Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Aðalfundur FsV á Hamri í Borgarnesi.
Aðalfundur FsV á Hamri í Borgarnesi.
Mynd / Guðmundur Sigurðsson
Á faglegum nótum 13. maí 2019

Skógarauðlindin dafnar sem aldrei fyrr og verkefni skógarbænda ærin

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri LSE.
Undanfarnar vikur hafa aðildar­félög Landssamtaka skógar­bænda (LSE) haldið aðalfundi sína. Skóg­arauðlindin dafnar sem aldrei fyrr og verkefni skógarbænda ærin, en skemmtileg, næstu misserin sem áður. 
 
 Aðalfundur Félags skógarbænda á Austurlandi (FsA) var haldinn á Eiðum 20. mars og mættu 23 félagsmenn á hann. Formaður félagsins, Maríanna Jóhannsdóttir, skógarbóndi í Snjóholti, fór yfir það helsta sem unnið hafði verið á starfsárinu. Helst ber þar að nefna veislu í tilefni 30 ára afmælis FSA, brunavörnum í skógi, Jólakettinum, Skógardeginum mikla, afhjúpun minnisvarða um Sherry Curl skógræktarráðunaut, fræðsluerindum, girðingarreglum og söluaðstöðu á Egilsstöðum fyrir skógarbændur sem aðra bændur til að kynna starf sitt og vörur. Stjórn félagsins er óbreytt frá fyrra ári og mun starfa ótrauð áfam í þágu skógarbænda á Austurlandi næsta starfsár. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf hélt Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri erindi um málefni Skógræktarinnar sem sneru að skógarbændum og undirritaður hélt nokkur orð um störf LSE á starfsárinu. 
 
Félag skógarbænda á Norðurlandi
 
Aðalfundur Félags skógarbænda á Norðurlandi (FsN) var haldinn í Eyvindarstofu á Blönduósi á Alþjóðadegi skóga, 21. mars. Alls mættu á hann 24 manns. Formaður FsN, Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir skógarbóndi á Snartastöðum 2, fjallaði um helstu mál félagsins svo sem skipulag við næsta aðalfund LSE, skógargöngu sem var í skógi Hróarsstaða í Fnjóskadal, hjá Agnesi og Kristjáni, félagið er með fulltrúa í jólatrjáanefnd og viðarnýtingarnefnd. Breyting var á stjórn félagsins þegar Helga Sigurrós Bergsdóttir, skógarbóndi á Dunhóli, lét af störfum og í stað hennar gengur Laufey Leifsdóttir, skógarbóndi á Stóru-Gróf syðri. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf hélt Bergsveinn Þórsson, ráðunautur hjá Skógræktinni, erinid um störf skógræktarinnar og undirritaður fór yfir störf LSE. 
 
 Félag skógarbænda á Vesturlandi
 
Aðalfundur Félags skógarbænda á Vesturlandi (FsV) var haldinn á Hótel Hamri, Borgarnesi, 27. mars og mættu á hann 25 manns. Formaður félagsins, Bergþóra Jónsdóttir, skógarbóndi á Hrútsstöðum, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir helstu störfin á árinu. Þar ber helst að nefna annars vegar fjölmenna vettvangsferð skógarbænda af Vesturlandi til kollega þeirra á Suðurlandi og hins vegar samkomu í Selskógi í Skorradal undir merkjum „Líf í lundi“ en þangað sóttu 80 manns. Þetta var samvinnuverkefni Skógræktarinnar og Skógærktarfélags Borgarfjarðar. Einnig hafði FSV forgöngu um námskeið um umhirðu í ungskógi. Aðalstjórn félagsins er óbreytt frá fyrra ári. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf hélt Ellert Arnar Maríusson, ráðgjafi hjá Skógræktinni, erindi um niðurstöður viðmargmagnsútttektar á Vesturlandi, undirritaður flutti erindi um LSE og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, sviðstjóri skógarauðlindasviðs hjá Skógræktinni, rak restina með umfjöllun um störf Skógræktarinnar.
 
Félag skógareigenda á Suðurlandi
 
Aðalfundur Félags skógareigenda á Suðurlandi (FsS) var haldinn í Gunnarsholti 6. apríl og mættu þangað tæplega 50 skógarbændur.  Formaður félagsins, María E. Ingvadóttir, skógarbóndi í Akurbrekku, flutti skýrslu stjórnar.  Breytingar urðu í stjórn félagsins en Sigríður Hjartar,  skógarbóndi í Múlakoti, lét af ritarastörfum. Voru henni færðar þakkir fyrir langt og farsælt starf. Inn í stjórn gekk Hrönn Guðmundsdóttir, skógarbóndi á Læk. Í almennum umræðum fór formaður yfir verkefnin fram undan. 
 
Verið er að vinna í „afurða­verkefninu“ og munu þau mál  skýrast fljótlega. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf sagði undirritaður frá starfi LSE síðastliðið ár. Eftir matarhlé fjallaði Þorbergur Hjalti Jónson, sérfræðingur á Mógilsá, um áhugaverðar  rannsóknir á asparrækt. Í lok dagskrár flutti undirritaður stutt erindi um tvítoppaklippingu og uppkvistun. Að því loknu var farið út í skóg þar sem sýnikennsla fór fram og fólki bauðst að reyna kunnáttu sína, undir leiðsögn undirritaðs og Bergs Þórs Björnssonar, umsjónarmanns hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti. 
 
Aðalfundur Félags skógar­bænda á Vestfjörðum (FsVfj.) verður haldinn á Reykhólum í lok júní eða júlí. 
 
Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri LSE.

5 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...