Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Nýtt og fullkomið eldhús ásamt skrifstofuaðstöðu var formlega opnað í Jónshúsi í Friðheimum 29. júní.
Nýtt og fullkomið eldhús ásamt skrifstofuaðstöðu var formlega opnað í Jónshúsi í Friðheimum 29. júní.
Mynd / H.Kr.
Fréttir 10. júlí 2017

Nýtt og fullkomið eldhús opnað í Friðheimum

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Mikið var um dýrðir hjá Knúti Rafni Ármann og Helenu Hermundardóttur, garðyrkjubændum og starfsfólki þeirra í Friðheimum í Reykjum fimmtudaginn 29. júní. Þá var vígt nýtt og fullkomið aðgerðareldhús og skrifstofuhúsnæði sem byggt hefur verið við garðyrkjustöðina. 
 
Fjöldi gesta var við athöfnina og þar á meðal umhverfisráðherrann, Björt Ólafsdóttir, nokkrir þingmenn, sveitarstjórnarmenn og bændur og búalið úr nágrenninu. Bauð Knútur gestina velkomna og sagði að mikið hefði breyst frá því þau Helena fluttu að Friðheimum í Biskupstungum sem nú tilheyrir Bláskógabyggð. Liðin væru 22 ár síðan þau hófu þar búskap.
 
Komin með gæða- og umhverfisvottun Vakans. Talið frá vinstri: Rakel Theodórsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Friðheima, Helena Hermundar­dóttir,  Áslaug Briem, verkefnastjóri gæðamála hjá Ferðamálastofu og Knútur Rafn Ármann.
 
„Við fluttum 25 ára gömul upp í sveit með þann draum í maganum að vera með hesta og stunda garðyrkju. Við vorum mikið lánsöm að detta niður á þennan yndislega stað. Í þessari yndislegu sveit þar sem okkur var tekið einstaklega vel. Frá fyrsta degi var þetta sveitin okkar,“ sagði Knútur.
 
Hann sagði að þau hjón hafi tekið svolítið stóra ákvörðun fyrir átta árum með því að opna búið fyrir gestum. Upphaflega hafi það bara átt að vera lítil sæt hliðarbúgrein þar sem þau gætu verið að tína tómata við hliðina. Þetta sé nú orðið svo miklu stærra og meira en þau hafi óraðfyrir. 
 
Auk hestasýninga og heimsókna í hesthús fóru gestir að spyrjast fyrir um hvort ekki væri boðið upp á heimsókn í gróðurhús. Þau hafi verið hálf hissa á því í byrjun og spurt sjálf sig hvað fólk vildi eiginlega skoða í gróðurhúsi. Við nánari hugsun hafi þau séð að það væri auðvitað ekkert síðra að kynna fólki gróðurhúsaræktunina en hestana. Var í framhaldinu farið að bjóða hópum upp á gróðurhúsaheimsóknir þar sem fólki var kynnt tómata­rækt eins og hún gerist heilnæmust. Þetta vatt fljótt upp á sig.
Þegar garðyrkjustöðin var stækkuð 2011 var byggð gestastofa í leiðinni sem vígð var fyrir nákvæmlega fjórum árum. Þá var Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, fenginn til að klippa á borða. 
 
Flaggað fyrir Jónshúsi í Friðheimum.
 
Sagði Kútur að þetta hafi þróast í það að nú væri opin þarna veitingastaður allt árið um kring þar sem boðið er upp á afurðir gróðrarstöðvarinnar ásamt bakkelsi og öðru góðgæti sem galdrað er fram af meistarakokknum Jóni K.B. Sigfússyni og samstarfsfólki á staðnum. 
 
Ótrúleg staða
 
„Einhvern veginn hefði maður aldrei trúað því fyrir fjórum árum að hér væri hægt að reka veitingastað 100 kílómetra frá Reykjavík sem væri fullur af gestum alla daga frá tólf  til fjögur yfir vetrarmánuðina. Þetta sýnir okkur hversu gaman og áhugavert það er að flétta saman landbúnaði og ferðaþjónustu.“
 
Stóri draumurinn
 
„Þetta hefði þó aldrei orðið að veruleika nema að við hefðum fengið til okkar ótrúlega flottan hóp af hæfileikaríku fólki. Það hefur einhvern veginn laðast að okkur yndislegt fólk sem hefur byggt þetta upp með okkur af alúð. Hér eru 47 manns að vinna í sumar, en rétt rúmlega 30 yfir vetrarmánuðina.  
Með þessari stóru stund í dag erum við komin með þetta í það form sem okkur hefur dreymt um.“ 
 
Seldu tómatsúpu til Mexíkó
 
„Við fórum í það fyrir þrem árum að opna litlu tómatabúðina okkar. Hún varð svo vinsæl að ári seinna opnuðum við vefverslun  og höfum verið að senda tómataafurðir um allan heim. Mér fannst það t.d. mjög gaman þegar við sendum 6 lítra af tómatsúpu til Mexíkó. Mér fannst það svona eins og að selja kaffi til Brasilíu. Þetta sýnir okkur bara hvað er hægt að gera og hvað möguleikarnir eru miklir.“
 
Meistarakokkurinn Jón K.B. Sigfússon, sem nýja húsið er nefnt eftir, sagði mikinn heiður að fá að vinna með fjölskyldunni á Friðheimum og öllu því einstaka starfsfólki sem þar starfar
 
Knútur segir að allar þessar vinsældir og þrengslin sem þau hafi búið við m.a. í eldhúsinu, sem stækkað hefur verið þrisvar sinnum, hafi sýnt þeim að það yrði að búa til betri vinnuaðstöðu.
  
Ráðist í að byggja almennilegt eldhús
 
„Það var því ákveðið fyrir tæpu ári að við myndum ráðast í að byggja almennilegt eldhús og vera með skrifstofuhúsnæði ofan á því ásamt fundar- og kaffistofu. Þetta er því eingöngu aðstöðuhús til að gera vinnuaðstöðu okkar betri og að betur fari um okkar starfsfólk. Þarna eru tvö eldhús. Annars vegar keyrslueldhús fyrir veitingastaðinn og inn af því er vinnslueldhús sem hægt er að vinna í þótt verið sé að sinna gestum.“
 
Byrjað var að grafa fyrir húsinu í byrjun desember á síðasta ári og fyrstu steypu var hellt í mót daginn fyrir Þorláksmessu. Síðan hafa framkvæmdir gengið vonum framar og þökkuðu Knútur og Helena iðnaðarmönnunum fyrir vel unnin störf og leystu þá út með koníaksflöskum. 
 
Gestir gæða sér á veitingum í nýju og glæsilegu eldhúsi Friðheima.
 
Knútur sagði að með nýju aðstöðunni væri miðað við að þar væri hægt að nýta alla framleiðslu stöðvarinnar og búa til úr því góðgæti. Hann sagði að það hafi líka verið mikil guðsgjöf að kynnast Jóni K.B. Sigfússyni. Hann hafi haft svipaðar hugmyndir og þau um hvernig hægt væri að þróa staðinn áfram. 
 
Jónshús skal það heita
 
„Þetta verkefni er þó komið miklu lengra vegna þess að hann hefur verið hér með okkur. Okkur langar því sérstaklega honum til heiðurs að nefna þetta hús Jónshús,“ sagði Knútur í lok ræðu sinnar.
 
Jón þakkaði fjölskyldu Friðheimahjóna fyrir og sagði að menn hefðu ekki trúað því fyrir fimm árum þegar hann byrjaði að þetta yrði á þessum tíma orðið með stærri fyrirtækjum í uppsveitum Árnessýslu með nær 50 manns í vinnu. Þakkaði hann síðan á ensku öllu því frábæri starfsfólki sem með þeim starfar. Öll væru þau einstök. Að þessu loknu lék Jónína veitingastjóri eitt lag á gítar.  
 
Þingmennirnir Ásmundur Friðriksson og Páll Magnússon voru að sjálfsögðu mættir til að gleðjast með eigendum Friðheima. Með þeim á myndinni er Sveinn A. Sæland, garðyrkjubóndi í Espiflöt, eða verðandi þingmaður, eins og Páll orðaði það. 
 
Við þetta tækifæri var Friðheimum veitt gæða- og umhverfisvottun Vakans, sem byggir á ítarlegri úttekt á staðnum og vinnuferlum. Hefur Rakel Theodórsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Friðheima, unnið að innleiðingu þessarar vottunar. Það var Áslaug Briem, verkefnastjóri gæðamála hjá Ferðamálastofu, sem veitti Friðheimum viður­kenninguna með formlegum hætti. Þar með eru Friðheimar orðin viðurkennd ferðaþjónusta. Því fylgdi einnig viðurkenning á veitingahúsinu og bronsmerki umhverfiskerfis Vakans, ásamt skilti og fána. 
 
Þá var komið að formlegri opnun á nýju byggingunni þar sem Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra klippti á borða. 
Halla tekur upp Íslenskt staðfest
Fréttir 28. mars 2024

Halla tekur upp Íslenskt staðfest

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis ...

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands
Fréttir 27. mars 2024

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands

Fjölmörg mál voru til afgreiðslu á nýliðnu Búnaðarþingi 2024, úr fimm nefndum, s...

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025
Fréttir 27. mars 2024

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025

Matvælaráðuneytið hefur tilkynnt um frestun á gildistöku banns við endurnýtingu ...

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi
Fréttir 27. mars 2024

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi

Fyrirkomulag landbúnaðarstuðningskerfis á Íslandi mun taka miklum breytingum ef ...

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst
Fréttir 26. mars 2024

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst

Fyrrverandi sláturhússtjóri á Vopnafirði ætlar ekki að láta deigan síga þrátt fy...

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal
Fréttir 26. mars 2024

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal

Niðurskurður á sauðfé frá bæjunum Eiðsstöðum og Guðlaugsstöðum í Blöndudal fór f...

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga
Fréttir 26. mars 2024

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga

Kornræktarfélag Suðurlands verður endurvakið sem viðskiptavettvangur ræktenda og...

Grípa þarf tækifærin
Fréttir 26. mars 2024

Grípa þarf tækifærin

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, telur að bændur eigi að leyfa sér að hor...