Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Staðalímynd ameríska Coca Cola-jólasveinsins. Svona slór við að lesa á óskalista dugir ekki, hvað þá ef hann hefur ætlað sér að bíða eftir því að fá að kyssa mömmu krakkanna.
Staðalímynd ameríska Coca Cola-jólasveinsins. Svona slór við að lesa á óskalista dugir ekki, hvað þá ef hann hefur ætlað sér að bíða eftir því að fá að kyssa mömmu krakkanna.
Fréttir 28. desember 2015

Þeytist á milli húsa á 625 þúsund kílómetra hraða

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Ameríski jólasveinninn er sagður færa kristnum börnum heimsins jólagjafir á einum hreindýrasleða á innan við sólarhring. Hvort þessi saga stenst alveg skoðun skal ekkert fullyrt um en dæmið gæti litið svona út. 
 
Íbúar jarðar eru nú um 7 milljarðar. Fjöldi heimila að meðaltali með 4 fjölskyldumeðlimi er þá 1.750.000.000. Nú er kristin trú fjölmennustu trúarbrögð heimsins, með um 2 milljarða fylgjenda. Rúmur helmingur þeirra telst til rómverskkaþólsku kirkjunnar, 367 milljónir eru mótmælendur og 216 milljónir tilheyra grísku/rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Kristnir búa flestir í Norður- og Suður-Ameríku, Evrópu og Ástralíu. Hlutfallslega eru kristnir mun færri í Asíu og Afríku en í hinum álfunum en þar eru þó margir kristnir, meðal annars í Eþíópíu, þar sem kristni hefur verið við lýði frá 330 eftir Krist.
 
Ef kristnir menn eru um 2 milljarðar, og þeim hópi er gróflega skipt upp í fjögurra manna fjölskyldur með tveim börnum á heimili, þá eru það fimm hundruð milljón heimili (500.000.000). Börnin eru þá um  milljarður (1.000.000.000).
 
Ameríski jólasveinninn ferðast á 625.000 kílómetra hraða
 
Ameríski jólasveinninn er sagður ferðast um á hreindýrasleða þegar hann kemur pökkunum til barnanna á aðfangadagskvöldi. Gefum okkur að hann þurfi að ferðast frá Norðurpólnum og hniti hringi niður eftir jörðinni nokkurn veginn eftir breiddarbaugunum til að dreifa pökkunum. Niður að miðbaug eru 90 breiddarbaugar og 90 til viðbótar niður að suðurpól. Hann þyrfti væntanlega að fara aðeins þéttar en það til að ná til allra barnanna, svo við skulum gefa okkur að hringirnir um jörðina yrðu því samtals 360. Efst á pólnum væri ferðalagið nánast ekki neitt, bara snúningur jólasveinsins um sjálfan sig og væntanlega ekkert barn á staðnum að bíða eftir pakka. Gróflega áætlað má segja að jólasveinninn fari 7,2 milljónir kílómetra í hringsóli sínu eftir breiddarbaugunum og við það bætast nærri 40.000 kílómetrar vegna ferðalagsins eftir lengdarbaugunum.
 
Við að skutlast inn á hvert heimili gætum við trúlega bætt annarri eins vegalengd við og rúmlega það þannig að sveinki þarf að skutlast svo sem 15 milljónir kílómetra á 24 tímum, þótt flestir tali um að hann sé að þessu á mun skemmri tíma. Það þýðir að hann verður að þeytast með um 625.000 kílómetra hraða á klukkustund. Það er 10,4 sinnum meiri hraði en hröðustu geimför fara á í hringsóli sínu um jörðina. Það er líka 10.417 kílómetra hraði á mínútu eða tæplega 174 kílómetrar á sekúndu. Hann væri sem sagt 3,8 mínútur að fara umhverfis jörðina um miðbaug. 
 
5.787 heimili á sekúndu
 
Ameríski jólasveinninn hefur 24 tíma til að klára verkið. Það eru 1.440 mínútur eða 86.400 sekúndur.  Til að fara inn á hvert þeirra 500 milljóna heimila kristinna manna í heiminum hefur hann 0,0001728 sekúndur og er þá innifalinn ferðatíminn milli staða. Þá þarf hann að fá hreindýrin til að snarstoppa úr 625 þúsund kílómetra hraðað í 0 á augabragði. Fara af sleðanum taka tvær gjafir úr pokanum troða sér niður um strompinn eða skríða inn um glugga, koma gjöfunum fyrir undir jólatrénu og fara sömu leið til baka.
Stíga upp á sleðann og rjúka af stað. Allt þetta má ei taka meiri tíma en 0,0000864 sekúndur og þá þarf sveinki að vera kominn á næsta stað eftir aðrar 0,0000864 sekúndur. Þá er gengið út frá því að vegalendin milli heimilanna dreifist jafnt á þá 15 milljón kílómetra sem sveinki þarf að ferðast.
 
Sem sagt 0,0001728 sekúndur í að klára afhendingu pakka og flug á næsta stað, enda nóg að geras því að á hverr sekúndu þarf hann að heimsækja 5.788 heimili. 
 
Sleði jólasveinsins er 800 metrar að lengd og tekur 37.000 gámaeiningar
 
Ef einn milljarður barna fá að jafnaði gjöf sem vegur 1 kílógramm, þá þarf pokinn hjá sveinka að þola einn milljarð kg eða milljón tonn.  Sleðinn þarf þá að vera samsvarandi stór og þyrfti að rúma 37,037 gámaeiningar. (ein gámaeining = 20 feta þurrgámur tekur 27 tonn)  Hann yrði á stærð við rúmlega tvö stykki af stærsta gámaflutningaskipi heims, The Majestic Maersk, sem tekur 18.000 gámaeiningar og er 400 metra langt. Það er búið tveim 43.000 hestafla aðalvélum sem hvor um sig vegur 910 tonn. Hámarks ganghraði er 23 sjómílur á klukkustund. Ef gámarnir úr þessu skipi eru settir á flutningabíla sem væri í einni röð þá yrði hún 110 km löng. Sleði jólasveinsins yrði sem sagt tvöfalt stærri og þyrfti líklega að vera um 700-800 metra langur. Röðin sem gámabílarnir mynduðu með flutningi jólasveinsins yrði nærri 230 kílómetra löng. 
 
Þarf 1,5 milljarða hreindýra
 
Til að draga slíkan sleða á skipshraða þyrfti líklega um 87.000 hreindýr (að því gefnu að eitt hreindýr skili einu hestafli). Það kæmi sleðanum þó ekki nema á um 36 kílómetra hraða (20 mílur) á klukkustund. Ef við gefum okkur að hröðunin fari eftir fjölda hreindýra þá þyrfti um 1,5 miljarða hreindýra til að draga sleðann svo hann komist á að minnsta kosti 625.000 kílómetra hraða á klukkustund. 
 
Á 66 milljón tonna dráttarvél 
 
Ef sveinki væri aftur á móti með Úrsus dráttarvél í stað hreindýranna og með 800 metra löngum heyhleðsluvagni, þá  þyrfti dráttarvélin að vera um 66 milljón tonn að þyngd. Hún væri með alveg þokkalegum mótor sem skilaði 1,5 milljörðum hestafla, eða sama afli og öll hreindýrin. 
 
Þá verðum við auðvitað að gefa okkur að ameríski jólasveinninn geti með einhverjum óútskýrðum hætti yfirunnið loftmótstöðuna, annars myndi hann brenna til ösku með öllum jólapökkunum og sleða ækinu í fyrstu hringferðinni um jörðina. Gilti þá einu hvort hann væri með hreindýrasleða eða á súperkraftmikilli Úrsus dráttarvél. 
 
Á 100 hestafla Úrsus tæki það 63 ár að koma gjöfunum til skila
 
Ef sveinki reyndi aftur á móti að dreifa þessum jólapökkum á venjulegum 100 hestafla 4,4, tonna Úrsus, sem færi á 36 kílómetra meðalhraða á klukkustund, þá yrði loftmótstaðan ekki vandamál. Aftur á móti  myndir hann ekki draga mikið meira samkvæmt löglegum tölum um dráttargetu en 3,4 tonn í hverri ferð og þá yrði vagninn líka að vera með löglegum bremsum. 
 
Þar sem vagn og hlass væri ekki meira en 3,4 tonn, þá þyrfti jólasveinninn að dreifa gjöfunum í 294 ferðum frá Norðurpólnum. Hann fækkaði auðvitað í hópnum í hverri ferð, en eigi að síður mæti ætla að hann þyrfti að fara talsvert mikið lengri vegalengd en ameríski jólasveinninn.
 
Má líkum leiða að því að hann þyrfti að skrölta allt að 20 milljónir kílómetra upp og niður og umhverfis jarðkringluna í þessum jólapakkaúthlutunum. Jólasveinninn  á venjulegu dráttarvélinni yrði því  örlítið lengur að fara þessa vegalengd sem ameríski jólasveinninn á hreindýrasleðanum skondrast á 24 tímum. Sveinki á Úrsusnum yrði 555.555 klukkustundir að koma öllum milljón tonnunum  á áfangastað, sem gera 23.148 daga eða rúmlega 63 ár. 
 
Hann verður þá líka að vera fjandi snöggur að setja eldsneyti á vélina og skipta um smurolíu annað veifið. Þá er heldur enginn tími til að skreppa í mat eða kaffi, hvað þá að fara á klósettið.
Að sjálfsögðu eru þessir útreikningar settir fram í fullkomnu ábyrgðarleysi, auk þess sem ekkert er vitað um vélaáhuga sveinka. Hann gæti því allt eins valið Deutz, New Holland, Valtra, Massey Ferguson, John Deere, Belarus eða hvað tegund aðra en Ursus.
 
Auðvitað ber svo að geta þess að 1,57 milljarðar múslíma fá engar jólagjafir frá sveinka, hvað þá 994 milljónir hindúa og 500 milljónir búddista. 
Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum
Fréttir 26. apríl 2024

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum

Gýgjarhólskot í Biskupstungum var útnefnt ræktunarbú síðasta árs á fagfundi sauð...

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...