Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Vaxandi þrýstingur og áróður hefur verið í gangi í Bretlandi frá veganfólki um að allur almenningur dragi úr neyslu á kjötvörum.
Vaxandi þrýstingur og áróður hefur verið í gangi í Bretlandi frá veganfólki um að allur almenningur dragi úr neyslu á kjötvörum.
Fréttir 6. desember 2018

Breskir bændur óttast aðför veganfólks að kjötframleiðslu í Bretlandi

Höfundur: HKr.
Breskir bændur hafna alfarið hugmyndum veganfólks um að 14% skattur verði lagður á rautt kjöt og 79% skattur á unnar kjötvörur af heilsufarsástæðum. Er þetta talin enn ein birtingarmynd þess að öfgasinnar í röðum veganfólks vilji þvinga sínar neysluvenjur upp á alla aðra. 
 
Fram kemur í frétt Farmers Weekly að fullyrt sé í rannsókn Oxford-háskóla að hægt sé að spara 6.000 mannslíf í Bretlandi með því að draga úr neyslu á rauðu kjöti með 14% skattlagningu og 79% skattlagningu á unnar kjötvörur. Rannsókninni var stýrt af Marco Springmann sem starfar við svonefnt Oxford Martin-verkefni um framtíð matvæla hjá Nuffield-deild Population Health hjá Oxford-háskóla. Springmann segir að heilsulöggjöf í þessa veru myndu senda öflug skilaboð til neytenda og létti um leið álagi á heilbrigðisstofnunum og náttúrunni. Hann bætti þó við að enginn vildi að yfirvöld skikkuðu fólk um hvað það mætti og mætti ekki borða.
 
„Hins vegar sýna okkar niðurstöður það skýrt að neysla á rauðu og unnu kjöti hefur kostnað í för með sér. Ekki bara fyrir heilsu fólks á jörðinni, heldur einnig fyrir heilbrigðiskerfið og efnahagslífið.“
 
Vaxandi þrýstingur hefur verið á að fólk dragi úr neyslu á kjötvörum. Veggspjöld hafa m.a. verið sett upp á undanförnum vikum á neðanjarðarbrautarstöðvum í London af baráttuhópi fólks sem hefur skilgreint nóvembermánuð sem veganmánuð. 
 
Getur haft alvarlegri áhrif á breskan landbúnað en Brexit
 
Á landbúnaðarráðstefnunni Northern Farming, sem haldin var í Hexam í byrjun nóvember, sagði landbúnaðarhagfræðingurinn Alan Buckwell að breyttar neysluvenjur gætu jafnvel haft alvarlegri áhrif á breskan landbúnað en Brexit og útganga Breta úr Evrópusambandinu, sér í lagi fyrir dýraeldi sem ekki væri skilgreint innan öruggs ramma. 
 
Robert Addisson, framkvæmda­stjóri Hexam and Northern Mart-uppboðshússins, við skosku landamærin, sagði að skattar myndu eyðileggja kjötframleiðsluna sem væri afar mikilvæg atvinnugrein fyrir héraðið. Hjá Northern Mart starfa 45 manns en í gegnum uppboðshúsið fara 25.000 nautgripir og 100.000 fjár á ári. 
 
Veganfólk snýr skoðunum á haus
 
„Ég hef áhyggjur af þessu,“ sagði Addison, „því að á sama tíma er fjöldi vísindamanna sem segir að kjötneysla sé góð fyrir heilsuna. Það virðist vera að skoðunum sé snúið á haus á fimm mínútna fresti af veganfólki sem virðist fá síaukið rými í fjölmiðlum.“
 
Richard Findlay, formaður NFU livestock, sagði að breskir bændur myndu halda áfram að útvega örugg og rekjanleg matvæli á góðu verði fyrir fólk sem vildi njóta heilsusamlegs og fjölbreytts mataræðis með nauðsynlegum vítamínum. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...