Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Rúmir 180 cm með veltibogann niðri.
Rúmir 180 cm með veltibogann niðri.
Á faglegum nótum 16. september 2014

Margur er knár þótt hann sé næstum agnarsmár

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson

Fyrir nokkru hafði samband við mig fyrrum sveitungi minn og spurði hvort ég hefði prófað eða séð litla dráttarvél sem auglýst var í Bændablaðinu. Ekki hafði ég prófað vélina, en fyrir skemmstu bauðst mér að prófa þessa litlu dráttarvél við aðstæður sem ég fyrirfram hélt að væri henni ofraun.

30 hestöfl og ekki nema 2,2 tonn

Prófunin fór fram í gamalli motocrossbraut við Bláfjallaveg sem fólst í að draga heimatilbúinn hefil eftir lítilli æfingabraut, braut sem nokkrir menn sem eru fimmtugir og eldri nota við æfingar á torfæruhjólum. Yfirleitt hafa þessir menn notað stóra jeppa til að draga hefilinn. Dongfeng kom verulega á óvart þar sem hestöflin eru ekki nema 30 og þyngdin ekki nema 2,2 tonn með moksturstækjum. Þegar ég lagði af stað bjóst ég ekki við að svona lítil dráttarvél mundi ráða við að draga hefilinn. Mér til mikillar furðu hafði Dongfeng lítið fyrir því að draga hefilinn, en það eina sem ég þurfti að passa mig á var hliðarhalli þar sem vélin er mjó og völt.

Hitnaði ekki einu sinni við erfiðið

Að hefla þennan hring var ekkert mál þó svo að vissulega hafi vélin verið að erfiða í bröttustu hólunum, en alltaf kraflaði fjórhjóladrifið vélinni áfram. Alltaf var ég að bíða eftir að vélin myndi festa sig eða hitna um of. Reyndin var sú að hiti vélarinnar var aldrei yfir 70 gráður, en það eina sem ég hefði mátt gera var að hafa heyrnarhlífar eða tappa í eyrun því að í sumum brekkunum var snúningurinn mikill og hávaði nokkur.

Eftir heflun mokaði ég nokkrum skóflum yfir klöpp sem í brautinni er og að moka með vélinni er bæði auðvelt og er hún lipur til moksturs.

Svona rétt til að prófa þá setti ég skófluna á kaf í malarbing vitandi að ekki færi skóflan upp og þá fóru bara afturhjólin á loft. En samkvæmt upplýsingum frá innflytjanda vélarinnar byrjar hún að lyftast upp að aftan við u.þ.b. 800 kg þunga.

Mín skoðun er að Dongfeng  geti ráðið við megnið af þeim verkefnum sem meðalbóndi þarf að fást við,  henti vel til snjómoksturs á gangstéttum og fyrir smærri verktaka s.s. garðyrkju og fleira. Helstu upplýsingar um Dongfeng: DF-304-G2 Changchai dísilvél, 3ja strokka og 30 hestöfl við 2.400 snúninga á mínútu (sn/mín). Meðal eldsneytiseyðsla 2–3 lítrar/klst.  Hátt og lágt drif með vendigír sem gefur 8 gíra áfram og 8 afturábak. Hámarkshraði 35 km/klst. Drif á öllum hjólum með driflæsingu.

Helstu mál og upplýsingar:

Þyngd vélar með moksturstækjum: 2.200 kg
Hámarks lyftigeta moksturstækja og þrítengibeislis: 800 kg
Breidd skóflu: 152 cm
Breidd traktors: 145 cm (hægt að auka upp í 155 cm)
Allir boddýhlutir s.s. húdd, mælaborð og bretti eru gerð úr glassfíber. Fullkominn ljósabúnaður s.s. há og lág ljós, parkljós, stefnuljós, neyðarljós (hazard), bremsuljós og vinnuljós að aftan. Öflugur dráttarkrókur.
Traktorinn er auðveldur í viðhaldi og hefur engan tölvubúnað, 2ja ára ábyrgð.
Hægt að fá úrval fylgihluta, s.s. rúllugreip, gröfuarm, herfi, tætara, plóg, staurabor, ýtublað, hús með miðstöð o.fl. Evrópulager er staðsettur í Þýskalandi, www.dongfeng-europe.com  Söluaðili Mögnun ehf. Sími 562-8000.
Vökvaúttak að aftan, t.d. fyrir sturtuvagn
Aflúttak 540 og 1000 sn/mín.
Hjólbarðar aftan 11,2x24"  framan 6,50x16".
Aflúttak 540 og 1000 sn/mín.
Vökvastýri, beygjuradíus 2,4 metrar.
Niðurfellanlegur veltibogi, 
þá er hæðin 185 cm
Moksturstækin eru tvívirk. Lyftihæð 2,7 m., vökvaþrýstingur 160 bar, flæði 25 l/mín.
Verð með tækjum kr. 1.950 þúsund + vsk. Án tækja 1.550 þúsund án vsk.

4 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...