Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Olil Amble og Bergur Jónsson.
Olil Amble og Bergur Jónsson.
Á faglegum nótum 2. janúar 2017

Mikill fjöldi búa náði afgerandi góðum árangri

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður í hrossarækt hjá RML
Eins og mörgum er í fersku minni tilnefndi Fagráð í hrossarækt alls 16 ræktunarbú til sérstakrar viðurkenningar fyrir framúrskarandi ræktunarárangur á árinu 2016. Heiðursviðurkenninguna  ræktunarbú ársins 2016 hlutu Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, ræktun þeirra Bergs Jónssonar og Olil Amble, á uppskeruhátíð hestamanna þann 5. nóvember síðastliðinn.
 
Í vali sem þessu eru margir til kallaðir en fáir útvaldir. Mikill fjöldi búa náði afgerandi góðum árangri á sýningaárinu 2016. Val Fagráðs er því aldrei auðvelt, s.s. hvar á að draga mörkin hverju sinni í fjölda tilnefndra búa en þar er ekki um fasta tölu að ræða milli ára enda oft lítið sem aðskilur eftirtektarverð bú og árangur þeirra. Tilnefningar Fagráðs eru fyrst og síðast hvatning og verðskuldað hrós en ekki til þess gerðar að ýta undir „keppnisvæðingu“ í hrossarækt og kynbótadómum. Kynbótadómar hrossa eru alltaf fyrst og síðast dómar búfjár og grunntilgangurinn að afla upplýsinga sem nýtast öllum ræktendum jafnt og eru grunnur að kynbótaspá/kynbótamati íslenskra hrossa hvar sem er í heiminum. Því fleiri hross sem dæmd eru því sterkari og öruggari gagnaöflun og spá um gildi gripa fyrir ræktunarstarfið.
 
Til að afmarka val ræktunarbúa og leiða að niðurstöðu eru fyrst tilgreind öll hrossaræktarbú sem sýnt hafa fjögur eða fleiri hross í fullnaðardómi á árinu. Að auki verða minnst tvö að hafa náð aðaleinkunn 8,0 eða hærra. Þau bú sem þola þessa síu hafa náð afar athygliverðum árangri. Þá tekur við röðun búa fyrir meðalaldur sýndra hrossa, röðun eftir meðaleinkunn og röðun eftir fjölda sýndra hrossa. Ákveðið var í ár að breyta reiknireglu þeirri sem notuð er við valið. Búum hefur verið raðað upp eftir meðalaldri sýndra hrossa, meðaleinkunn þeirra og fjölda. Nú var ákveðið að leiðrétta einkunnir eftir aldri líkt og gert er við kynbótamatsútreikninga og taka á þann hátt tillit til mismunandi aldurs. Þetta gerir allar einkunnir samanburðarhæfar áður en búunum er svo raðað upp eftir leiðréttum einkunnum og fjölda sýndra hrossa.
Þá reiknast afkvæmaverðlaunahross (stóðhestar og hryssur) til stiga fyrir sína ræktendur samkvæmt föstum reglum þar um.
 
Í meðfylgjandi töflu eru öll búin, 72 að tölu, sem uppfylltu kröfur um fjögur fulldæmd hross og minnst tvö yfir 8 á sýningarárinu 2016. Dálkarnir sýna meðaltal aðaleinkunnar (ekki aldursleiðrétt), meðalaldur sýndra hrossa og fjölda fullsýndra hrossa, þ.e. fjölda hrossa að baki meðaltölum. Þá er sérstaklega tilgreint í síðasta dálknum ef afkvæmahross leggja til stiga fyrir búið á árinu.
 
 Sérstakar tilnefningar Fagráðs
 
Til upprifjunar hlutu 16 bú sérstaka tilnefningu Fagráðs á liðnu hausti. Í stafrófsröð þessi:
 
  • Árbæjarhjáleiga II / Marjolijn Tiepen, Kristinn Guðnason og fjölsk
  • Berg / Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson
  • Efsta-Sel / Hilmar Sæmundsson og Daníel Jónsson
  • Garðshorn / Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
  • Hamarsey / Hannes Sigurjónsson og Inga Cristina Campos
  • Hof / Lilja Sigurlína Pálmadóttir
  • Hvolsvöllur / Ásmundur Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir
  • Ketilsstaðir/Syðri-Gegnis­hólar / Bergur Jónsson og Olil Amble
  • Kirkjubær / Ágúst Sigurðsson, Unnur Óskarsdóttir og fjölsk.
  • Kjarnholt I / Guðný Höskuldsdóttir og Magnús Einarsson
  • Koltursey / Elías Þórhallsson, Pétur Jónsson og fjölskyldur
  • Prestsbær / Inga og Ingar Jensen
  • Rauðalækur / Eva Dyröy og Guðmundur Friðrik Björgvinsson
  • Skipaskagi / Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
  • Torfunes / Baldvin Kr. Baldvinsson
  • Þúfur / Gísli Gíslason og Mette Mannseth.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...