Volkswagen ID.7 GTX er einn af fáum skutbílum sem eru í boði á íslenskum bílamarkaði. Þetta er afar sportlegt ökutæki sem er þægilegt í akstri og með vel útfærða hönnun.
Volkswagen ID.7 GTX er einn af fáum skutbílum sem eru í boði á íslenskum bílamarkaði. Þetta er afar sportlegt ökutæki sem er þægilegt í akstri og með vel útfærða hönnun.
Mynd / ál
Vélabásinn 19. ágúst 2026

Rúmgóður rafknúinn skutbíll

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Þeir sem vilja rúmgóðan fjórhjóladrifinn rafbíl en vilja ekki eiga þátt í því að bæta enn einum jepplingnum í bílaflota landsmanna geta tekið til skoðunar Volkswagen ID.7 GTX sem er til sölu hjá Heklu. Innra rými bílsins jafnast á við jeppa, en bíllinn er aðeins lægri og sportlegri.

Þó svo að hér sé um að ræða fólksbíl þá er þetta enginn smábíll, heldur er ID.7 4.961 millimetri að lengd, eða 36 millimetrum lengri en Toyota Land Cruiser 250. Á móti kemur er ID.7 118 millimetrum grennri og 374 millimetrum lægri en áðurnefndur jeppi. Eitthvað er til af rafknúnum skutbílum, en sjaldgæft er að íslensk bílaumboð taki þá í almenna sölu. ID.7 fyllir í það tómarúm sem Volkswagen Passat skilur eftir sig, en innflutningur á þeim bílum er hættur að borga sig vegna mikilla gjalda sem lögð eru á jarðefnaeldsneytisbíla.

Dýpt í bláa litnum

Að utan sver ID.7 sig vel í ætt við aðra Volkswagen-bíla, en að framan má sjá ljós sem eru með álíka formi og öðrum nýjum rafbílum frá þessum framleiðanda. Enn fremur liggur ljósrönd milli aðalljósanna sem er brotinn upp í miðjunni með stóru VW merki. Ólíkt ID.3 er þessi bíll með nokkuð langt húdd, eða aðeins lengra en er á Skoda Superb.

Mjúkar línur draga augun eftir hlið bílsins og til þess að gera ökutækið enn rennilegra eru hurðahandföngin innfelld. Ökutækið sem blaðamaður fékk afnot af var í dökkbláum málmlit með svart þak. Mikil dýpt er í bláa litnum og virðist hann vera af ólíkum tóni eftir því frá hvaða sjónarhorni horft er á bílinn. Þá er hann afar dökkur þannig að svarta þakið sker sig ekki mikið úr. Þakbogarnir gefa vísbendingu um að þetta sé ökutæki sem ætlað er að flytja fólk og farangur. Bakhliðin staðfestir það enn frekar, enda er bíllinn með stórt og langt skott. Þvert yfir skotthlerann nær rauð ljósrönd sem tengir afturljósin á hvoru horni. Í miðjunni er VW merki upplýst í rauðum lit. Ofan við afturrúðuna er myndarlegt vindskeið sem gefur ökutækinu sportlegan blæ.

Innra rýmið er smekklega hannað, en helst er hægt að gagnrýna nánast algjöran skort á hefðbundnum tökkum.

Óvenju þægileg fjöðrun

Innréttingin er nútímaleg og er naumhyggjan allsráðandi. Í miðju mælaborðinu er stór snertiskjár þar sem nánast öllu er stjórnað, fyrir utan aksturinn sjálfan. Hér gagnrýnir undirritaður þá stefnu sem Volkswagen, og margir aðrir bílaframleiðendur hafa farið, sem miðar að því að útrýma öllum tökkum. Í þessum bíl er til að mynda ekki hægt að stjórna í hvaða átt miðstöðvaropin framan á mælaborðinu blása, nema í gegnum valmynd í tölvuskjánum.

Neðan við skjáinn eru snertistikur sem hægt er að renna fingrinum eftir til þess að stjórna hljóðstyrk útvarpsins sem er afturför miðað við gamla góða volume-hnúðinn. Þessu er bjargað að miklu leyti með aðgerðastýri þar sem ökumaðurinn getur skipt um lag eða hækkað í tónlistinni án þess að beina athyglinni að snertiskjánum. Þegar kemur að akstri er þessi rafbíll svipaður flestum öðrum rafknúnum ökutækjum að því leyti að öll 340 hestöflin eru aðgengileg um leið og stigið er á inngjöfina. Eins er enginn titringur eða hávaði frá jarðefnaeldsneytismótor.

Rétt eins og aðrir rafbílar þá er þessi bíll býsna þungur miðað við stærð, eða 2.307 kílógrömm samkvæmt upplýsingum frá umboðinu. Vegna mikillar þyngdar er algengt að rafmagnsbílar séu með stífa fjöðrun, en svo er ekki í tilfelli ID.7. Þvert á móti er bíllinn svo mjúkur og þægilegur að helst væri hægt að trúa því að undir honum sé loftpúðafjöðrun, en svo er ekki. Lítið mál er að fara yfir hraðahindranir á aðeins meiri ferð en til er ætlast.

Farangursrýmið er 605 lítrar með aftursætin uppi, eða 1.714 lítrar þegar sætin eru felld niður.

Enginn niðurskurður á farangri

Undirritaður nýtti sér að vera með skutbíl til reynslu og skellti sér í tjaldútilegu. Þar sem farangursrýmið er 605 lítrar með aftursætin uppi eða 1.714 lítrar þegar sætin eru felld niður var lítið mál að taka með allan nauðsynlegan búnað í tveggja nátta glæsilegu (e. glamping). Ekki er hægt að segja annað en að ID.7 hafi reynst afar vel í því ferðalagi, enda akstursdrægnin á fullhlaðinni rafhlöðu svo mikil að engin ástæða var til að finna fyrir drægnikvíða. Samkvæmt framleiðanda á 86 kílóvattstunda rafhlaðan að koma bílnum 582 kílómetra og samkvæmt reynslu undirritaðs má áætla að raundrægnin á góðum degi sé ekki langt frá þeirri tölu.

Akstursaðstoðin sem er byggð inn í bílinn er með því besta sem gerist, en ökumaðurinn þarf í raun ekki að gera mikið annað en að vera tilbúinn að grípa inn í í neyð. Þegar akreinaaðstoðin er virkjuð helst bíllinn vel inni á miðri akrein og fjarlægðartengdi hraðastillirinn heldur mátulegri fjarlægð frá næsta bíl. Þá fylgist bíllinn með hámarkshraðanum á hverjum stað og stillir hraðastillinn í samræmi við það. Eins hægir bíllinn sjálfkrafa á sér þegar hann veit að fram undan eru krappar beygjur, hringtorg eða T-gatnamót. Það eina sem hann gerir ekki sjálfur er að stoppa á rauðum ljósum.

Að lokum

Ekki er hægt að segja annað en að Volkswagen ID.7 GTX sé vel heppnaður skutbíll sem er frábær kostur fyrir þá sem vilja fjórhjóladrifið ökutæki án þess að fá sér jeppling eins og annar hver landsmaður. Grunnverðið á bílnum með endurgreiðslu úr Orkusjóði er 9.490.000 krónur. Eini aukahluturinn á prufuakstursbílnum var tvílitur (svart þak) sem kostar 190.000 krónur.

Skylt efni: rafbílar | vélabásinn | VW

Rúmgóður rafknúinn skutbíll
Vélabásinn 19. ágúst 2026

Rúmgóður rafknúinn skutbíll

Þeir sem vilja rúmgóðan fjórhjóladrifinn rafbíl en vilja ekki eiga þátt í því að...

Glæsilegur og aflmikill  fjölskyldu- og ferðabíll
Vélabásinn 30. júní 2026

Glæsilegur og aflmikill fjölskyldu- og ferðabíll

Reynsluakstur á fjórhjóladrifnum Tesla Model Y Premium Long Range, rafbíl sem lo...

Hinn sanni sportjeppi
Vélabásinn 20. ágúst 2025

Hinn sanni sportjeppi

Að þessu sinni er tekinn fyrir Porsche Cayenne E-Hybrid, sem er stór sportjeppi ...

Ódýrari pallbíll vandfundinn
Vélabásinn 22. maí 2025

Ódýrari pallbíll vandfundinn

Bændablaðið fékk til prufu nýjan KGM Musso, sem er að öllum líkindum ódýrasti ný...

Einstakur sjö sæta rafbíll
Vélabásinn 7. maí 2025

Einstakur sjö sæta rafbíll

Bændablaðið fékk til prufu rafmagnsbílinn Peugeot E-5008 sem hefur þann kost hel...

Gerir út af við drægnikvíða
Vélabásinn 24. apríl 2025

Gerir út af við drægnikvíða

Hér er einblínt sérstaklega á hvernig Tesla Model 3 Long Range reynist í landsho...

Tékkarnir klikka ekki
Vélabásinn 27. mars 2025

Tékkarnir klikka ekki

Bændablaðið fékk til prufu nýja kynslóð af hinum vinsælu Skoda Kodiaq, sem er st...

Góður í dreifbýli og borg
Vélabásinn 13. mars 2025

Góður í dreifbýli og borg

Bændablaðið fékk til prufu nýjan rafmagnsbíl af gerðinni Polestar 3. Þessi bílat...