Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Dacia Logan er með 1.500 rúmsentímetra dísilvél sem skilar 90 hestöflum.
Dacia Logan er með 1.500 rúmsentímetra dísilvél sem skilar 90 hestöflum.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 13. júní 2017

Einhver hagstæðustu kaup á rúmgóðum fjölskyldubíl

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Í september 2014 prófaði ég Dacia Logan þegar hann kom fyrst á markað hér á landi, en þá kostaði hann frá 2.790.000. Nú, þremur árum seinna, prófaði ég bílinn aftur, breytingar eru ekki miklar, en samt þó nokkrar og verðið er komið niður í 2.540.000.
 
Sjáanlegar breytingar eru nánast engar, en það eina sem ég sá utan frá voru nýir hjólkoppar, en var að vonast eftir stærri hliðarspeglum. 
 
Breytt staðsetning flauturofa
 
Öðru máli gegnir með mælaborðið, þar er töluverð breyting, komin snertiskjár fyrir útvarpið sem er bakkmyndavél og leiðsögukerfi og bluetooth. Vélin er sú sama og enn er fimm gíra gírkassi (hefði viljað hafa hann 6 eða 7 gíra). Það sem mörgum mislíkaði var staðsetning flaututakkans í fyrri árgerðum sem var á endanum á ljósatakkanum (rétt eins og í traktorum og mörgum vörubílum). Nú geta þeir sem ósáttir voru verið ánægðir því að nú er flaututakkinn kominn í stýrið eins og er á flest öllum öðrum bílum.
 
Eyðslan á bílnum er brandari
 
Í fyrra skiptið þegar ég prófaði þennan bíl var dísillítrinn töluvert dýrari en hann er núna. Lagði ég þá prufuaksturinn upp með því að spara sem mest eldsneyti og þar af leiðandi var ég með „ecko“ sparnaðartakkann á allan tímann. Nú breytti ég um og byrjaði strax á að slökkva á ecko-­takkanum, núllstillti aksturstölvuna. Eftir 50 km akstur án þess að reyna neitt að spara dísilolíuna var eyðsla mín 4,9 lítrar á hundraðið á meðalhraða upp á 65 km. Þegar ég skilaði bílnum hafði ég ekið 75 km á meðalhraða upp á 47, endaði meðaleyðsla mín í 5,0 lítrum á hundraðið án þess að hafa verið neitt að spara eldsneyti. Í fyrri prufuakstrinum fyrir þrem árum var ég að eyða 4,0 lítrum með ecko-stillinguna á.
 
Fannst bíllinn latur fyrir þrem árum
 
Miðað við þessar tvær prófanir þá nefndi ég það að í fyrri prófuninni hafði mér fundist bíllinn vera latur af stað í fyrsta og öðrum gír, meðan ég var að keyra hann á ecko-stillingunni. Nú fannst mér hann ekki svo latur, þó að hann mætti vissulega vera 10–20 hestöflum kraftmeiri. Var ég mun sáttari við bílinn núna.
Eins og með flesta bíla sem ég prófa fer ég á malarveg til að prófa bíla. Dacia Logan liggur vel á malarvegum og kemur skriðvörnin hæfilega seint inn fyrir minn smekk, en það sem ég tók sérstaklega eftir var hversu mikið smásteinahljóð var undir bílnum á hörðum malarveginum. Hefði þurft að setja meiri tektilvörn undir bílinn eða að sprauta undir hann hljóðeinangranlegu efni. Fjöðrunin er fín bæði á möl og í holóttu malbikuðu vegunum sem ég keyrði.
 
Mikið af aukahlutum
 
Samkvæmt sölubæklingi er hægt að fá ýmsa aukahluti með bílnum. Síst af þeim öllum mundi ég taka dráttarkrók þar sem að 1.500 rúmsentímetra (cc) dísilvél er ekki burðug til að draga mjög þungt. Þar tala ég af reynslu þar sem ég átti Dacia Duster með sömu vél og dró oft kerru á eftir mér. Hins vegar mæli ég með skutmottu í farangursrýmið og þverbogum á þakið. Á bogana er hægt að setja farangursbox, reiðhjólagrind, skíðaboga eða jafnvel festingu fyrir kajak. 
 
Að lokum, breytingarnar eru ekki miklar, en að mínu mati er þessi bíll bestu kaup í dag á rúmgóðum fjölskyldubíl. Ódýr í rekstri og ótrúlega rúmgóður.
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Farangrusrými 573 ltr.    
Hæð 1.550 mm
Breidd 1.733 mm
Lengd 4.492 mm
Hæð undir lægsta punkt 153 mm
 

 

7 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...