Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Volkswagen T-Roc, ódýr, fjórhjóladrifinn og kraftmikill
Mynd / HLJ
Fréttir 7. október 2019

Volkswagen T-Roc, ódýr, fjórhjóladrifinn og kraftmikill

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Þegar ég prófaði Volkswagen T-Roc frá Heklu kom upp spurning um hvort maður ætti að segja að bíllinn væri jepp­lingur eða fjórhjóladrifinn fólks­bíll. T-Rock er fáanlegur í nokkrum mismunandi útfærslum, ýmist með bensínvél eða dísilvél. 
 
Bíllinn sem ég prófaði var með 2,0 lítra dísilvél sem á að skila 150 hestöflum og kostar 4.890.000.
 
Útlitið eins, en fjórir mismunandi bílar
 
Verðið á Volkswagen T-Roc Style er ódýrast frá 3.790.000 sem er beinskiptur 115 hestafla bensínbíll, en dýrastur af Style bílunum er 190 hestafla bensínbíllinn og kostar 5.290.000 (svo eru í boði Style+ og R-line sem eru dýrari útgáfur af  Volkswagen T-Roc). Í Style bílnum er eins og í flestum nýjum bílum mikið lagt upp úr öryggi og er bíllinn m.a. með neyðarhemlunar­búnaði, vöktunarkerfi fyrir gangandi vegfarendur, akreinavari/lesari, ESC stöðugleikastýringu og ýmislegt fleira.  
 
Prufuaksturinn í styttra lagi
 
Til að kynnast bílum sem best hef ég reynt að keyra prufubíla helst ekki minna en 100 km, en sökum veðurs og anna var þessi prufuakstur rétt tæpir 70 km á mismunandi vegum.
 
Í innanbæjarakstri er bíllinn lipur og þægilegur í akstri og hentar vel við þröngar aðstæður, gott að leggja í stæði, en persónulega hefði ég viljað að hliðarspeglar mættu vera aðeins stærri til að fylgjast með umferð fyrir aftan bílinn. 
 
Á malbiki er gott að keyra bílinn en samt fannst mér veghljóð á malbikuðum vegi vera fullmikið. 
Á malarvegi er Volkswagen T-Roc bíll sem ég gef hærri einkunn en sambærilegum bílum fyrir lítið malarvegahljóð undir bílnum. Mjög dempað hljóð og greinilega vel hljóðeinangraður undirvagn. Einnig kom það mér á óvart hversu ákveðið má keyra bílinn í lausamöl án þess að skriðvörnin fari á. Maður var hreinlega hissa hvað mátti keyra bílinn hratt í gegnum beygju í lausamöl með fullt grip á hjólin án þess að skriðvörnin færi á.
 
 
Eyðsla, plúsar og  einn mínus
 
Allan prufuaksturinn var ég að skipta á milli vélarstillinga frá eco yfir í sport til að finna muninn á upptaki og akstri á mismunandi stillingum. Ég verð að viðurkenna að ég var ekki að taka neitt mikið á bílnum þ.e.a.s. lítið um botngjafir. 
 
Samkvæmt aksturstölvunni var ég að eyða  6,5 lítrum á hundraðið á þessum tæpu 70 km sem ég ók á meðalhraða upp á 44 km. Mestan tímann var vélin stillt á sport þannig að ég var ekki mikið að hugsa um sparakstur. Ég get ekki verið annað en ánægður með eyðsluna þar sem í sölubæklingi er uppgefin meðaleyðsla í blönduðum akstri 6,8 l/100 km.
 
Það er gott að sitja í fram­sætunum, pláss gott og þá sérstaklega fyrir þá sem sitja í aftur­sætunum. Farangurs­rýmið er í samræmi við bílinn, en ég saknaði þess að sjá varadekk í þar til gerðu hólfi. Sennilega kem ég aldrei til með að sætta mig við varadekkslausa bíla, en það er eini mínusinn sem ég gef þessum bíl.  
 
Lokaorðin, fjórhjóladrifinn bíll á góðu verði sem gott er að keyra. Ég einfaldlega get ekki ákveðið hvort ég kalla Volkswagen T-Roc fjórhjóladrifinn fólksbíl eða minnstu gerð af jepplingi.
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Þyngd: 1.990 kg
Hæð: 1.573 mm
Breidd: 1.819 mm
Lengd: 4.234 mm
 
 

 

7 myndir: