Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Hulda og Tyrfingur. Spunavél í baksýn.
Hulda og Tyrfingur. Spunavél í baksýn.
Mynd / Brynjólfur G. Brynjólfsson
Líf&Starf 12. október 2017

Uppspuni er ný spunaverksmiðja sem vinnur íslenska ull

Höfundur: Jóhanna E. Pálmadóttir og Emma Eyþórsdóttir
Föstudaginn 1. september mæltum við okkur mót, ásamt körlum okkar, að Lækjartúni, sem er rétt austan við Þjórsá, hjá hjónunum Huldu Brynjólfsdóttur og Tyrfingi Sveinssyni en þau eru bændur  þar.  Erindið var að fá að skoða litla spunaverksmiðju sem hjónin eru að koma á fót og er um það bil að hefja starfsemi.
 
Umræða hefur verið undanfarin ár um að stofna þyrfti slíka verksmiðju fyrir handverksfólk og þá sem áhuga hafa á að láta vinna eigin ull í litlu magni og er þetta því spennandi framtak. Ævintýrið hófst þegar þau hjónin voru að spjalla um hvernig mætti nýta húsnæði sem þau áttu en var ekki í notkun og í framhaldinu kom upp hugmynd um svokallaða „Mini-Mill“ verksmiðju. Tyrfingur settist strax við tölvuna og leitaði að slíkri verksmiðju. Hún fannst á Prince Edward Island í  Kanada og er af tegundinni Belfast Mini-Mill sem framleiðir vélasamstæður fyrir ullarvinnslu í smáum stíl. 
 
Hulda við vél sem tvinnar og þrinnar bandið.
 
Undirbúningur fólst meðal annars í heimsókn til framleiðandans í Kanada og spuna á prufum af íslenskri ull þar, áður en ákvörðun um kaup á vélasamstæðu var tekin. Sölunni var fylgt eftir hjá framleiðanda með aðstoð við uppsetningu vélanna hér.  Tyrfingur er sjálfur vélsmiður og á drjúgan hlut í að koma vélunum í gang og lagfæra það sem þurfti í upphafi.
 
Framtakið var styrkt af Framleiðnisjóði landbúnaðarins, þróunarsjóði sauðfjárræktarinnar, Sambandi sveitarfélaga á Suðurlandi og safnað var fé á netsíðunni indiegogo.com. 
 
Þvegin ull í þurrkbökkum.
 
Vélarnar komu til landsins í júní og voru settar í gang 1. júlí undir eftirliti fulltrúa frá framleiðendum.  Síðan þá hefur Hulda æft sig og unnið að því að ná bandinu þannig að það sé frambærilegt, eins og hún orðar það. Hugmyndin er að hafa formlega opnun þegar aðstaðan er öll komin upp og framleiðslan komin á fullt en prófanir hafa gengið vel. Hulda hefur náð góðum tökum á vinnslunni og við skoðuðum ýmsar gerðir af bandi sem hún hefur þegar náð að búa til. Verksmiðjan getur unnið allt niður í eitt kíló í einu þótt tvö sé betra, eins og Hulda sagði.
 
Verskmiðjan samsett af 13 vélum
 
Verksmiðjan er samsett af alls 13 vélum sem ná yfir allan ferilinn að breyta ull í band. Hægt er að taka gróflega ofan af ullinni með svonefndri hárskilju sem er upphaflega hönnuð til að vinna með geitafiðu. Hún tekur burt grófasta togið, snepla og annað rusl sem er hægt að fjarlægja.  Með þessu móti fæst mýkra band en ella. Hægt er að velja um grófleika á bandið og einnig er hægt að tvinna það og þrinna allt eftir þörfum. Hulda hefur hingað til aðallega unnið með ull af fullorðnu fé og kom verulega á óvart hversu undurmjúkt það var og níðsterkt.  Vörumerki framleiðslunnar er Uppspuni en mismunandi bandgerðir munu fá hver sitt heiti.
 
Kembivélin.
 
Hægt að fá reyfin unnin eftir óskum hvers og eins
 
Nú þegar getur fólk sent til þeirra reyfi og fengið það unnið eftir ósk hvers og eins. Hægt er að fá reyfið unnið í lyppur og þá er það tilbúið í spuna eða fullunnið í band. Býður þetta upp á óendanlega möguleika á nýtingu á ull af uppáhaldskindum eða heilli hjörð. Hjónin eru með sauðfjárbú og hugmyndin er að vinna eigin ull í verksmiðjunni og auka þannig verðmæti ullarinnar. Jafnframt verður möguleiki á að kaupa ull af öðrum bændum til vinnslu. 
 
Ekki er enn komið í ljós hversu mikil afköstin geta orðið en hafa þarf í huga að þetta er fyrst og fremst aðstaða til vinnslu í litlum einingum en ekki hefðbundin verksmiðjuframleiðsla.  Margir hafa spurst fyrir um vinnslu á eigin ull eftir að fréttist af þessu framtaki og svo virðist sem töluverður markaður geti orðið fyrir ullarvinnslu af þessu tagi.
 
Hulda leggur áherslu á að eitt af markmiðunum með spunaverksmiðjunni sé að auka virðingu fólks fyrir ullinni sem hráefni en til þess að fá góða vöru þarf hráefnið að vera gott. Ekki er hægt annað en að fagna þessu framtaki sem á vonandi eftir að nýtast bæði fyrir bændur og handverksfólk og skapa aukna fjölbreytni í nýtingu á íslenskri ull sem er sannarlega jákvætt.
 
Jóhanna E. Pálmadóttir
og Emma Eyþórsdóttir

6 myndir:

Skylt efni: spuni | spunaverksmiðja

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!
Líf&Starf 19. apríl 2022

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!

Nú hefur leikfélag Hólmavíkur sett upp farsann Bót og betrun eftir Michael Coone...

Ef væri ég gullfiskur!
Líf&Starf 28. mars 2022

Ef væri ég gullfiskur!

Spéfarsinn „Ef væri ég gullfiskur“ eftir Árna Ibsen, í flutningi leikfélags Umf....

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði
Líf&Starf 16. mars 2022

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði

Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði frumsýndi leikritið „Ekki um ykkur” eftir Gun...

Verndarar láðs & lagar
Líf&Starf 14. mars 2022

Verndarar láðs & lagar

Þegar verndarar láðs og lagar ber á góma er gaman að rekast á þá þar sem maður á...

Flestir gullsmiðir voru bændur
Líf&Starf 28. febrúar 2022

Flestir gullsmiðir voru bændur

Árið 2011 hlaut Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður þakkarviðurkenningu FKA – Fé...

Hann á það skilið? Á hann það skilið?
Líf&Starf 2. febrúar 2022

Hann á það skilið? Á hann það skilið?

Í kaflanum „Misseristalið og tildrög þess“ eftir Þorkel Þorkelsson, í 1. tbl. Sk...