Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Gróðursetning í hagaskóg á Fjarðarhorni í Hrútafirði er vel á veg komin enda fríður flokkur sem vinnur verkið. Með hagaskógi er átt við gisinn skóg með góðum bithögum.
Gróðursetning í hagaskóg á Fjarðarhorni í Hrútafirði er vel á veg komin enda fríður flokkur sem vinnur verkið. Með hagaskógi er átt við gisinn skóg með góðum bithögum.
Fréttir 17. júlí 2017

Ráðist í sjö búskaparskógræktarverkefni

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Unnið verður að sjö verkefnum í Húnaþingi vestra undir merkjum átaksverkefnis í búskaparskógrækt sem efnt var til á síðasta ári. Skjólbeltakerfi verður ræktað á tveimur jörðum, snjófangari á einni jörð og hagaskógur á tveimur. Auk þess verða gerðar tilraunir með skógarbeit og  klónatilraun með ösp í skjólbelti.
 
Á síðasta ári tilkynnti Sigrún Magnúsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, um eins árs þróunar- og átaksverkefni um búskaparskógrækt í Húnaþingi vestra. Veittar voru sjö milljónir króna til verkefnisins og Skógræktinni falið að stýra því í samvinnu við Húnvetninga. 
 
Sæmundi Kr. Þorvaldssyni skógfræðingi var falið að stýra verkefninu fyrir hönd Skógræktarinnar og ásamt honum sér Johan Holst skógræktarráðgjafi um faglegu hliðina. Efnt var til samráðs við Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda og Sveitarfélagið Húnaþing vestra. Þetta kemur fram á vef Skógræktarinnar.
 
Skógrækt til bættra búsetuskilyrða
 
Þegar stofnað var til verkefnisins lagði ráðherra áherslu á að hugað yrði að ræktun skjólbeltakerfa, skjóllunda fyrir búfé, hagaskóga, landgræðsluskóga, skjólskóga, akurskóga og fjölnytjaskóga þar sem timburvinnsla yrði til viðbótar við önnur markmið. Bændur skyldu fá ráðgjöf um hvernig nýta mætti framantalda kosti til að bæta skilyrði til búsetu á jörðum sínum og kanna skyldi hvers konar breytingar væri æskilegt að gera á núverandi stuðningi við skógrækt á lögbýlum svo að skógræktarverkefni yrðu áhugaverðari fyrir bændur.
 
Með þessu verkefni er í raun verið að styrkja í sessi fyrirbrigði sem ráðherra kaus að kalla búskaparskógrækt en hefur líka verið nefnt skógarlandbúnaður,  og er skipulagður út frá þeirri hugmynd að saman fléttist í eina heild skógrækt og annar búskapur. Markmiðið er sjálfbær landnýting þar sem trjárækt er á sama svæði og annar búskapur og framleiðsla búsins fæst bæði af ökrum, búfé og trjám. Með þessu fáist sterkari vistkerfi á bújörðinni og meiri líffjölbreytni.
 
Að flétta trjá- og skógrækt saman við hefðbundnar búgreinar á íslenskum búum hefur margvíslegan ávinning fyrir bóndann. Skjólbelti draga úr áföllum vegna tíðarfars og þau geta minnkað ágang gæsa og álfta á túnum. Búast má við meiri grósku og þar með uppskeru í skjólinu. Trjágróðurinn grípur næringarefnin sem ekki nýtast á túninu eða akrinum og koma í veg fyrir að þau skolist út í vatnasvið.
Skjól- eða skógarbelti má líka nota til að stýra því hvar snjór safnast fyrir eða til að skýla lambfé á vorin, skýla íbúðar- og útihúsum, búa til umhverfi til útivistar, o.s.frv. Svo má nefna teinungs¬skóg með t.d. ösp þar sem markmiðið getur t.d. verið að uppskera reglu¬lega iðnvið, enn fremur hagaskóg þar sem megintilgangurinn er að skapa gjöfult beitiland fyrir búfé en timburtekja getur verið aukageta og margt fleira.
 
Verkefni á sjö jörðum
 
Fjórtán umsóknir bárust um þátttöku í slíkum verkefnum. Sæmundur og Johan skoðuðu viðkomandi jarðir í marsmánuði og nú er stefnt að því að ráðast í verkefni á alls sjö jörðum. Á Lækjamóti í Víðidal verður ræktað skjólbeltakerfi en snjófangari á Gauksmýri í Línakradal. Á Mýrum 3 í Hrútafirði verður ræktað öflugt skjólbeltakerfi um tún og bæjarhús. Í tilraunaskyni er líka efnt til nokkurs konar aukaverkefnis á Brekkulæk í Miðfirði þar sem rýrt holt með eldri hagaskógi hjá skógar- og sauðfjárbónda verður varið fyrir hrossabeit en ekki sauðfjárbeit. 
 
Tilraunir með hagaskógrækt verða enn fremur gerðar á tveimur stöðum, annars vegar á Fjarðarhorni í Hrútafirði á rúmlega 26 hekturum og hins vegar á 5,4 hekturum á Kolugili í Víðidal. Með hagaskógi er átt við gisinn skóg með góðum bithögum. Í þessum tilraunum verður þess  freistað að koma upp lerkiskógi án friðunar fyrstu árin. Sé þetta hægt sparast miklir fjármunir sem ella færu í girðingar.  Loks skal nefna að á Bakka í Víðidal verður líka gerð áhugaverð tilraun. Þar verða gróðursettir nokkrir sérvaldir asparklónar í skjólbelti við tún í um 200 metra hæð yfir sjó. Framkvæmdir eru hafnar við jarðvinnslu vegna skjólbelta á Gauksmýri og gróðursetning í snjófangara. Einnig er gróðursetning í hagaskóginn í Fjarðarhorni vel á veg komin. Vart hefur orðið mikils áhuga meðal bænda um allt land á þessum verkefnum í Húnaþingi vestra. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...