Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Rétt fóðrun byggir á að þekkja gróffóðurgæðin
Mynd / smh
Á faglegum nótum 4. september 2017

Rétt fóðrun byggir á að þekkja gróffóðurgæðin

Höfundur: Gunnar Guðmundsson
Gróffóður er grundvöllur búvöruframleiðslu af nautgripum og sauðfé hér á landi. Skynsamleg og markviss framleiðsla þessara búgreina m.t.t. afurða og heilbrigðis byggir á því að þekkja gróffóðurgæðin, hvort heldur orkuinnihald / meltanleika, próteinmagn og gæði eða stein- og snefilefnainnihald.  
 
Gróandinn í vor var með því hagstæðasta sem gerist, nánast um allt land, og grasþroskinn því óvenju snemma á ferðinni. Helstu vaxtarþættir jarðargróðurs, – raki, varmi og næring voru með ákjósanlegasta móti.  Algengasta viðmið um heppilegan sláttutíma túngrasa; - við byrjun skriðs á vallarfoxgrasi – til þess að ná hámarks fóðurgæðum, kann því að hafa verið seinna á ferðinni en hinn raunverulegi grasþroski.
Þrátt fyrir þessar jákvæðu ytri aðstæður og fremur hagstæða heyskapartíð – á stórum hluta landsins – er samt sem áður rík ástæða til þess að afla upplýsinga um gæði gróffóðursins og alls ekki ástæða til að draga úr eða sleppa því að taka heysýni til efnagreininga. 
 
Efnagreiningaþjónusta samningur við EUROFINS / BLGG í Hollandi
 
Undanfarin fjögur ár hefur Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,  boðið bændum um allt land að taka heysýni og senda til efnagreininga, gegnum þjónustusamning við hollenska efnagreininga- og rannsóknafyrirtækið BLGG AgroXpertus AB  í Wageningen í Hollandi. Nýir eigendur (EUROFINS Agro) hafa nú yfirtekið reksturinn – en engar breytingar verða á þjónustunni.  Almenn ánægja hefur verið meðal bænda með þessa þjónustu, en samningurinn tryggir mjög víðtæka, hraðvirka efnagreiningaþjónustu, á hagstæðu verði og sem er í fullu samræmi við þarfir norræna fóðurmatskerfisins Norfór.  Samskiptaaðili um þjónustuna er sérstök umboðsskrifstofa; - Eurofins Agro Testing Sweden AB, sem staðsett er í Kristianstad í Svíþjóð.  Við njótum sömu kjara og þjónustu í efnagreiningum og sænskir bændur.  
 
Við hjá RML leggjum áherslu á að greina fóðursýni úr verkuðu fóðri, –  rúlluböggum eða heystæðum eftir a.m.k. 5 til 6 vikna verkun.  Ráðunautar RML, víðs vegar um land, munu annast heysýnatöku – með þar til gerðum sýnatökubúnaði – og sjá um að safna sýnunum saman til sendingar. Ráðunautarnir sjá einnig um að túlka niðurstöðurnar,  fyrir þá bændur sem þess óska.  RML annast og ábyrgist greiðslu á greiningarkostnaði og innheimtir síðan kostnaðinn hjá bændum.  
 
Fjölþættar og greinargóðar upplýsingar um heyfóðrið geta einnig nýst til markvissari áburðarnotkunar og áburðaráætlanagerðar og ekki síður til þess að meta og skipuleggja endurræktun túna. 
 
Afhendingartími niðurstaðna:
 
Samkvæmt samningnum er stefnt að því að skila niðurstöðum innan 10 vinnudaga frá því sýni berst til greiningar.  Ef til viðbótar venjulegri fóðurefnagreiningu eru greind bæði snefilefni (samtals 14 efni) og að auki rokgjarnar, lífrænar sýrur (mjólkur- edik- og smjörsýra) er afhendingarfresturinn hins vegar eitthvað lengri. Bóndinn getur valið um hvort niðurstöðurnar berist honum á rafrænu formi (með tölvupósti) eða fá þær sendar með landpósti. Niðurstöðurnar eru einnig lesnar beint inn í norræna fóðurmatskerfið NorFor (FAS) um leið og þær liggja fyrir og eru þá þegar aðgengilegar og tilbúnar til vinnslu fóðuráætlana í ráðgjafarverkfærinu; TINEOptifor-Island.
 
Sauðfjárbændur eru sérstaklega hvattir til að láta efnagreina sitt heyfóður!
 
Eins og á liðnu ári er ástæða til að hvetja sauðfjárbændur til að láta efnagreina sín hey.  Markviss fóðrun búfjár byggist á upplýsingum um efnainnihald fóðursins sem gefið er.
 
Verð á efnagreiningum:
 
Upplýsingar um greiningarkostnað liggja fyrir í sænskum krónum (SEK) en endanlegt verð í íslenskum krónum er að sjálfsögðu háð gengisbreytingum.  Sem dæmi má gera ráð fyrir eftirtöldum greiningarkostnaði á sýni eftir því hvað greint er (verðdæmin miðast við kaupgengi SEK 18. ágúst 2017 (1 SEK = 13,2 IKR) og eru án virðisauka).
  1. Gras- og hirðingarsýni,  fóðurefnagreining,  án steinefna kr. 5.400 til 5.600
  2. Gras- og hirðingarsýni,  fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 7.900 til 8.100
  3. Vothey, fóðurefnagreining án steinefna kr. 8.000 til 8.200
  4. Vothey, fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 10 500 til 10.700
  5. Vothey, fóðurefnagreining, + 14 stein- og snefilefni kr. 15.400 til 15.600
  6. Heilsæði, fóðurefnagreining + 10 stein- og snefilefni kr. 11.300 til 11.500
  7. Korn, fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 9.100 til 9.300
Hvert geta bændur snúið sér?
 
Við hvetjum alla bændur; – kúabændur, sauðfjárbændur, hrossabændur, – til þess að kynna sér þessa mikilvægu þjónustu og nýta sér hana.  Þær upplýsingar sem fást gegnum fóðurefnagreiningar nýtast ekki eingöngu varðandi fóðrun heldur ekki síður við ákvörðun á áburðargjöf.  
 
Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í fóðuráætlanagerð fyrir mjólkurkýr með NorFor kerfinu, – eða fóðurráðgjöf / fóðuráætlanagerð fyrir sauðfé og jafnframt nýta sér efnagreiningarþjónustu samkvæmt samningi RML og Eurofins / BLGG, vinsamlega hafi samband við einhvern af ráðgjöfum RML í töflunni hér að ofan.  
 

Skylt efni: gróffóður | fóðrun | RML

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum
Fréttir 19. apríl 2024

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum

Opinn gámur, yfirfullur af dýrahræjum, stóð á dögunum á steyptu bílastæði við in...

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...

Íslenskar sængur um allan heim
Fréttir 18. apríl 2024

Íslenskar sængur um allan heim

Íslenskur dúnn ehf. selur æðardúnsængur beint til viðskiptavina um heim allan. Þ...