Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Valtra skorar hæst í nýrri úttekt Bedre gardsdrift
Fréttir 11. janúar 2016

Valtra skorar hæst í nýrri úttekt Bedre gardsdrift

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Í vetrarúttekt Bedre gardsdrift í Noregi á átta stórum 120 hestafla dráttarvélum sem fram fór í Finnlandi fyrir skömmu, kemur Valtra best út í heildarstigagjöf. Þar á eftir eru Massey Ferguson og Case IH. 
 
Í þessu samanburðarprófi sem kynnt var a Agroteknikk-sýningunni í Noregi voru 120 hestafla vélar frá Case IH, Claas, Deutz-Fahr, John Deere, Massey Ferguson, New Holland, Valtra og Zetor. Var þessi úttekt samvinnuverkefni þriggja landbúnaðarrita á Norðurlöndum, þ.e. Koneviesti í Finnland, Lantmannen í Svíþjóð og Bedre Gardsdrift í Noregi.
 
Valtra skorar hæst
 
Mest vægi í þessari úttekt fær mat notenda, en þar skorar Valtra hæst, en hafa ber í huga afar sterka sögulega stöðu Valtra í Finnlandi. Þá fær Valtra líka hæstu heildareinkunnina í þessari prófun með 792 stig. Næst kom Massey Ferguson með 736 stig, þá Case IH með 710 stig, Deutz-Fahr með 694 stig, Claas með 655 stig, New Holland með 636 stig, Zetor með 587 stig og John Deere með 578 stig. Annars segir í inngangi að niðurstöðum þessarar úttektar: 
„Valtra er best, MF gerir það gott og Claas og Case IH eru í lagi. Zetor er ágætur og þar skiptir verðið miklu máli, en þrír síðustu eru eins og þeir eru.“ 
 
Útbúnar samkvæmt finnskum kröfum
 
Allar dráttarvélarnar sem teknar voru til prófunar voru útbúnar samkvæmt finnskum kröfum, þar sem, m.a. yfirbygging og miðstöð í köldum vetraraðstæðum skiptir ökumann miklu máli, sem og dekk, framþungi og hæfni vökvakerfis við erfiðar aðstæður.
Greinilegt er að finnsk hefð og saga Valtra í norrænum landbúnaði er sterk og skín dálítið í gegn í niðurstöðunum. Þar er m.a. vísað sérstaklega til þess að þótt hönnunin á húsinu sé gamaldags þá sé þetta samt gamalt og gott og hafi reynst vel. 
 
Valtra sögulega sterkt nafn í finnskum landbúnaði
 
Valtra er upprunnin hjá Eskilstuna Mekaniska Werkstad sem stofnað var af Theofron Munktell árið 1832. Frá þessu fyrirtæki spruttu dráttarvélanöfnin Munktell, Bolinder-Munktell (BM), Velmet, Volvo og Valtra. Nafnið Valmet var forrennari Valtra og var myndað út úr fyrirtækjanöfnunum VALtion METallitehtaat, State Metal Works árið 1951. Nafnið þróaðist síðan upp í Valtra sem varð þó ekki að tegundarheiti fyrr en 1963. Var þetta gert í endurskipulagningu starfseminnar, en Valmet-nafnið færðist þá yfir á móðurfélagið sem framleiddi vélar fyrir pappírsiðnaðinn. Dráttarvélaframleiðsla Valtra færðist svo yfir til Sisu Corporation árið 1994. Það sameinaðist svo Partek árið 1997 og fékk fyrirtækið þá nafnið Valtra Inc. Fyrstu þrjú árin var ákveðið að nota nafnið Valtra Valmet á dráttarvélarnar en síðan eingöngu Valtra eftir það. 
 
Zetor langódýrasta dráttarvélin
 
Í úttektinni skorar verðið mjög hátt og hífir það hinar tékknesku Zetor Proxima Pover 129 dráttarvélar upp fyrir John Deere í heildarúttektinni. Kom Zetorinn langbest út hvað verð varðar í norskum krónum talið, eða 488.800 NOK. Næst í verði kom Claas Arion 430 á 619.000 NOK, þá John Deere á 626.700, síðan Deutz-Fahr  S120C á 639.900, Massey Ferguson S612 Dyna4 Essential á 654.190, Valtra N113 HITech 3 á 659.000, Case IH Farmall 11SU Pro á 714.100 og New Holland TS.115 Electro Command var á 742.000 norskar krónur. 
 
Deutz-Fahr og Case IH með minnsta eyðslu undir álagi
 
Í mælingu á eldsneytis­eyðslu  var ekin 31 km vegalengd með 700 kílógramma aukaþyngd. Þar kom Case IH og Deutz-Fahr best út með 12,3 og 12,4 lítra eyðslu á klukkutíma. Þar á eftir kom John Deere með 13,6 lítra og New Holland með 13,7 lítra. Síðan kom Claas með 14,5 lítra, Zetor með 14,6 lítra, Valtra (þyngsta vélin í hópnum) með 14,9 lítra og Massey Ferguson rak lestina með 15,7 lítra eyðslu á klukkutíma. 
 
Svipuð eyðsla á hvert tonn
 
Að teknu tilliti til þyngdar vélanna og eyðslu á hvert tonn, þá voru Case IH, Claas, Deutz-Fahr og Valtra með sömu eyðslu, eða 0,042 lítra á hvert tonn. Þar á eftir kom John Deere með örlítið meiri eyðslu eða 0,043 lítra á tonn. Massey Fergusson og New Holland komu út með sömu eyðslu eða 0,047 lítra á tonn en Zetor rak lestina með 0,058 lítra á hvert tonn.  
 
Deutz-Fahr og Valtra hljóðlátastar
 
Allar vélarnar koma þokkalega út hvað varðar hávaðamælingu inni í ökumannshúsi í 40 km keyrslu. Þar koma þó Deutz-Fahr og Valtra best út með 74 desibel en hinir koma þar fast á hælana, nema Zetor sem fer upp í 83 desibel. 
 
Case fær betri dóma en systurvélin New Holland
 
Case IH Farmall Pro lenti í þriðja sæti í heildarstigagjöfinni. Vakti hann ekki síst athygli fyrir gírskiptinguna með sinni hnappaskiptingu. Vélin sem framleidd er í Austurríki kemur mun betur út í þessari úttekt en New Holland sem líka er frá CNH-samsteypunni. Báðir koma þeir þó mjög vel út í kaldræsingu í 15 gráðu frosti, þar sem Zetorinn átti í verulegum vanda og Deutz-Fahr var ansi þungur. 
 
Zetorinn erfiður í gang en fljótur að hitna
 
Allar vélarnar, að frátaldri Zetor vélinni, fóru í gang á fyrsta starti í 155 gráðu frosti. Samt sem áður líkaði ökumönnum vel við tékknesku vélina. Zetorinn er sagður einfaldur og næstum gamaldags en hann virkar. Sumir eiginleikar eru jafnvel sagðir betri en í mörgum mun dýrari vélum.
 
Þegar Zetorinn komst loks í gang var hann ekki nema 12 mínútur að bræða af framrúðunni sem er besti árangurinn af öllum vélunum. Þá var ökumannshúsið í Zetornum 14 mínútur að komast í 0°C. Valtra var 15 mínútur að bræða af framrúðunni og var 14 mínútur að ná 0°C hita í öllu ökumannshúsinu. Case IH var búinn að ná 0°C hita í ökumannshúsi eftir 13 mínútur, en það tók heilar 25 mínútur að bræða af framrúðunni. Ökumannshúsið á Claas var aftur á móti lengst að ná upp hita og var ekki komið í 0° fyrr en eftir 27 mínútur á meðan aðrir voru að ná þeim hita á 13 til 17 mínútum. Þá tók það heilar 25 mínútur að bræða af framrúðunni í Claas eða sama tíma og í Case IH. Claas vélin var þrátt fyrir þetta næstbest í vali ökumanna. Slök miðstöð í Claas vélinni felldi hana úr öðru sætinu í heildarstigagjöfinni. 
 
Athygli vekur hve John Deere fær slaka dóma í þessari úttekt. Fær þessi amerísk-ættaða dráttarvél verstu útreið hvað dóma um ökumannshús áhrærir og kúplingin pirraði ökumenn greinilega mikið. Er þetta  nokkuð sérstakt í ljósi þess hversu mikill skriður hefur verið á John Deere-verksmiðjunum í Þýskalandi.

3 myndir:

Skylt efni: dráttarvélar

Passíusálmar sr. Hallgríms
Fréttir 29. mars 2024

Passíusálmar sr. Hallgríms

Passíusálmarnir verða fluttir í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa.

Halla tekur upp Íslenskt staðfest
Fréttir 28. mars 2024

Halla tekur upp Íslenskt staðfest

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis ...

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands
Fréttir 27. mars 2024

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands

Fjölmörg mál voru til afgreiðslu á nýliðnu Búnaðarþingi 2024, úr fimm nefndum, s...

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025
Fréttir 27. mars 2024

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025

Matvælaráðuneytið hefur tilkynnt um frestun á gildistöku banns við endurnýtingu ...

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi
Fréttir 27. mars 2024

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi

Fyrirkomulag landbúnaðarstuðningskerfis á Íslandi mun taka miklum breytingum ef ...

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst
Fréttir 26. mars 2024

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst

Fyrrverandi sláturhússtjóri á Vopnafirði ætlar ekki að láta deigan síga þrátt fy...

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal
Fréttir 26. mars 2024

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal

Niðurskurður á sauðfé frá bæjunum Eiðsstöðum og Guðlaugsstöðum í Blöndudal fór f...

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga
Fréttir 26. mars 2024

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga

Kornræktarfélag Suðurlands verður endurvakið sem viðskiptavettvangur ræktenda og...