Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Felgubolta undir stórum vinnuvélum þarf stundum að margherða.
Felgubolta undir stórum vinnuvélum þarf stundum að margherða.
Fréttir 14. janúar 2020

Nýtt ár byrjar á að skoða ýmsar hættur, reglur og annað gagnlegt

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Stundum fæ ég góðar ábendingar um val á efni í þennan pistil og í einstaka tilfellum um að einhverjum mislíki efnisval. Verst finnst mér þegar ég hef gerst sekur um að fara með rangt mál og fyrir skömmu kom til mín maður með munnleg skilaboð og eftir þessi skilaboð þarf ég að biðjast afsökunar á að halda því fram hér í pistli að ekki væri til í reglum að hægt væri að sekta menn eða að taka bíl úr umferð fyrir að vera í vetrarumferð þar sem er snjór og hálka. 
 
Fyrir nokkru fékk ég skila­boð í gegnum þriðja aðila frá lögreglu­manni að hann hefði bæði sektað fyrir léleg dekk í vetrarumferð og að þessi sami lögreglumaður hafi fylgt bíl á hjólbarðaverkstæði til að skipta um dekk. Það broslega við skilaboðin voru að sá sem færði mér skilaboðin var beðinn sérstaklega að geta þess að lögreglumaðurinn hafi farið með bílstjóranum á viðkomandi bíl inn á verkstæðið og beðið afgreiðslumanninn á verkstæðinu um að afhenda ekki bílinn aftur fyrr en í aksturshæfu standi fyrir vetrarakstur. Spurning um að hjólbarðaverkstæðin fari að setja lögreglumenn á prósentur (mundi það nokkuð kallast mútur...?).
 
Áhersla sett á að breyta umferðarreglum í umferðarlög
 
Fyrir flestum eru umferðarreglur og umferðarlög það sama, en svo er víst ekki og um síðustu áramót tóku við ný umferðarlög sem er í sjálfu sér ekki mikil breyting nema hvað að áður var flest af því sem breytt var reglugerð og þær reglur eru nú orðnar af lögum. Sem þýðir að brjóti maður umferðarreglur sem eru umferðarlög má maður fastlega búast við sekt fyrir brotið. 
 
Í þessum pistlum hefur oft verið hamrað á ljósanotkun á bílum sem eru í umferð að ljós séu kveikt framan og aftan. Eins og margir vita koma margir bílar þannig að lítil ljós kvikna bara að framan þegar sett er í gang, þessi ljós eru ekki lögleg ökuljós samkvæmt íslenskum umferðarlögum (sama hvaða lög eru í öðrum löndum þá eru íslensk lög alltaf þau lög sem við þurfum að fara eftir). Nú mega þeir sem gleyma að kveikja ökuljósin því búast við sekt fyrir ljósleysi. Ég hef verið að hvetja þá ökumenn sem sjá bíla í umferð án afturljósa til að blikka háu ljósunum fyrir aftan þá til að láta vita af ljósleysinu og um leið forða viðkomandi við óþarfa sekt, sem er 20.000 krónur.
 
Mótorhjól og fjórhjól sem keyrð eru stutt í einu safna raka í olíuna.
 
Ýmsar aðrar breytingar á umferðarlögum
 
Í eldri reglum var að vörubílar og bílar með vagna mættu ekki fara hraðar en á 80 km hraða þó að hámarkshraði væri 90. Nú mega allir bílar keyra á sama hraða og sé ég að túlka nýju reglurnar rétt þá má keyra með heimasmíðuðu óskráðu kerruna sem er undir 750 kg á 90 km hraða sé það hámarkshraðinn í staðinn fyrir 60 km hraða áður. 
 
Dráttarvélar og skellinöðrur eru skráð sérstaklega og engin breyting er þar á hraðamörkum.
Varðandi áfengismagn í blóði er för ökumanns stöðvuð á staðnum ef vottur af áfengi mælist við akstur, en viðkomandi missir ekki ökuréttindin nema mæling á áfengi í blóði sé yfir 0,6. 
 
Margir ökumenn freistast til að kíkja á símann sinn þegar þeir eru stopp á ljósum, séu menn nappaðir fyrir það er það lagt að jöfnu við að tala í síma án handfrjáls búnaðar sem er 40.000 samkvæmt uppgefinni töflu um sektir.  
 
Nokkrar setningar sem gott er að muna og reyna að fara eftir
 
Vélarnar í fjórhjólum og öðrum litlum faratækjum sem eru notuð á vetrum í stuttan tíma í senn, ná oft ekki að hitna upp í vinnsluhita á milli þess að þær kólna niður í það hitastig sem er úti. Þá er mjög líklegt að vélarnar dragi inn á sig raka sem blandast smurolíunni. Því þarf að skipta oftar um smurolíu á þeim tækjum en uppgefið er í eigandahandbók. 
 
Ef skipt er um dekk undir öllum tækjum þarf alltaf að athuga með herslu á felguboltum, sérstaklega á stærri vinnuvélum. Af fenginni reynslu er miklu líklegra að felguboltar losni vinstra megin undir farartæki, þetta er vegna þess að í raun ætti, vegna snúningsáttar og akstursstefnu, að vera öfugur skrúfgangur vinstra megin á ökutækjum. Slíkt var algengt í vörubílum fyrir um 40–50 árum, en er sjaldséð í dag nema á örfáum bílum.
 
Sé fylgst vel með veðurspá og spáð er miklu frosti þá er mikil skynsemi í að fylla eldsneytistankinn af eldsneyti til að forðast rakamyndun inni í eldsneytistankinum og þeim leiðindamálum sem maður getur lent í fái maður raka í eldsneytið.
Efling byggða á Ströndum
Fréttir 13. maí 2025

Efling byggða á Ströndum

Tillögur til eflingar byggða á Ströndum hafa nýlega verið birtar. Þær byggja á s...

Nýr íshellir til athugunar
Fréttir 12. maí 2025

Nýr íshellir til athugunar

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur lagt fram tillögu nýs deiliskipulags sem tek...

Ný lög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Fréttir 9. maí 2025

Ný lög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi um ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveita...

Háskólasamstæða mikilvæg
Fréttir 9. maí 2025

Háskólasamstæða mikilvæg

Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum verða samstæða frá næstu áramótum og er það...

Störfum í ferðaþjónustu fjölgar en fækkar í landbúnaði
Fréttir 9. maí 2025

Störfum í ferðaþjónustu fjölgar en fækkar í landbúnaði

Ferðaþjónusta í Fljótsdalshreppi hefur eflst mjög undanfarin ár, en landbúnaður ...

Sòl*Kol á Sólheimum og sumarið í vændum
Fréttir 8. maí 2025

Sòl*Kol á Sólheimum og sumarið í vændum

Það er viðeigandi að Sólheimar hafi orðið fyrir valinu við að halda málþing um f...

Lausnir á vandamálum í sauðburði
Fréttir 8. maí 2025

Lausnir á vandamálum í sauðburði

Í allmörg ár hefur verið venja hér í blaðinu að birta skýringarmyndir Þorsteins ...

Rýnt í Bændablaðið í bláu Adríahafinu
Fréttir 7. maí 2025

Rýnt í Bændablaðið í bláu Adríahafinu

Upp úr áramótum fréttist af manni sem lá í Bændablaðinu á Suðurskautslandinu. Nú...