Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Suzuki Baleno 1,0 GLX.
Suzuki Baleno 1,0 GLX.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 10. mars 2017

Rúmgóður og kraftmikill smábíll

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Meðalstórir fólksbílar seljast ekki mikið, mest er sala í smábílum og stærri bílum. Á dögunum prófaði ég Suzuki Baleno sem ég flokka sem meðalstór fólksbíll, en er sparneytinn eins og smábíll, rúmgóður eins og stór bíll, ódýr og þægilegur í akstri.
 
Suzuki Baleno er fáanlegur í sjö mismunandi tegundum, með tvær mismunandi vélar. Ýmist sjálfskipta eða beinskipta og einn Hybrid. 
 
Verð á Suzuki Baleno er frá 2.260.000 sá ódýrasti, upp í 3.320.000 (112 hestafla sjálfskiptur). Vélarnar í Baleno eru annars vegar 1,2  lítra  90 hestafla vél eða 1,0 112 hestafla vél með forþjöppu. 
 
Uppgefin eyðsla er 4,5 lítrar á Baleno
 
Bíllinn sem ég prófaði var 1,0 l bíllinn og beinskiptur. Þrátt fyrir að vélin væri ekki nema 1,0 lítra þá sér forþjappan um að vélin vinnur vel og gefur bílnum skemmtilega snerpu.
 
Tog er gott og heldur vélin ágætlega hraða upp brekkur á toginu. Sem dæmi um ágæti vélarinnar þá náði ég að vera með undir þriggja lítra eyðslu á jafnsléttu í á um 20 km kafla ef ég passaði mig á að vera á hraða undir 90 km á klukkustund. 
 
Prufuaksturinn yfir 140 km 
 
Í prufuakstrinum reyndi ég bílinn á malarvegi, og var ég ánægður með fjöðrunina. Smásteinahljóð undir bílnum sem kom af grófum vetrardekkjunum fannst mér þó full mikið. Hins vegar var veghljóð mjög lítið á malbiki þrátt fyrir gróf vetrardekk undir bílnum. Það bendir til þess að bíllinn sé vel hljóðeinangraður.
Þegar ég prufukeyri bíla reyni ég að fara að lágmarki um 100 km, en það var svo gaman og þægilegt að keyra þennan Suzuki Baleno að ég endaði í nálægt 150 km. Megnið af prufuakstrinum var ég að fylgjast með eyðslunni á þessari litlu kraftmiklu vél sem kom mér alltaf meira og meira á óvart eftir því sem kílómetrarnir urðu fleiri. Á endanum hafði ég verið í bílnum í um þrjá tíma, meðaleyðsla þessa 145 km var 5,7 lítrar á hundraðið. Það er mjög ásættanlegt þar sem að ég margprófaði bílinn á mismunandi hraða í sömu brekkunni með tilliti til eyðslu.
 
Gott rými
 
Í framsætum er gott að sitja, fótarými gott, einnig í aftursætum er gott rými og til marks um það að á mörgum bílum er ekkert þægilegt að sitja í miðjunni í aftursætinu. Ég settist í miðjusætið og þar var gott pláss og á milli 10 og 20 sentímetrar í bak framsætanna frá hnjánum á mér. Farangursrýmið í skottinu er gott, en í boði er að vera með lítið pláss sem er þægilegt að taka úr eða að dýpka rýmið og fá stærra farangursrými.
 
Margir nýir bílar koma án varadekks í dag sem mér finnst mikill mínus, en í Baleno er varadekk sem ég kalla aumingja. Það er þó allavega skárra en ekkert.
 
Hliðarspeglar eru ágætir, en baksýnisspegillinn í framrúðunni er óþægilega neðarlega og stelur aðeins útsýni fram á við úr ökumannssætinu.
 
Skjár dofnar mikið við að kveikja á ljósum
 
Ókostur að þurfa að kveikja ljósin alltaf þegar farið er af stað til að vera löglegur í umferðinni þar sem afturljósin koma ekki á nema ljósin séu kveikt.
 
Við að þurfa að kveikja ljósin er að þá dofna ljós í mælaborðinu svo mikið að varla er hægt að sjá á skjáinn með GPS leiðarkerfinu þegar mjög bjart er úti.
 
Helstu mál:
 
Verðið á prufubíl 2.990.000 kr.
Vél 112 hestöfl, bensín 998cc. 
Hæð 1.470 mm
Breidd 1.745 mm
Lengd 3.995 mm
 

 

7 myndir:

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu
Fréttir 11. desember 2025

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu

Ný rannsókn Matís sýnir að kolefnisspor helstu íslenskra matvæla – mjólkur, kjöt...

Þörungakjarni með mörg hlutverk
Fréttir 11. desember 2025

Þörungakjarni með mörg hlutverk

Undirrituð hefur verið formleg viljayfirlýsing um stofnun Þörungakjarna á Akrane...

Húsaeiningar frá Noregi
Fréttir 9. desember 2025

Húsaeiningar frá Noregi

Nýlega komu um tvö þúsund fermetrar af svonefndum „Modulum“, sem eru forsmíðaðar...

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni

Alþingi hefur samþykkt framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár til ársins 2029. Um tí...

Gervigreind í Grímsnesi
Fréttir 9. desember 2025

Gervigreind í Grímsnesi

Grímsnes- og Grafningshreppur tekur nú þátt í þróunarverkefni í samstarfi við up...

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni

Þingsályktunartillaga um nýtt fyrirkomulag jarðakaupa frumkvöðla á landsbyggðinn...

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti
Fréttir 8. desember 2025

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti

Niðurstöðu COP30 sem fram fór í Brasilíu í nóvember hefur verið lýst sem lægsta ...

Fituúrgangur til framleiðslu á hreinsivörum
Fréttir 8. desember 2025

Fituúrgangur til framleiðslu á hreinsivörum

Nýsköpunarfyrirtækið Gefn sérhæfir sig í framleiðslu á umhverfisvænum bílahreins...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f