Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Ofbeldi gegn eftirlitsfulltrúum ólíðandi
Mynd / smh
Fréttir 4. maí 2026

Ofbeldi gegn eftirlitsfulltrúum ólíðandi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Matvælastofnun (MAST) sendi nýlega frá sér tilkynningu þar sem greint var frá því að framlínu- starfsfólk stofnunarinnar hefði orðið fyrir óvenjulega miklu áreiti, hótunum og ærumeiðingum. Atvikin tengist helst afskiptum MAST af dýrahaldi og beitingu þvingunarúrræða þar sem brotið er á velferð dýra.

Í fréttatilkynningu MAST segir að dæmi séu um að starfsfólk hafi sett upp öryggiskerfi á heimilum sínum og óttist jafnvel um börn sín. Fjölskyldumeðlimir starfsfólks sem vinnur að krefjandi málum hafi fengið skilaboð um nætur sem séu uppfull af ógnandi og óviðeigandi texta. Augljós tilgangur þeirrar háttsemi sé að hræða starfsfólk og ógna því í þeirri von að það hafi áhrif á framgang mála.

Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, segir í samtali að atvik sem þessi hafi alltaf komið upp af og til. Eftirlit með velferð dýra feli oft í sér að ganga inn í viðkvæmar aðstæður og geta vakið sterkar tilfinningar dýraeigenda. MAST hefur skerpt á verklagi sínu í öryggismálum starfsmanna, en Hrönn segir eftirlitsfulltrúa ekki eiga að upplifa óöryggi á vettvangi né í samskiptum eftir á fyrir það eitt að sinna starfi sínu.

Hún útskýrir að fólk átti sig oft ekki á því að lögbundið hlutverk MAST sé að sinna eftirliti með landbúnaði, matvælaframleiðslu og gæludýrahaldi. „Rétt eins og lögreglan stendur vörð um öryggi borgaranna, stöndum við vörð um velferð dýra. Og það er hlutverk sem þarf að vera hægt að sinna án ótta,“ segir Hrönn.

Hafa þurft aðstoð lögreglu

„Við þurfum oft að gera athugasemdir við aðbúnað dýra þegar við sinnum okkar eftirliti. Það getur verið erfitt fyrir fólk að taka því, sérstaklega þegar um er að ræða heimili eða persónuleg tengsl við dýr,“ segir Hrönn. Í slíkum aðstæðum geti skapast reiði, ótti eða varnarviðbrögð sem í flestum tilvikum gangi fljótt yfir. Í einstaka tilvikum fari viðbrögðin hins vegar yfir mörkin.

Hrönn lýsir þróuninni sem samspili nokkurra þátta. Meðvitund almennings um dýravelferð hafi aukist og ábendingum um brot á dýravelferð fjölgað, einkum vegna gæludýra. Um leið hafi MAST breytt sinni nálgun ef upp kemur ógn gagnvart starfsfólki og tekið fyrr og skýrar á málum en áður. „Við erum farin að bregðast öðruvísi við og það sést í tölunum. Það þýðir ekki endilega að allt sé orðið verra, heldur að við erum virkari,“ segir hún. Samhliða því telur hún að tónn í samfélagsumræðu almennt hafi harðnað, meðal annars á samfélagsmiðlum, þar sem fólk leyfir sér meira í orði.

MAST hefur sett sér skýrt og fastmótað verklag þegar starfsfólk upplifir ógnandi hegðun. Telji eftirlitsfulltrúi sig ekki öruggan eigi starfsmaðurinn að ljúka viðkomandi eftirlitsheimsókn. Næstu skref eru þá metin innan stofnunarinnar, en ýmist er farið í annað eftirlit með fleiri en einum starfsmanni eða með aðstoð lögreglu í verstu tilfellunum. Hótanir sem berast starfsfólki utan vettvangs, svo sem í símtölum, tölvupósti eða á samfélagsmiðlum, eru kærðar. Þótt flest mál snúist um orð og tón í samskiptum hefur einnig komið til líkamlegs ofbeldis. „Það hefur gerst að eftirlitsfulltrúi hjá okkur þurfti að fara á spítala og fá áverkavottorð,“ segir Hrönn.

Flestir bregðist jákvætt við

Hún leggur ríka áherslu á að þessi vandamál einkenni alls ekki heildarmyndina. „Langstærsti hluti þeirra sem við komum til, hvort sem um er að ræða bændur eða gæludýraeigendur, er gott fólk sem vill gera vel og vinnur af heilindum,“ segir hún. Yfirleitt bregðist umráðamenn dýra við athugasemdum og geri úrbætur.

Þyngri úrræði, svo sem dagsektir eða vörslusvipting, séu notuð í skrefum og í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. „Vörslusvipting er alltaf lokaúrræði og aldrei tekin af eftirlitsfulltrúa einum. Það er teymi sérfræðinga sem ber þá ábyrgð. Ógnanir eða árásir á eftirlitsfólk hafa engin áhrif á framgang eða niðurstöður mála,“ segir hún.

Samhliða breyttu öryggisverklagi hefur MAST lagt aukna áherslu á stuðning við starfsfólk sem lendir í erfiðum aðstæðum. Stofnunin er með forgangsþjónustusamning við sálfræðistofu og býður bæði sálfræðiaðstoð og jafningjastuðning. „Við viljum halda í okkar fólk og tryggja að þessi reynsla skilji ekki eftir sig varanlegan skaða,“ segir Hrönn. „Þetta tekur á, jafnvel þótt menn séu vanir slíku starfi.“

Skylt efni: Mast

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...