Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Vel ræktaður lerkiskógur, bjartur og fallegur með ríkulegum botngróðri.
Vel ræktaður lerkiskógur, bjartur og fallegur með ríkulegum botngróðri.
Mynd / Pétur Halldórsson
Á faglegum nótum 1. september 2022

Rússalerki

Höfundur: Pétur Halldórsson

Lerki er ættkvísl sumargrænna barrtrjáa sem vex í barrskóga­ beltinu á norðurhveli jarðar eða til fjalla á suðlægari slóðum.

Til ættkvíslarinnar teljast 10-15 tegundir en lerki er af þallarætt (Pinaceae) og ættbálkinum Pinales.

Fyrrum var lerki kallað lævirkjatré eða jafnvel barrfellir enda ólíkt öðrum barrtrjám sem við þekkjum að því leyti að það fellir barrið á haustin.

Af lerkitegundum hafa nokkrar verið reyndar hérlendis, aðallega þó síberíulerki, sem eins og heitið gefur til kynna er ættað frá Síberíu og er einkennistré í víðáttumiklum skógum Rússlands og Síberíu. Reynd hafa verið ýmis kvæmi lerkis frá Rússlandi og Síberíu og hafa þau rússnesku, sem við köllum rússalerki, reynst betur hérlendis. Þau síberísku þola mjög illa umhleypinga og hlýnandi loftslag enda aðlöguð köldum, staðviðrasömum vetrum fjarri sjó. Rússalerki er m.ö.o. ekki sérstök tegund, heldur samheiti yfir þau kvæmi síberíulerkis sem eru í Úralfjöllum og vestan við þau. Rússalerki hefur reynst dýrmætt í skógrækt á Norður- og Austurlandi og jafnvel inn til landsins í öðrum landshlutum en þrífst illa í umhleypingum við sjávarsíðuna, sérstaklega sunnan- og vestanlands.

Rússalerki (Larix sibirica var. sukaczewii)

Stórvaxin trjátegund og gæti náð a.m.k. 30 metra hæð hérlendis. Það er ein þeirra trjátegunda sem nú þegar hafa náð yfir 25 metra hæð á Íslandi. Þetta er oftast einstofna, fremur beinvaxið tré með mjóa krónu en erfið vaxtarskilyrði geta haft þau áhrif á vaxtarlagið að trén myndi fleiri en einn stofn og stofnar orðið nokkuð kræklóttir.

Börkur á ríflega áttatíu ára gömlu lerki í Guttormslundi í Hallormsstaðaskógi

Lerki vex hratt í æsku en eftir þrítugt fer að draga úr vexti þess. Í nytjaskógrækt hérlendis er nú talið skynsamlegt að nytja lerki fáeinum áratugum fyrr en áður var talið, eða um 50-60 ára aldur. Sem frumherjategund í skógrækt hefur lerki þann kost að vera ljóselsk tegund en ungplöntur þola illa samkeppni við gras.

Það vex hins vegar vel í rýrum jarðvegi enda í góðu samfélagi við örverur og sveppi sem gefa því næringu. Lerki gefur gott timbur sem hefur innbyggða fúavörn og hentar því vel utanhúss.

Vorkal

Helstu veikleikar rússalerkis eru vorkal. Frá heimkynnum sínum í Rússlandi og Síberíu er það aðlagað því að veturinn standi stöðugur fram á vor og síðan komi vorið fyrir alvöru. Hérlendis geta komið hlýindakaflar síðla vetrar og snemma vors sem lerkið túlkar sem svo að nú sé vorið komið. Svo koma hretin sem við þekkjum öll vel og þá getur farið illa fyrir lerkitrjám sem eru komin í vöxt. Vorkal eftir vetrarhlýindi veldur stundum skemmdum og vaxtartapi hjá rússalerki.

Eftir því sem loftslag hlýnar er líklegt að slíkar skemmdir verði tíðari. Því er skynsamlegt að gróðursetja nú rússalerki hærra í landinu en gert hefur verið hingað til. Enn um sinn verður rússalerki þó besta tegundin sem völerátilaðræktaírýrulandiá Norður- og Austurlandi.

Kynbætur

Til að bregðast við þessari þróun hefur um árabil verið unnið að kynbótum á rússalerki og tilraunum til blöndunar úrvalstrjáa af rússalerki og evrópulerki. Þessi blöndun hefur borið þann árangur að nú er í ræktun hjá Skógræktinni lerkiblendingur sem kallast 'Hrymur'. Fræ af þessum blendingi eru ræktuð með stýrðri víxlun í stóru gróðurhúsi í Vaglaskógi. 'Hrymur' sýnir kosti beggja tegundanna en síður galla þeirra. Hann vex mun betur en rússalerki en þrífst almennt betur hérlendis en evrópulerki. Þá hefur komið í ljós að hann vex einnig vel á réttum stöðum við suður- og vesturströndina.

Með hlýnandi veðri í framtíðinni gæti evrópulerki líka orðið mikilvæg trjátegund í íslenskri skógrækt þar sem skilyrði verða best, einkum á Suðausturlandi til að byrja með.

Skylt efni: lerki | Skógrækt

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...