Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Hjalteyri.
Hjalteyri.
Mynd / HKr.
Fréttir 25. september 2018

Vegagerðin áformar að taka hluta Hjalteyrarvegar út af vegaskrá

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Þetta er leiðindamál, Vegagerðin er að okkar áliti að reyna að koma sér undan verkefni sem við teljum að eigi að vera hennar.  Þar á bæ hefur verið kvartað undan fjárskorti árum saman og ein leiðin virðist vera að koma verkefnum yfir á aðra, m.a. með því að fella niður stofnvegi,“ segir Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri í Hörgársveit.
 
Vegagerðin hefur sent sveitar­félaginu bréf þar sem kynnt eru áform um að fella nokkra vegi í Hörgársveit út af vegaskrá, m.a. hluta Hjalteyrarvegar. Í vegalögum segir m.a. að heimilt sé að láta stofnveg ná til hafnar sem mikilvæg er fyrir ferðaþjónustu og flutninga.  „Sveitarfélagið telur að þetta eigi hiklaust við Hjalteyri og því eigi Hjalteyrarvegur að teljast stofnvegur alveg að Hjalteyrarhöfn,“ segir Snorri.
 
Vaxandi athafnalíf allt árið
 
Alvarlegar athugasemdir eru af hálfu sveitarfélagsins gerð við fyrirhuguð áform Vegagerðarinnar, en því var gefinn kostur á að gera athugasemdir við þau.  Bent er á að á Hjalteyri og við Hjalteyrarhöfn sé rekin umfangsmikil ferðaþjónusta og hafnsækin starfsemi sem henni tengist.
 
„Ferðaþjónustu hefur vaxið fiskur um hrygg hér í sveitarfélaginu líkt og víða annars staðar, en m.a. er gerð út hvalaskoðun frá Hjalteyri. Mest er umleikis frá vori og fram eftir hausti, en athafnalíf á heilsársgrundvelli fer þó vaxandi á Hjalteyri, þar sem er einnig öflug menningarstarfsemi og starfsemi sem er mikilvæg fyrir atvinnulífið í sveitarfélaginu og snýst um heilsársuppbyggingu ferðaþjónustu í Eyjafirði,“ segir Snorri.
 
Spara sér viðhaldið
 
Hann segir að Vegagerðinni beri að halda Hjalteyrarvegi við, en greinilegt sé að með því að taka hann af vegaskrá spari hún sér fé og velti viðhaldi vegarins, snjómokstri og öðru yfir á sveitarfélagið. 
 
Kaldar kveðjur
 
„Hjalteyri sem áfangastaður hefur ekki í langan tíma verið vinsælli en um þessar mundir, en það má rekja til uppbyggingar dugmikilla aðila þar og í sveitarfélaginu. Okkur þykir þetta ansi kaldar kveðjur og í mótsögn við það að ríkið ætli sér að koma að eflingu ferðamannastaða á lands­byggðinni,“ segir Snorri. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...