Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Of hægt miðar í heimsmarkmiðum
Líf og starf 28. september 2023

Of hægt miðar í heimsmarkmiðum

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Leiðtogafundur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) var haldinn í vikunni í New York. Tilefni hans var að knýja á um hraðari framkvæmd markmiðanna til ársins 2030. Gildistími heimsmarkmiðanna er nú hálfnaður.

Aðildarríkjum gefst tækifæri til að leggja fram og kynna svokallaðar landrýniskýrslur, þar sem greind er staða og aðgerðir í þágu heimsmarkmiðanna. Í nýjustu íslensku skýrslunni er mat stjórnvalda á stöðu landsins gagnvart markmiðunum og til samanburðar stöðumat frjálsra félagasamtaka, auk fleiri kafla. Staða Íslands og vinna í þágu heimsmarkmiða (SÞ) var kynnt á árlegum leiðtogafundi (HLPF) um heimsmarkmiðin í sumar sem leið. Sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við það tækifæri að Ísland hefði tekið nokkur afgerandi skref frá því síðasta stöðuskýrsla var kynnt árið 2019. Mætti þar til dæmis nefna stofnun Sjálfbærs Íslands og sjálfbærniráðs. Á þeim vettvangi stæði yfir vinna við mótun innlendrar stefnu um sjálfbæra þróun og ætti að ljúka fyrir árslok 2023.

Hér eru skoðuð 4 af 17 heimsmarkmiðum í ljósi íslensku landrýniskýrslunnar frá í sumar.

Heimsmarkmið 6: Hreint vatn og hreinlætisaðstaða

Í heimsmarkmiði nr. 6 er helsta áskorunin talin vera mikil þörf á endurbótum á fráveitukerfi um allt land. Einnig að endurheimta enn frekar framræst votlendi og draga þannig úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Næstu skref séu að bæta hreinsun skólps með lagabreytingum svo að stjórnvöld geti tekið þátt í kostnaði við nauðsynlegar fráveitubætur í sveitarfélögum um land allt. Byggja þurfi upp hreinlætisaðstöðu á ferðamannastöðum samkvæmt landsáætlun um uppbyggingu innviða. Framkvæma þurfi aðgerðaáætlun um endurheimt vistkerfa.

Tilmæli til stjórnvalda:

  • Krefjast þess að fyrirtæki birti upplýsingar um vatnsnotkun og áhrif sín á vatnsból í ársskýrslum.
  • Setja á fót upplýsingagátt fyrir nafnlausar tilkynningar um vatnsmengun.
  • Draga úr losun næringarefna í landbúnaði.
  • Stefna að því að ná SDG 6.6 [að vernda og endurheimta vatnstengd vistkerfi, þar á meðal fjöll, skóga, votlendi, ár, vatnsleiðandi jarðlög og vötn, innsk.blm.] á skilvirkan og sjálfbæran hátt. Styðja enn frekar við markmið stjórnvalda um kolefnishlutleysi og líffræðilegan fjölbreytileika.
  • Endurheimta votlendi þar sem við á.
  • Halda áfram að gera vatns- og hreinlætismál að forgangsverkefni í þróunarsamvinnu, sérstaklega í tengslum við fæðuöryggi, sjálfbærni og loftslagsbreytingar.
Heimsmarkmið 7: Sjálfbær orka

Helstu áskoranir varðandi sjálfbæra orku er að hlutur jarðefnaeldsneytis hefur minnkað jafnt og þétt í orkubúskap landsins undanfarna áratugi og stjórnvöld settu sér það markmið að Ísland yrði óháð jarðefnaeldsneyti árið 2050 með orkuskiptum á öllum sviðum: í lofti, á landi og á sjó.

Enn fremur er stefnt að því að endurnýjanlegir orkugjafar í samgöngum verði að minnsta kosti 40% árið 2030 og full orkuskipti í samgöngum 2040. Jafnframt er talin áskorun að tryggja örugga orkuöflun um land allt á tímum náttúruhamfara, t.a.m. af völdum veðurs, jarðskjálfta og eldgosa.

Unnið er að úrbótum á orkuafhendingarkerfum í kjölfar ítrekaðra truflana undanfarin ár.

Næstu skref eru sögð vera stækkun nets rafbílahleðslustöðva um landið og að ljúka orkuskiptum í samgöngum, ásamt því að styðja áfram við orkuskipti á landi, á sjó og í flugi. Auka þurfi sjálfbæra orkuframleiðslu til að mæta þeirri orkuþörf sem hlýst af algerum orkuskiptum.

Tilmæli til stjórnvalda:

  • Auka gagnsæi upplýsinga um orkunotkun til að draga úr orkusóun.
  • Styðja við nýsköpun í grænni orkuframleiðslu.
  • Tryggja sem besta nýtingu núverandi orkugjafa.
  • Tryggja að græn orka sem framleidd er á Íslandi sé ekki notuð til ósjálfbærrar framleiðslu.
  • Halda áfram að leggja áherslu á og tryggja þekkingu Íslands á orkuvinnslu í þróunarsamvinnu.
Heimsmarkmið 12: Ábyrg neysla og framleiðsla

Ísland stendur frammi fyrir miklum áskorunum varðandi að ná mark- miðum um sjálfbæra neyslu og framleiðslu, sbr. heimsmarkmið 12. Landið er með eitt hæsta stig landsframleiðslu á mann í Evrópu, sem er 19% yfir meðaltali ESB.

Ísland á langt í land með að draga úr myndun úrgangs, en aðeins 26% af heimilisúrgangi eru endurunnin. Ísland skortir innviði til að endurvinna megnið af heimilisúrgangi sem þýðir að hann er að mestu fluttur úr landi. 12% af byggingarúrgangi fer til urðunar en á að vera komið niður í 5% árið 2030.

Næstu skref eru að koma í veg fyrir losun og urðun lífræns úrgangs með öðrum úrgangi. Lífrænn úrgangur verði notaður til jarðgerðar. Áfram verði veitt fjármagni til verkefna sem stuðla að hringrásarhagkerfinu.

Ríkið marki sér stefnu um að fjármagna fræðsluefni um sjálfbærni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Tilmæli til stjórnvalda:

  • Taka upp sjálfbært efnahagskerfi, eins og „kleinuhringjahagfræðilíkanið“ sem mælir velferð landsins umfram landsframleiðslu.
  • Hvetja til sjálfbærrar neytendahegðunar með fræðslu, með því að bæta vöruupplýsingar og -merkingar og tryggja sanngjarna verðlagningu.
  • Innleiða rétt til „viðgerðarstefnu“ (e. repair policies) líkt og í öðrum ESB-löndum og bjóða upp á hvata fyrir viðgerðarhæfar vörur, þar með talið sérstaka skattaívilnun á neysluskatt (VSK) fyrir allar notaðar og viðgerðarhæfar vörur.
  • Þróa einkunnakerfi fyrir bíla út frá mengunaráhrifum þeirra og skattleggja þá í samræmi við það. Takmarka auglýsingar fyrir bíla með lága einkunn. Endurvinna alla hluta bíla og hætta að urða það sem ekki eru úr málmi.
  • Rannsaka langtímaáhrif úrgangsurðunar á Íslandi.
  • Þróa staðlað lífsferilsmat fyrir aðfangakeðjur og búa til stefnur og  áhrif fyrir fyrirtæki sem uppfylla ekki slíkar viðmiðunarreglur um sjálfbærni.
  • Setja í lög að heimila einungis innflutning á vörum með tiltekna viðgerðarhæfni og bjóða upp á einfaldaðar upplýsingar fyrir neytendur til að auðvelda þeim að taka upplýstar ákvarðanir.
  • Stuðla að framleiðslu á sjálfbærum, hágæða innlendum landbúnaðarvörum.
  • Hafa hnattræna vitund, réttlæti og virðingu fyrir takmörkum náttúrunnar í forgangi í alþjóðlegum viðskiptasamningum.
Heimsmarkmið 15: Líf á landi

Líf á landi er 15. heimsmarkmiðið. Helstu áskoranir í þeim efnum er barátta gegn veðrun, hnignun gróðurs og eyðimerkurmyndun í yfir öld þó að framfarir hafi vissulega orðið. Tryggja þarf sjálfbæra landnýtingu og endurheimta vistkerfi. Aðeins 1,5% af Íslandi er þakið skógi, 23% eru gróður og 63% af flatarmáli Íslands eru talin eyðimörk.

Mikilvægt er að efla vinnu við að hefta útbreiðslu ágengra tegunda og finna leiðir til að koma í veg fyrir innflutning á nýjum framandi tegundum sem geta reynst ágengar.

Næstu skref væru að hrinda í gang framkvæmdaáætlun um jarðvegs- og skógræktarvernd og að kynna aðgerðir varðandi vinnu samkvæmt nýundirritaðri yfirlýsingu um verndun líffræðilegrar fjölbreytni 30% af land- og hafsvæðum.

Tilmæli til stjórnvalda:

  • Viðhalda og auka framlög til rannsókna og vöktunar á náttúru og lífríki Íslands, sem og til náttúruverndar og fjölgunar landvarða.
  • Vernda 30% landsvæða með því að koma á fót hálendisþjóðgarði og öðrum þjóðgörðum.
  • Uppfylla b-hluta náttúruverndarskrár í samræmi við vísindalegar ráðleggingar.
  • Endurheimta rýrð vistkerfi, svo sem birkiskóga og votlendi.
  • Uppfæra lista yfir ágengar tegundir í vistkerfum á landi, framkvæma mat á áhrifum,
  • Innleiða tegundaverndaráætlanir fyrir allar friðlýstar tegundir.
  • Banna veiðar á fugla- og spendýrategundum á válista.
  • Kortleggja, fylgjast með og innleiða verndaráætlanir fyrir mikilvægar innlendar tegundir í vistkerfum á landi.
Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...