Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Olil Amble og Bergur Jónsson.
Olil Amble og Bergur Jónsson.
Fréttir 28. nóvember 2018

Ræktunarbú ársins 2018

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður í hrossarækt, thk@rml.is
Eins og mörgum er í fersku minni tilnefndi Fagráð í hrossarækt alls 12 ræktunarbú til sérstakrar viðurkenningar fyrir framúr­skarandi ræktunar­­­­­­­­árangur á árinu 2018. Heiðursviður­­­kenninguna  ræktunarbú ársins 2018 hlutu Bergur Jónsson og Olil Amble á uppskeru­hátíð hestamanna þann 27. október síðastliðinn en þau kenna hross sín við Ketilsstaði og Syðri-Gegnishóla.
 
Mikill fjöldi búa náði afgerandi góðum árangri á sýningaárinu 2018. Til að afmarka val ræktunarbúa og leiða að niðurstöðu eru fyrst tilgreind öll hrossaræktarbú sem sýnt hafa fjögur eða fleiri hross í fullnaðardómi á árinu. Að auki verða minnst tvö að hafa náð aðaleinkunn 8,0 eða hærra. Þá eru einkunnir leiðréttar eftir aldri og kyni líkt og gert er við kynbótamatsútreikninga. Þetta gerir allar einkunnir samanburðarhæfar áður en búunum er svo raðað upp eftir leiðréttum einkunnum og fjölda sýndra hrossa. Búin sem komast í pottinn verða að ná fjórum hrossum að lágmarki með 8.00 í aðaleinkunn eftir leiðréttingu sem er þá önnur sía á gögnin. Þá reiknast afkvæmaverðlaunahross (stóðhestar og hryssur) til stiga fyrir sína ræktendur samkvæmt föstum reglum þar um.
 
Í meðfylgjandi töflu eru öll búin, 49 að tölu, sem uppfylltu fyrrnefndar lágmarkskröfur árið 2018. Dálkarnir sýna meðaltal leiðréttrar aðaleinkunnar og fjölda sýndra hrossa (en afkvæmahross bæta við fjöldann). Þá er sérstaklega tilgreint í síðasta dálknum ef afkvæmahross leggja til stiga og auka á fjölda hrossa fyrir búið á árinu. Efst í töflunni eru þau tólf bú sem tilnefnd voru til viðurkenningarinnar í ár í þeim sætum sem útreiknuð stig raðaði þeim í en þar fyrir neðan eru búin sem komust auk þeirra til greina í ár í stafrófsröð. 
 
Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...