Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Vernharður Stefánsson hefur starfað sem mjólkurbílstjóri frá árinu 1994. Hann hlakkar til að láta af störfum þegar hann verður 69 ára eftir nokkrar vikur.
Hann segir starfið vera gott og öruggt en ekki skemmi fyrir að vera smá einfari fyrst að honum líkar starfið vel.
Vernharður Stefánsson hefur starfað sem mjólkurbílstjóri frá árinu 1994. Hann hlakkar til að láta af störfum þegar hann verður 69 ára eftir nokkrar vikur. Hann segir starfið vera gott og öruggt en ekki skemmi fyrir að vera smá einfari fyrst að honum líkar starfið vel.
Mynd / ál
Viðtal 4. mars 2025

Mjólkurbílstjóri á tímamótum

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Vernharður Stefánsson mjólkurbílstjóri sest fljótlega í helgan stein eftir 31 ár í sínu starfi, en hann verður 69 ára gamall eftir nokkrar vikur.

„Ég sagði upp um áramót, þannig að ég verð laus 31. mars,“ segir Vernharður. „Það hittir þannig á að ég á afmæli þá,“ en Vernharður er fæddur árið 1956 og ólst upp á Túni í Flóa. Hann hóf sinn feril sem mjólkurbílstjóri árið 1994, en þá hafði hann verið í öðrum störfum hjá Mjólkurbúi Flóamanna í eitt ár.

„Það má segja að ég hafi unnið fyrir bændur alla tíð. Fyrst hjá sláturfélaginu og síðan hjá mjólkurbúinu,“ segir Vernharður. Áður vann hann við gripa- og kjötflutninga hjá Sláturfélagi Suðurlands. „Ætli maður sé ekki svolítill einfari í sér fyrst að manni líkar þetta vel. Maður hefur stundum hugsað um að leita að einhverju öðru en ég gerði aldrei neitt í því. Eins og gengur koma tímabil þar sem maður er alveg að gefast upp á þessu og nennir þessu ekki lengur en svo líður það hjá.“

Sjaldan kaffi núorðið

Engar stórvægilegar breytingar hafa orðið á starfi mjólkurbílstjóra á hans ferli fyrir utan að búunum hefur fækkað og þau stækkað. „Síðustu árin hafa dagarnir styst. Það eru færri bæir og það er meiri mjólk á hverjum bæ.“ Vernharður segir að það sé í undantekningartilfellum sem mjólkurbílstjórar stoppa í kaffi, en hann nefnir sérstaklega að á Egilsstaðakoti í Flóa hafi mjólkurbílstjórum verið boðið í morgunkaffi um áratugaskeið. „Maður er eiginlega næstum því hættur að hitta menn. Þetta var þannig að maður hitti oft fólk í fjósinu og ef menn voru úti við komu þeir og kjöftuðu. Það heyrir til algjörra undantekninga ef það er í dag. Það er einhvern veginn svo mikið að gera hjá öllum,“ segir Vernharður. 

Mjólkin er sótt til bænda með reglubundnum hætti. Mjólkurbílstjórinn tengir slöngu við mjólkurtankinn og er afurðin í lokuðu kerfi allan tímann.

Er með fasta rútu

Fyrstu árin sem mjólkurbílstjóri vann hann við að leysa af aðra mjólkurbílstjóra á ólíkum leiðum. Þegar hann var kominn með meiri reynslu fékk hann svokallaða fasta rútu, þar sem hann sinnti alltaf sömu leiðunum og fékk sinn eigin mjólkurbíl til umráða. Núna sækir hann mjólk á flesta bæi í Flóanum ásamt því að fara í Hrunamannahrepp neðan við Flúðir og hluta af Skeiðunum. „Maður er búinn að fara heim á ansi marga bæi hér á Suðurlandsundirlendinu,“ segir Vernharður. Hann hefur líka tekið ferðir í Borgarfirði og austur á Kirkjubæjarklaustur.

Rútan sem Vernharður fer í Flóanum samanstendur af átján bæjum og losar hann bílinn þrisvar á Selfossi. Þegar hann keyrði þá rútu fyrst í kringum aldamót voru bæirnir 37 og minna heildarmagn af mjólk. Hann leggur af stað klukkan sjö á morgnana og klárar leiðina milli þrjú og fjögur. Losun og þvottur á bílnum í lok dags getur tekið hátt í klukkutíma. Vernharður sér um að þrífa bílinn að utan á meðan starfsmaður í losunarstöðunni sér um að tappa mjólkinni af og þvo tankinn að innan. 

Í lok dags þrífur Vernharður bílinn að utan í góðri aðstöðu í mjólkurbúinu á Selfossi. Magnús Sigursteinsson, starfsmaður Mjólkursamsölunnar, sér um að tappa af mjólkinni og þrífa tankana að innan.

Lokað kerfi alla leið

Starfið segir Vernharður í stuttu máli felast í því að smala saman mjólk frá bændum „með því vinnulagi sem til þarf svo þetta sé í lagi“. Miklu máli skiptir að gæta að hreinlæti og má segja að mjólkin sé í lokuðu kerfi frá því að hún kemur úr spenanum á kúnni og þangað til hún ratar til neytenda. Þegar Vernharður kemur að bæjunum bakkar hann bílnum að dyrum mjólkurhússins. Þar inni er mjólkurtankur og tengir Vernharður slöngu við hann. Dælurnar á mjólkurbílnum eru öflugar og tekur örfáar mínútur að dæla nokkur þúsund lítrum.

Gætt er að rekjanleika og skráð í hvaða hólf á bílnum mjólkin fer. Dælan á mjólkurbílnum tekur sýni á hverjum bæ og eru þau öll rannsökuð áður en mjólkinni er dælt af bílnum. Ef eitthvað reynist ekki í lagi er hægt að koma í veg fyrir að ónýt mjólk rati í verksmiðju mjólkurbúsins.

Mikilvægt að þekkja bílinn

Eina tilfellið þar sem Vernharður hefur lent í umferðaróhappi á sínum ferli má rekja til þess að hann var á bíl sem var honum ókunnugur og náði hann ekki að bregðast nógu hratt við í erfiðum aðstæðum. „Það getur skipt máli þegar þú lendir í hálku og ófærð að þekkja vel sinn bíl. Þetta er ekki allt eins, þó svo að þetta sé kannski svolítið líkt fyrir mörgum,“ segir hann. Mjólk er sótt alla daga nema sunnudaga og vinna mjólkurbílstjórar oft á laugardögum. Þeir vinna samt jafnmarga daga og aðrir þar sem þeir fá þriggja daga frí með reglubundnum hætti. Til undantekninga heyrir ef ferðir falla niður vegna veðurs og er farið af stað svo lengi sem hægt er að keyra á vegunum.

Vernharður er alltaf á sínum bíl. Þó svo að vörubílar virðist vera svipaðir geta þeir verið ólíkir í notkun og skiptir máli í erfiðum aðstæðum að þekkja ökutækið

Ætlar að snúast í kringum sjálfan sig

„Ég er ekki með nein plön,“ segir Vernharður aðspurður um hvað taki við eftir að hann hættir að vinna. „En ég segi það stundum að ég ætli að fara að snúast í kringum sjálfan mig. Ég er í hestum og svo á ég bústað hérna í Flóanum. Ég hlakka svolítið til og er búinn að gera það í dálítinn tíma. Svo getur verið allt í lagi að skreppa í einhverja vinnu ef manni dettur það í hug og gera eitthvað allt annað.“

Á landinu starfa 44 mjólkurbílstjórar við það að sækja mjólk til bænda, allt karlar. Nokkuð hefur fækkað í starfsstéttinni undanfarin ár í samræmi við fækkun kúabúa. Aldursforsetinn meðal mjólkurbílstjóra varð 71 árs í haust

Skylt efni: mjólkurbílstjóri

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt