Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Baldur Þorsteinsson sölumaður á Kubota MK5000.
Baldur Þorsteinsson sölumaður á Kubota MK5000.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 21. desember 2015

Hægt að spara umtalsvert eldsneyti með svona litla vél í smáverkin

Höfundur: Hjörtur Leonard Jónsson
Í síðasta mánuði bauð Baldur Þorsteinsson, sölumaður hjá Þór h/f., mér í heimsókn til að skoða lítinn traktor frá Kubota. 
 
Til að prófa traktor tel ég að það þurfi að lágmarki 100 stunda vinnu á vélinni til að vita eitthvað um vélina, en að taka smá „monthring“ á vélinni nægir mér til að fá smá innsýn í möguleika vélarinnar og getu. Þessi smátraktor er í alla staði einföld og sniðug til allra smærri verka að mínu mati án þess að hafa haft möguleika á eiginlegum prufuakstri.
 
Sniðug fjórhjóladrifin vél
 
Þrátt fyrir að vélin sé lítil og mjó skilar mótorinn 35 hestöflum. Reyndar eru dekkin frekar mjó á vélinni sem ég skoðaði (framan 8-16 og aftan 12,4-26), en hægt er að fá vélina afhenta á 9,5-16 og 13,6-28 sem ég tel vænlegri kost. 
 
Kubota MK5000 er frekar mjó og þar af leiðandi mundi maður ætla að vélin sé völt, en framdekkin eru í akstri á ytri brún afturdekkja og mælist breidd vélarinnar 146,5 cm á mjórri dekkjunum, en sé vélin tekin á breiðari dekkjunum er hún 162,5 cm.
 
Á afturfelgunum er sniðugur útbúnaður til að breikka vélina, en hægt er að færa út felgurnar af miðjunni þannig að dekkin eru um 5 cm utar hvorum megin sem gerir vélina stöðugri og þá hitta framdekk beint á miðju afturdekk í hjólför. Veltibogi er fyrir aftan ökumanninn sem hægt er að fella niður sé verið að moka innan úr þröngu rými og er vélin þá rétt undir tveim metrum. 
 
Án moksturstækja er vélin undir 1700 kg
 
Vélin sem ég skoðaði kom án moksturstækja, er fjórhjóladrifin og er þegar seld, en hægt er að fá vélina með moksturstækjum sem eru með lyftigetu upp á rúm 900 kg. (ámoksturstækin kosta aukalega um 700.000 kr.). Vélin án tækja kostar 4.500.000 kr. með vsk. (um 3,6 milljónir króna án vsk.).
 
Þrátt fyrir að vera lítil er krafturinn nokkuð góður og skilar úrtakið að aftan 540 snúningum á mín. við 2.200 snúninga á mótor. Þrítengið að aftan er með lyftigetu upp á 1.300 kg. 
 
Lítill rafbúnaður
 
Þegar ég skoðaði vél og vélbúnað sá ég strax að rafallinn, rafgeymirinn og startari voru einstaklega litlir, en þegar ég skoðaði betur sá ég að sáralítið er af flóknum rafmagnsbúnaði í vélinni og þar með er ástæðulaust að vera með stóran rafal eða rafgeymi.
 
Aðgengi að öllum síum er gott og einnig er gruggglas fyrir eldsneytið á góðum stað til að gott sé að fylgjast með glasinu.
 
Stjórnbúnaðurinn fyrir þrítengið er með gamla laginu og minnir svolítið á Ferguson 35 stjórnborð fyrir þrítengi og moksturstæki.
 
Aftan á vélinni eru inn-út tengingar fyrir þrenn tæki og aðskildir takkar fyrir hvert þeirra á sama stað og þrítengistakkinn er.  
 
Sniðugur öryggisbúnaður í gírstöng
 
Eins og áður sagði er veltibogi fyrir aftan sæti á vélinni, en einnig er hægt að fá veltiboga um miðja vél í sérpöntun. Þegar ég var að prófa vélina stoppaði ég til að taka mynd af vélinni, setti í frígír og hugðist stíga af vélinni, en þá drap vélin á sér. Í fyrstu skildi ég ekki hvers vegna, en þegar betur var að gáð hafði ég rekið mig örlítið í gírstöngina svo að hún var ekki alveg á miðjunni og þar sem enginn sat í ökumannssætinu drap vélin á sér þar sem skynjarinn sagði að vélin væri í gír. Sniðugt öryggi og ekki nein hætta á að vélin fari af stað mannlaus (en til eru sögur af dráttarvélum sem hafa keyrt yfir eigendur sína þegar þær hafa hrokkið í gír).
 
Stuttur afgreiðslufrestur
 
Þar sem Kubota eru framleiddar í Japan er lagerinn fyrir Evrópu staðsettur í Englandi og fyrir vikið tekur ekki nema fjórar til sex vikur að fá Kubota senda til Íslands. Allavega fyrir þá sem vilja spara að nota stóra traktorinn til smærri verka tel ég að hægt sé að spara umtalsvert magn af eldsneyti með því að eiga svona litla vél til smáverka, en dísilvélar frá Kubota eru mikið í smærri vinnuvélum og þykja sparneytnar og traustar. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.thor.is og hjá Baldri sölumanni í Þór h/f.  

8 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...