Aukin þöggun um loftslagsvána
Vaxandi tilhneigingar gætir til að þagga niður loftslagsumræðu í Bandaríkjunum.
Umræða um loftslagsmál í Bandaríkjunum hefur tekið nýja og umdeilda stefnu þar sem áhrifamiklir aðilar hvetja til þess að fólk dragi sig í hlé frá opinberri umræðu. Þetta kemur fram í ritstjórnargrein vefmiðilsins Covering Climate Now, sem rýnir í þessa þróun og bendir á að þögn geti reynst afdrifarík þegar ákvarðanir stjórnvalda skipti sköpum.
Rakið er hvernig ýmsir áhrifavaldar hafa á undanförnum mánuðum lagt áherslu á að snúa athyglinni frá loftslagsmálum að öðrum málum, einkum tengdum lífskjörum. Þar á meðal er Bill Gates, sem taldi í haust að hlýnun um tvær gráður væri óumflýjanleg og ekki endilega verstu tíðindi af öllum. Það viðhorf stenst að mati greinarhöfunda illa þegar litið sé til þeirra margvíslegu hamfara sem fylgja slíku hitastigi.
Umræðan dregst saman
Á sama tíma hafa stórir fjölmiðlar greint frá því að stjórnmálaflokkar haldi aftur af sér í loftslagsumræðu, enda telji þeir að aðrir málaflokkar höfði meira til kjósenda. Bent er á að slík nálgun byggi á rangri forsendu: að pólitískt raunsæi, eins og það birtist hverju sinni, vegi þyngra en vísindalegur raunveruleiki.
Greinarhöfundar minna á að vísindamenn hafi árum saman varað við því að mannkyn stefni hraðbyri í átt að hátt í óafturkræfum skaða ef losun verði ekki stöðvuð með skjótum hætti. Þeir draga fram að þróunin sé hraðari og alvarlegri en áður var talið, og að pólitísk þöggun – sú ákvörðun að þegja eða draga úr umræðu – geti aukið hættuna á að nauðsynlegum aðgerðum verði seinkað.
Almenningur vill aðgerðir
Þrátt fyrir að loftslagsmál raðist ekki alltaf efst á lista í kosningum sýni gögn, sem vitnað er til í greininni, að almenningur vilji mun róttækari aðgerðir en stjórnmálafólk oft gefi sér. Í Bandaríkjunum styðji um 74% fólks öflugri loftslagsaðgerðir, og á heimsvísu mælist stuðningurinn enn meiri. Bent er á að þessi mikli vilji beri vott um að pólitískar forsendur séu ekki fastnjörvaðar heldur megi móta þær með skýrari og sýnilegri umræðu.
Lögð er áhersla á að opin umræða sé eitt áhrifamesta tækið sem almenningur og fjölmiðlar hafi til að stuðla að raunverulegum breytingum. Þögn, hvort sem hún spretti af reiði, þreytu eða pólitískri refskák, leiði trauðla til lausna.
