Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Rafgeymavaktarar. Sá minni fyrir litla rafgeyma, en sá stærri hentar flestum stærri rafgeymum.
Rafgeymavaktarar. Sá minni fyrir litla rafgeyma, en sá stærri hentar flestum stærri rafgeymum.
Á faglegum nótum 13. október 2015

Á athugunarlistanum fyrir veturinn

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Á haustin þegar gengið er frá tækjum og vélum í vetrargeymslu er gott að hafa í huga nokkur atriði sem getur komið tækjunum vel og getur lengt töluvert líftíma tækja og véla.
 
Þetta á m.a. við hjólbarða og rafgeyma sem mikilvægir eru í ökutækjum. 
 
Tæki með hjólbörðum
 
Tæki með loftfylltum hjólbörðum á aldrei að geyma standandi á grasi vegna þess að þá eru miklar líkur á að dekkin fúni. Ef enginn annar staður er til að geyma tækið en á grasi er gott að setja flatan stein, hellu eða spýtu undir hjólin. Ekki er verra að setja tækið á búkka svo að þunginn sé ekki allur á dekkjunum og einnig að við langa stöðu tækja getur komist raki inn í legur hjóla og hjólalegur geta skemmst. Annað dæmi er um að vélsleði sem stóð á túni í nokkurn tíma og var gangsettur, en þegar átti að keyra af stað var beltið eftir á grasinu og vélsleðinn fór ekki nema hálfa lengd vélsleðans vegna þess að beltið hafði fúnað við að standa á grasinu og slitnaði. Það er ekkert óeðlilegt að hjólbarðar missi loftþrýsting, sérstaklega í slöngulausum dekkjum, felgur orðnar gamlar, farnar að ryðga og tærast þá lekur oft út loft á milli dekks og felgu. Passa þarf vel upp á að dekk standi aldrei undir þunga loftlaust (sprungið dekk), þá tekur það mjög stuttan tíma að eyðileggjast þar sem að í dekkið myndast brot og þræðirnir inni í dekkinu rofna og styrkurinn er farinn úr dekkinu. 
 
Hægt er að lengja líf rafgeyma mikið með réttri meðferð
 
Rafgeymavandamál kannast margir. við. Ég hafði samband við Arnar Tryggvason, vörustjóra hjá N1, og fékk hjá honum góðar upplýsingar um meðferð rafgeyma. Þegar tæki fer í lengri geymslu skal aftengja geymapóla, í það minnsta pólinn og hlaðið geyminn á 2 mánaða fresti með viðurkenndu góðu hleðslutæki eða hafið hann tengdan við vaktara af réttri stærð. Ekki láta rafgeyma standa á köldu gólfi innandyra, best er að hafa sama hitastig á öllum rafgeyminum. Rafgeymi skal geyma á köldum stað til að minnka sjálfafhleðslu. Fylgjast þarf vel með vatni á neyslurafgeymum. Hafa póla vel hreina og smurða með pólafeiti og helst lakka yfir með pólalakki, það minnkar hættu á „spanskgrænu“. Ef að tæki er ítrekað rafmagnslaust skal gæta að eftirfarandi: 
 
Er hleðsla nóg? − Er tæki keyrt nógu lengi til að vinna upp hleðslu? − Er lekastraumur of mikill? (eðlilegur lekastraumur í bíl er um 0,03 mAmp). Muna þarf að hlaða vel rafgeymi fyrir notkun eftir langa geymslu. Hafa ber í huga að sjálfafhleðsla rafgeymis getur verið allt að 10% á mánuði.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...