Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Framkvæmdastjóri Emmessís segir það viðtekna venju að nota smjör í rjómaísgerð.
Framkvæmdastjóri Emmessís segir það viðtekna venju að nota smjör í rjómaísgerð.
Fréttir 19. mars 2026

Rjómaís okkar sannarlega rjómaís, segir framkvæmdastjóri Emmessís

Höfundur: Þröstur Helgason

Í síðasta Bændablaði var fjallað um hertar fitur í ís, þar á meðal frá Emmessís.

Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri Emmessís, segir það viðtekna venju að nota smjör í rjómaísgerð og sé Emmessís ekki að gera öðruvísi þar en erlendir framleiðendur.

„Að sama skapi kjósa aðrir framleiðendur að nota rjóma en að flestra mati hefur það ekki áhrif á lokaútkomuna. Samkvæmt öllum reglugerðum og ísvenjum þá er rjómaísinn okkar svo sannarlega rjómaís.“

Kristján Geir gerir þá athugasemd við umfjöllunina í Bændablaðinu að vatn, smjör og sykur séu aðalinnihaldsefnin í Rjómaís frá Emmessís, ekki smjör og sykur, og leiðréttist það hér með. Beðist er velvirðingar á mistökunum.

Einnig leiðréttist að samkvæmt bandarískum reglugerðum um ísgerð þarf ís að innihalda 6-10% mjólkurþurrefni, ekki mjólkurprótein.

Vert er að bæta við að íslenska reglugerðin um ís er ekki ólík þeirri bandarísku. Í íslensku reglugerðinni segir: „Í þeim (Mjólkurís og rjómaís) skulu próteinin og fitan eingöngu vera úr mjólk en bæta má í vöruna öðrum hráefnum, aukefnum og bragðefnum.“ Emmessís má samkvæmt henni kalla ís sinn rjómaís en ekki var um það fjallað í greininni.

Skylt efni: rjómaís | Emmessís

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...