Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Á myndinni eru, frá vinstri, Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra, Stefán Ólafur frá fyrirtækinu „Frá Íslandi“, Margrét, Margrét Sigríður Jónsdóttir frá fyrirtækinu „Frá Íslandi“, Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra og Nan
Á myndinni eru, frá vinstri, Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra, Stefán Ólafur frá fyrirtækinu „Frá Íslandi“, Margrét, Margrét Sigríður Jónsdóttir frá fyrirtækinu „Frá Íslandi“, Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra og Nan
Mynd / MHH
Fréttir 11. maí 2016

Skráning, rekjanleiki og markaðssetning

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Nýr gagnagrunnur sem ætlað er að auka meðvitund um íslenskt handverk var kynntur í Litlu lopasjoppunni á Hellu í síðustu viku. 
 
„Ferðamenn koma í auknum mæli til Íslands og kaupa sér dýrum dómum minjagripi sem ekki eru framleiddir á Íslandi. Þetta er eitthvað sem er óviðunandi og eiga gestir sem heimsækja landið okkar og aðrir rétt á að fá að vita að varan sem þeir kaupa sé „Frá Íslandi“. 
 
Kerfið okkar býður íslensku handverksfólki, hönnuðum og framleiðendum að skrá vörurnar sínar í gagnagrunn, merkja vörurnar sínar með varanlegu skráningarnúmeri, sem kaupandi getur svo flett upp ef hann hefur áhuga á og sér hann þá upplýsingar um vöruna og framleiðanda,“ segir Stefán Ólafur Guðmundsson hjá fyrirtækinu „Frá Íslandi“. Fyrirtækið var stofnað í september 2015, vegna sívaxandi þarfar á upprunamerkingu íslensks handverks. Um er að ræða upprunamerkingu með skráningu á viðkomandi handverksmanni,  hönnuðum og framleiðendum.
 
Litla lopasjoppan á Hellu
 
Margrét Jónsdóttir og eiginmaður hennar, Baldur Árnason, eiga verslunina Litla lopasjoppan á Hellu sem selur eingöngu lopavörur frá íslensku handverksfólki. 
 
„Mér líst rosalega vel á uppruna­merkinguna, þetta er tær snilld sem á eftir að reynast okkur vel. Auðvitað eiga kaupendur rétt á því að fá að vita um uppruna vörunnar, þetta hefði átt að vera komið í gagnið fyrir löngu síðan,“ segir Margrét. 
 
„Já, það er nóg að gera hjá okkur, útlendingarnir sækja mikið til okkar og kaupa lopavörur og Íslendingarnar eru líka duglegir að reka nefið inn, við erum alsæl og stefnum á að stækka verslunina,“ bætir Margrét við.

3 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...