Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Smjörböðuð nautasteik og ljúffeng jarðarber í skammdeginu
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 15. janúar 2016

Smjörböðuð nautasteik og ljúffeng jarðarber í skammdeginu

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Áður en lesendur demba sér í þorramatinn er upplagt að gæða sér á ljúffengri nautasteik. Smjörböðuð ribeyesteik er ómótstæðileg en galdurinn er að elda kjötið rétt. Afbrigði af béarnaise-sósu með kjötkrafti ættu allir að kynna sér. 
 
 
Tómatar, basil og mozzarellaostur ásamt ólífuolíu á brauði er klassík og kjörinn snittubiti. En það má líka nota ýmsa hvítmygluosta og taka sultuna á nýtt plan með því að nota fersk jarðarber með balsamic-ediki, til að fá jafnvægi á sýru og sætu. Það er hægt að meðhöndla jarðarber mikið eins og tómata með ediki, ólífuolíu, salti og pipar. Og smá ferskt hakkað basil er punkturinn yfir i-ið.
 
Í lokin er lítil uppskrift að jarðarberjabollaköku sem fljótlegt er að laga í örbylgjuofni.
 
Smjörböðuð nautasteik
  • Nautakjöt, ribeye, skorið í steikur
  • 300 g  smjör
  • 2 hvítlauksgeirar
  • salt og pipar
  • kryddjurtir t.d. 1 grein rósmarín
  • sveppir 
  • Kartöflur og grænmeti að eigin vali, t.d. spergilkál, laukur og kóríander
Hitið pönnu yfir miðlungs hita. Setjið kjötið, sem búið er að skera í steikur, á pönnuna. Eldið í um 5 mínútur þar til það hefur brætt ágætis magn af fitunni. Setjið á hina hliðna og eldið í um 5 mínútur. Snúið og eldið í um 3 mínútur til viðbótar. Þá er bætt smjörinu, rósmaríngrein og hvítlauk. Haldið við 60 °C (sem er miðlungs steikt með kjötmæli), stráið salti og baðið í smjöri í lágmark 6 mínútur. Gott er að velta kjötinu stöðugt í smjörinu. Takið upp úr og kryddið með meira salti og eldið í um 3 mínútur til að hita kjötið upp á pönnunni. Notið smjörið í bernaisesósu eða kryddsmjör og framreiðið með kjötinu.
 
Berið fram með útgáfu af bernaise-sósu, sauce foyot.
 
Sauce foyot
Í franska eldhúsinu fyrr á tíðum voru allar grunnsósur skráðar í uppskriftabækurnar. Ef einu nýju bragðefni var bætt í var nýtt nafn fundið á sósuna. Béarnaise-sósa með kjötgljáa (krafti) er kölluð foyot-sósa. Gott er að nota smjörið sem kjötið var baðað í.
  • 3 stk. eggjarauður
  • 300 ml brætt smjör
  • 1 msk. dijon sinnep
  • 2 msk. bearnaise kryddlögur
    (bearnaise essens)
Eftir smekk:
  • 2 tsk. estragon þurrkað 
  • 1/2 búnt fersk estragon (má sleppa)
  • eftir smekk salt og pipar  
  • eftir smekk kjötkraftur
Bræðið smjörið, þeytið eggjarauðurnar og bætið smjöri varlega út í eggjarauðurnar og þeytið vel á meðan. Kryddið með bernaise essens (kryddlegi), dijon sinnepi, sítrónusafa, estragon og salti og pipar eftir smekk.
 
Jarðarberja „bruschetta“ með balsamic-ediki og basillaufi
  • 1 box fersk jarðarber, skorin í sneiðar
  • 1 msk. balsamic-edik
  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 msk. hakkað ferskt basil
  • ögn af salti
  • nýmalaður svartur pipar, eftir smekk
  • smá af muldum rauðum chilipipar flögum (valfrjálst)
  • 1 stk. baguette brauð, skorið í 1 cm sneiðar
  • auka basil fyrir skraut
Raðið á ristaðar brauðsneiðar. Jarðarber með smá balsamic-ediki, olíu, basil, salti, pipar og ögn af muldum rauðum chili-pipar. Skreytið bruschettuna með basillaufi. Berið fram strax.
 
Jarðarberjakaka í bolla
  • 1 bolli (180 g) grófsöxuð jarðarber
  • 1 tsk. sykur eða annað sætuefni eins og maple síróp
  • ¼ tsk. vanilludropar
  • 1 msk. smjör, brætt
  • 3 msk. hveiti
  • ½ msk. sykur
  • ¹⁄₈ tsk. af lyftiduft 
  • 1 msk. valsaðir hafrar (eða annað gott korn, til dæmis chiafræ, sesam eða musli-mix)
  • klípa af muldum kanil
Blandið saman jarðarberjum, sykur og vanillu í leir- eða glerskál. Setjið restina af þurrefnunum í skálina og blandið í bræddu smjöri. Blandað saman með gaffli til að koma því saman, svolítið eins og kökumulningur. Setjið yfir jarðarberin.
 
Setjið í örbylgjuofn í lágmark 1 mínútu plús 10–20 sekúndur. Tímasetning gæti verið mismunandi eftir krafti örbylgjuofnsins. Borðið strax með rjóma og ferskum berjum!

2 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...