Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Erlent ferðafólk mun greiða Íslandsgjaldið með ánægju
Lesendarýni 4. mars 2016

Erlent ferðafólk mun greiða Íslandsgjaldið með ánægju

Höfundur: Hallgrímur Sveinsson, Bjarni G. Einarsson, Guðmundur Ingvarsson
Við undirritaðir höfum verið beðnir um nánari útfærslu á hugmyndum okkar um ýmsa þætti ferðamála sem við höfum birt að undanförnu. Er okkur ljúft að verða við því.
 
Lykilatriði málsins er þetta: Það er útilokað að íslenska þjóðin geti búið við þá happa- og glappaaðferð sem ríkir í dag. Við óbreytt ástand verður ekki unað. Við leggjum til að erlendir ferðamenn sem ætla að skoða og ferðast um landið greiði 5.000 kr. í aðgangseyri, sem vel mætti kalla Íslandsgjald. Fyrsta árið gerir það 5 milljarða króna miðað við eina milljón gjaldskyldra ferðamanna. Þeir fjármunir og þeir sem síðar innheimtast verði notaðir undanbragðalaust í uppbyggingu innviða og rekstur vegna löggæslu hreppstjóra eða svæðisumsjónarmanna. Kostnaður vegna fræðslu um landið og rekstur björgunarsveita einnig innifalinn. 
 
Sumir ráðamenn vilja borga brúsann úr ríkissjóði. Með peningum sem ekki eru til eða ættu frekar að fara í annað. Það teljum við misráðið. Þeir sem koma gagngert til að njóta hins stórkostlega íslenska náttúruundurs eiga að greiða fyrir það sanngjarnan aðgangseyri. Til að við getum varðveitt landið fyrir komandi kynslóðir. Koma í veg fyrir örtröð. Grunur okkar er sá að erlendir ferðamenn muni almennt skilja það og greiða sinn hluta með ánægju. Og fá fyrir það ýmsa þjónustu sem þeir njóta ekki í dag. Þeir verða ánægðir þegar þeir verða varir við að allt sé á hreinu sem hægt er. Þeir sem ekki una gjaldtökunni munu þá fara annað. Þeir koma bara seinna. Enda takmarkað hvað Ísland þolir af erlendum ferðamönnum. Þar hljóta að vera einhver mörk. Íslendingar eiga svo að njóta góðs af þessu er þeir ferðast um eigið land. Kemur þar margt til.
 
Eftirfarandi kostnaðartölur yfir það sem hér er rætt um leggjum við fram, með tilvísun til fyrri greinar. Þetta eru auðvitað frumstæðar hugmyndir leikmanna að vestan, sem hafa kannski lítið vit á því sem þeir eru að tala um. En samt.
 
Hreppstjórar
 
Við höfum lagt til að þeir verði 100 talsins, starfi undir stjórn lögreglustjóra og sýslumanna og fái sérstakt erindisbréf. Reiknað er með að kostnaður við hvert embætti verði um 10 milljónir kr. á ári og hreppstjórarnir starfi meira og minna allt árið. Góð tilhugsun að endurreisa gömul embætti á nýjum grunni. Í þau verði ráðnir samkv. umsóknum menn af báðum kynjum sem gjörþekkja allar aðstæður á heimaslóðum. 
 
1. Laun hreppstjóra 4,200,000
 
2. Launatengd gjöld 2,500,000
 
3. Bílaleigubíll 2,000,000
 
4. Húsnæði 1,000,000
 
5. Annar kostnaður 300,000
    10,000,000,- x 100
    = Alls einn milljarður
 
Salernisaðstaða
 
Það sem við meinum með salernisaðstöðu er laglegt hús með kannski 10 salernum, sameiginlegu rými með vöskum, handklæðum, speglum, lítilli sölubúð með hreinlætisvörur og aðstöðu fyrir eftirlitsmann. Hæfileg bílastæði. Mega vera ómalbikuð fyrst í stað. Þar sem ekki er rafmagn frá samveitu verði settar upp sólarrafhlöður og gas til upphitunar. Húsakostur verði boðinn út í heilu lagi. Rekstur einnig boðinn út. Ókeypis aðgangur fyrir alla! 50 einingar til að byrja með.
 
1. Stofnkostnaður
    50 x 50,000,000
    = 2,500,000,000,-
 
2. Rekstur 50 x 9,500,000
    = 475,000,000,
 
3. Stjórnun, eftirlit o.fl.
    = 25,000,000,-  
    Alls þrír milljarðar
 
Fræðsla og björgunarsveitir
 
Fræðsla um Ísland. Reyndir leiðsögumenn og ferðaskrifstofufólk sjái um þennan þátt. Eðli málsins samkvæmt yrði sú starfsemi einkum á Keflavíkurflugvelli.
    Kostnaður, ósundurliðað
    = 500,000,000,-
 
Björgunarsveitir
 
Björgunarsveitir kæmu að þessu með því að sjá um fræðslu einkum fyrir þá sem ætla sér að ferðast um hálendi landsins og aðra fáfarna staði. Síðan eru þær alltaf í startholunum að vanda. Verði jafnvel á ferðinni vítt og breitt til að leiðbeina. Verði sýnilegar. Standi jafnvel vaktir á hættulegum stöðum í samráði við hreppstjóra og lögreglu. Virkt forvarnarstarf!
 
Framlag, ósundurliðað 
=500,000,000,-
 
Alls allur pakkinn fimm milljarðar króna
 
Rúsínan í pylsuendanum
 
Svo er það rúsínan í pylsuendanum. Hver á að sjá um innheimtuna? Því er fljótsvarað: Það eiga flugfélögin að gera. Hjá þeim er myljandi hagnaður af ferðamönnum sem eru komnir til að skoða landið. Eru ekkert of góðir til að sjá um smá viðvik í staðinn fyrir allan gróðann. Fyrir Ísland og komandi kynslóðir. 
 
Enginn mun njóta eins góðs af tillögum okkar í beinhörðum peningum. Þeir ættu auðvitað að hafa forystu í málinu ef vel ætti að vera. En sjálfsagt verður bent á að þetta sé óframkvæmanlegt. Þeir munu varla þekkja sinn vitjunartíma ótilneyddir. En hver veit!
 
Hallgrímur Sveinsson,
Bjarni G. Einarsson,
Guðmundur Ingvarsson
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...