Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Frá því í nóvember síðastliðinn hafa hundruð þúsunda bænda á Indlandi safnast saman í þremur búðum í útjaðri Delí.
Frá því í nóvember síðastliðinn hafa hundruð þúsunda bænda á Indlandi safnast saman í þremur búðum í útjaðri Delí.
Fréttir 19. mars 2021

Indverskir bændur mótmæla

Höfundur: Vilmundur Hansen

Bændur á Indlandi sem hafa mótmælt í Delí undanfarna mánuði segja að ekki sé hægt að líta eingöngu á landbúnað sem hagfræðilega stærð sem skuli reka samkvæmt lögmálum markaðarins. Að sögn bændanna er landbúnaður hluti af lífi þeirra, hvort sem á hann sé litið út frá félags-, menningar- eða trúarlegum forsendum.

Landbúnaður og fæðuframleiðsla á Indlandi er gríðarlega mikil enda voru Indverjar taldir vera tæplega 1,4 milljarðar um síðustu áramót og um 60% þjóðarinnar starfa í tengslum við landbúnað og fæðuframleiðslu. Talmaður bænda segir að landbúnaður sem er miðlægur í lífi og trúarbrögðum þjóðarinnar hafi hnignað mikið á síðustu áratugum og eigi í dag við djúpstæðan vanda að stríða.

Hundruð þúsunda bænda mótmæla

Frá því í nóvember á síðasta ári hafa hundruð þúsunda bænda á Indlandi safnast saman í þremur búðum í útjaðri Delí til að mótmæla nýjum lögum og stefnu stjórnvalda í landbúnaði og endurheimta það sem bændurnir segja rétt sinn til að stunda landbúnað á eigin forsendum.

Búðirnar þar sem bændurnir hafa safnast fyrir eru vel skipulagðar, með húsvögnum, stóreldhúsum og svefnskálum og mögulega gætu mótmælin því staðið í nokkur ár. Auk þess sem sett hefur verið upp bókasafn og önnur aðstaða til afþreyingar.

Óánægja með lagasetningu

Í september síðastliðinn samþykkti ríkisstjórn Indlands þrenn ný lög sem áttu að leiða til mestu framfara í indverskum landbúnaði í áratugi. Lögin voru samþykkt án samráðs við bændur eða forsvarsmanna þeirra í landinu og í framhaldinu hefur lögunum verið mótmælt kröftug­lega. Með samþykkt laganna þykir bændum freklega framhjá þeim gengið og þeir segja að lögin takmarki rétt sinn þegar kemur að samningum við stór matvælafyrirtæki. Enda hugmyndin með lögunum að auka vægi einkafyrirtækja í indverskum landbúnaði og draga úr afskiptum ríkisins.

Mótmæli vegna setningar laganna hófust í landbúnaðarhéruðum í norðurhluta landsins þar sem síkar eru í meirihluta. Mótmælin fóru hægt af stað og fólust aðallega í fjöldasetum við opinberar byggingar og í að loka götum og stöðva flutninga á vörum. Í nóvember varð breyting á þegar samtök bænda í landinu tóku höndum saman og hvöttu félagsmenn sína til að taka þátt í mótmælagöngu sem halda skyldi til Delí.

Viðbrögð bænda við kallinu voru mikil og í framhaldinu tóku hundruð þúsunda bænda sig upp og stefndu til borgarinnar gangandi, á dráttarvélum eða öðrum farartækjum. Á þeim tímapunkti fór að hitna í kolunum og sums staðar kom til átaka milli bænda og yfirvalda sem reyndu að hefta för þeirra með lögregluvaldi þar sem beitt var bareflum, táragasi og vatnsfallbyssum.

Í kjölfarið var fjöldi mótmælenda fangelsaður og nokkrir blaðamenn sakaðir um rangfærslur, meðal annars eftir að hafa sagt að lögreglan hafi skotið einn mótmælenda til bana. Stjórnvöld í landinu hafa á sama tíma brugðist illa við fréttum af mótmælunum í erlendum fjölmiðlum og sagt þær óþörf afskipti af innanríkismálum. Stjórnvöld hafa einnig farið fram á að nokkur þúsund færslur frá stjórnmálamönnum, bændum og blaðamönnum verði fjarlægðar af samfélagsmiðlum á þeim forsendum að þær séu villandi.
Viðbrögð stjórnvalda hafa eingöngu orðið til að stappa stálinu í bændurna og efla samhug þeirra um að halda mótmælunum áfram þar til lögin verða dregin til baka.

Um hvað snúast mótmælin?

Samkvæmt opinberum tölum á Ind­landi starfar hátt í 60% vinnandi fólks í landinu við störf sem tengjast landbúnaði og samtök bænda í landinu því öflug.

Meðal þess sem er verið að mótmæla er að lágmarksverð fyrir það sem bændur framleiða verður af­numið og kaupendum því frjálst að þvinga verð niður eins og hægt er og engin trygging lengur fyrir því að bændur fái fyrir framleiðslukostnaði. Rök stjórnarinnar fyrir því að afnema lágmarksverð er að kaupendum muni fjölga og samkeppni aukast og verð til bænda hækka í kjölfarið. Bændur segja aftur á móti að með því að afnema lágmarksverð geti stór fyrirtæki ákveðið sjálf hvaða verð þau vilja greiða fyrir landbúnaðarvörur og hagur bænda því versna. Í kjölfarið munu þeir verða gjaldþrota og neyðist til að hætta búskap og selja jarðir sínar.

Fylgjendur laganna segja að í dag séu það eingöngu vel stæðir bændur sem njóti þess að fá greitt lágmarksverð sem tryggi afkomu þeirra en að bændur sem stundi nánast sjálfsþurftarbúskap njóti þess ekki.

Annað sem fylgjendur laganna hafa bent á er að stór hluti landbúnaðar í Indlandi sé ótæknivæddur og að það verði að uppfæra hann að kröfum nútímans til að mögulegt sé að fæða þjóðina þar sem íbúum landsins fer sífellt fjölgandi. Bent er á að ræktarland á Indlandi er víða komið að þolmörkum og gersneytt af öllum næringarefnum og að víða fari allt að 50% framleiðslunnar forgörðum vegna slæmra geymslu- og flutningsaðferða. Hlýnun jarðar er einnig farin að segja til sín og hafa mikil slæm áhrif á svæðum þar sem vatn er af skornum skammti.

Þeir sem tala gegn lögunum viðurkenna að ástand landbúnaðar á Indlandi sé víða bágborið en að umrædd lög séu ekki rétta leiðin til að bæta hann þar sem þau vinni gegn bændum en ekki með þeim.

Óeirðir á lýðveldisdaginn

Mótmælin mögnuðust á lýðveldisdag Indlands, 26. janúar, þegar hundruð þúsunda mótmælenda streymdu gangandi eða á dráttarvélum inn í Delí. Leiðin var fyrirfram samþykkt af lögreglunni og átti að sögn mótmæl­enda að fara friðsamlega fram. Hluti mótmælendanna klauf sig frá megingöngunni og braut sér leið gegnum veggi sem lögreglan hafði komuð upp til að halda mótmælendum innan fyrir fram ákveðinna marka og tók stefnuna á miðborgina.

Lögreglan brást við óeirðunum með valdi og beitti meðal annars táragasi og bareflum og svöruðu mótmælendur lögreglunni með grjótkasti og bareflum.

Nokkrum dögum fyrir þjóð­hátíðar­daginn reyndu stjórnvöld að koma til móts við bændur og fresta gildistöku laganna í 18 mánuði en í huga mótmælenda var það einungis leið til að fá bændur til að hætta að mótmæla og fara heim.

Samhugur um aðgerðir

Mótmælabúðirnar þrjár þar sem bændurnir hafa búið til eru staðsettar við þrjár af megin samgönguæðunum inn í Delí og geta þeir því hæglega lokað borginni færist aukin harka í mótmælin.

Ekki er annað að sjá en að bændur séu ákveðnir í að halda mótmælunum áfram því auk þess að vera búnir að koma upp matar- og svefnaðstöðu er búið að setja upp skóla og læknisaðstöðu. Að sögn blaðamanna sem hafa heimsótt búðirnar er andrúmloftið í þeim afslappað og fólk samhuga um mótmælaaðgerðirnar og ekkert sem bendi til að þeim muni ljúka á næstunni.
/VH

Skylt efni: Indland, mótmæli

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...