Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, vill að sláturleyfishafar og stóru fyrirtækin, sem eru með veitingasölu á sínum snærum um allt land, verði krafin um áætlanir um stóraukna sölu á þjóðarréttum úr lambakjöti.
Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, vill að sláturleyfishafar og stóru fyrirtækin, sem eru með veitingasölu á sínum snærum um allt land, verði krafin um áætlanir um stóraukna sölu á þjóðarréttum úr lambakjöti.
Mynd / HKr.
Skoðun 16. janúar 2018

Raunhæf bjartsýni

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Vel sóttur fundur um markaðssetningu á lambakjöti sem haldinn var á Hellu á síðasta degi jóla, hlýtur að auka bjartsýni á að kannski séu heilmiklir ónýttir möguleikar til tekjuaukningar í greininni. Það var samt óneitanlega sérstakt að ábendingin kæmi úr ranni sófasölumanns í Garðabæ. 
 
Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, lýsti á þessum fundi hugmyndum sínum um að stórauka sölu á lambakjötsréttum á næstu misserum og árum. Fyrir marga bændur hlýtur þetta að hafa hljómað nánast sem draumórar. Í þessari grein hafa menn nefnilega verið að horfa á harða baráttu áratugum saman við að selja hvert einast umframkíló sem eftir stendur þegar innanlandsmarkaðurinn er mettur. Leitað hefur verið ýmissa leiða til að markaðssetja umframbirgðir, oft með ærnum kostnaði. 
 
Í gegnum tíðina hafa duglegir sölumenn þó fundið ýmsar snjallar leiðir til að markaðssetja íslenskar landbúnaðarvörur erlendis, en ævinlega hafa þær fallið um sjálfa sig. Ekki vegna þess að söluhugmyndirnar voru ekki góðar, heldur vegna óstöðugleika á Íslandi. Fyrst ber þar að nefna gengissveiflur sem ýmist lýsa sér í góðu skilaverði fyrir vöruna eða bullandi tapi. Annar þáttur er pólitískar sveiflur og heimóttarskapur sem lýsir sér m.a. í þjónkun við ákveðin herveldi sem leitt hafa til þess að lokað hefur verið fyrir öflug viðskiptasambönd. Þriðji þátturinn og ekki sá veigaminnsti er skortur á þolinmæði og trú á að dæmin geti gengið upp. Þar er engum um að kenna nema bændum sjálfum og þeirra afurðastöðvum. Þar má nefna mýmörg dæmi, eins og úr sögu markaðssetningar á kjöti og mjólkurafurðum, m.a. í Bandaríkjunum. Eitt sorglegasta dæmið er ef til vill ábendingar um nauðsyn þess að Íslendingar tryggðu sér rétt á skyrinu á heimsvísu. Nú hafa menn glutrað því risadæmi að mestu út úr höndunum og hafa tapað því gríðarlega verðmæta forskoti sem sá réttur hefði skapað. 
 
Ljósið sem skein út úr myrkrinu eftir fundinn á Hellu er að hugmynd sófasölumannsins um markaðssetningu á kjöti er ekki bara snilld, heldur einfaldlega afar raunhæft mat á því sem hægt er að gera. 
 
Það þarf svo sem engan reiknimeistara til að sjá það, að tvær milljónir ferðamanna þurfa að fá mat ef þeir eiga ekki að svelta í hel. Það þarf heldur engan reiknimeistara til að finna það út að 340 þúsund Íslendingar, sem fer auk þess ört fjölgandi, þurfa líka að borða mat ef þeir eiga ekki að veslast upp. Þetta vissi sófasölumaðurinn í Garðabænum, en það sem hann hafði umfram staðnaðan hugsanagang innan afurðasölukerfis íslenskra bænda var að hugsa örlítið öðruvísi. Hann velti því einfaldlega fyrir sér hvernig nýta mætti það sem afurðasölukerfið hefur litið á sem hálfgert úrkast, í alvöru og góðan mannamat sem mætti selja með hagnaði. Hann er samt ekki að gera neitt annað en að bjóða upp á rétti sem Íslendingar hafa þekkt um aldir, en framreiðir þá á nýjan hátt. Þetta er snilldin, að gera sér mat úr einfaldleikanum í allri sinni dýrð.
 
Nú þarf enginn að efast um það lengur að þetta er hægt og örugglega hefur sófasölumaðurinn líka rétt fyrir sér hvað varðar útflutning á kjöti. Það þarf heldur ekkert stærðfræðiséní til að reikna það út að þegar þessar hugmyndir verða farnar að virka að fullu, þá verður ekkert lambakjöt eftir sem þörf verður á að selja til útlanda. 
 
Ef menn eru ekki tilbúnir til að grípa þessar hugmyndir á lofti og nýta tækifærin sem í þeim felast, þá er mönnum varla við bjargandi. 
Skógarfura í Varmahlíð föngulegust
Fréttir 4. október 2024

Skógarfura í Varmahlíð föngulegust

Skógræktarfélag Íslands hefur valið skógarfuru í Varmahlíð tré ársins 2024.

Þrír forstjórar skipaðir fyrir nýjar ríkisstofnanir
Fréttir 4. október 2024

Þrír forstjórar skipaðir fyrir nýjar ríkisstofnanir

Nýlega voru skipaði þrír forstjórar fyrir nýjar ríkisstofnanir sem urðu til með ...

Eftirlíking af hálfri kú
Fréttir 4. október 2024

Eftirlíking af hálfri kú

Nautastöð Bændasamtaka Íslands tók á dögunum í notkun eftirlíkingu af kú sem er ...

Gagnrýna nýjar reglur um hollustuhætti
Fréttir 3. október 2024

Gagnrýna nýjar reglur um hollustuhætti

Heilbrigðisnefndir kringum landið hafa gagnrýnt skort á kynningu á nýrri regluge...

Aðgerðaáætlun gefin út
Fréttir 3. október 2024

Aðgerðaáætlun gefin út

Matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, hefur gefið út aðgerðaáætlun fyrir...

Grasrótin gaumgæfir atvinnulíf og nýsköpun
Fréttir 3. október 2024

Grasrótin gaumgæfir atvinnulíf og nýsköpun

Verkefnið Vatnaskil á Austurlandi miðar að því að efla nýsköpun og stuðla að fjö...

Áburðarverkefni í uppnámi
Fréttir 3. október 2024

Áburðarverkefni í uppnámi

Áburðarverkefni í Syðra-Holti í Svarfaðardal, sem gengur út á moltugerð úr nærsa...

Aukinn innflutningur á lægri tollum
Fréttir 2. október 2024

Aukinn innflutningur á lægri tollum

Ekki er hægt að fá uppgefna þá aðila sem standa að baki innflutningi á landbúnað...

Heilsteikt nautalund
10. nóvember 2022

Heilsteikt nautalund

Tími haustlaukanna
29. ágúst 2014

Tími haustlaukanna

Siggi Dan gegn Sævari
4. október 2024

Siggi Dan gegn Sævari

Metinnflutningur á nautakjöti í júlí
12. september 2024

Metinnflutningur á nautakjöti í júlí

Fjár- og stóðréttir 2023
24. ágúst 2023

Fjár- og stóðréttir 2023