að mála 30 fermetra Íslandsmynd þar sem allir helstu vitar landsins voru settir á ströndina með tölvustýrðum ljósabúnaði. Síðan var lag Páls Ísólfssonar við ljóð Davíðs Stefánssonar Brennið þið vitar, í flutningi karlakórs, leikið undir meðan ljós á öllum vitum landsins komu inn á rúmum fjórum mínútum.