Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri í  Hörgársveit, á nýju byggingasvæði þéttbýliskjarnans á Lónsbakka. Verkefninu verður skipt upp í þrjá áfanga, fullbyggðar verða þar 90 íbúðir og um 400 íbúar. Svæðið er alls tæplega 27  ha að flatarmáli. Í fyrsta áfanga
Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri í Hörgársveit, á nýju byggingasvæði þéttbýliskjarnans á Lónsbakka. Verkefninu verður skipt upp í þrjá áfanga, fullbyggðar verða þar 90 íbúðir og um 400 íbúar. Svæðið er alls tæplega 27 ha að flatarmáli. Í fyrsta áfanga
Mynd / MÞÞ
Líf og starf 12. október 2018

Ný 90 íbúða stækkun Lónsbakkahverfis

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Það vantar tilfinnanlega hús­næði í sveitarfélaginu. Hér hefur sáralítið verið byggt af íbúðar­húsnæði í áraraðir,“ segir Snorri Finnlaugsson, sveitar­stjóri í Hörg­ár­sveit. Tveir þéttbýlis­kjarnar eru í Hörgársveit, á Hjalteyri og við Lónsbakka, og stendur til að byggja ný íbúðarhús á báðum stöðum í nánustu framtíð. 
 
Rúmlega 600 íbúar eru búsettir í Hörgársveit, sem er næsta sveitarfélag norðan Akureyrar, teygir sig norður að Fagraskógi við mörkin að Dalvíkurbyggð og innan þess eru Öxnadalur og Hörgárdalur þar sem mörk sveitarfélagsins eru á móti Akrahreppi við Grjótá á Öxnadalsheiði. Hörgársveit varð til árið 2010 þegar Arnarneshreppur sameinaðist Hörgárbyggð, en það sveitarfélag varð til með sameiningu þriggja hreppa, Glæsibæjarhrepps, Arnarneshrepps og Skriðuhrepps árið 2001. Hörgársveit er að stærstum hluta dreifbýli þar sem stundaður er hefðbundinn búskapur. 
 
Húsnæði skortir í Hörgársveit og hefur sáralítið verið byggt af íbúðarhúsnæði þar í áraraðir. Hér er þó eitt í byggingu, við Skógarhlíð á Lónsbakka.
 
Líflegt á Hjalteyri
 
Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur samþykkt að gefinn verði 50% afsláttur af gatnagerðargjaldi samkvæmt gildandi gjaldskrá á 10 lausum einbýlishúsalóðum við Brekkuhús á Hjalteyri. Þær lóðir eru í brekkunni ofan við eyrina. Snorri segir að til viðbótar standi til að byggja þrjú hús á eyrinni sjálfri, hús sem hefðu yfir sér „gamaldags“ yfirbragð í takt við þann tíðaranda sem ríkti þegar hús voru byggð á Hjalteyri á liðinni öld. „Við eigum einnig lausar fjórar lóðir undir frístundahús á þessu svæði við Hjalteyri og þær hafa notið vinsælda,“ segir Snorri.
 
„Staðan í sveitarfélaginu er góð hvað varðar lausar lóðir, framboðið er nægt og það er skortur á húsnæði. Við hlökkum til að sjá hver viðbrögð verða við auglýsingu um þessar lausu lóðir og væntum þess að þau verði góð,“ segir hann. „Við reynum ævinlega að hafa tiltækar byggingarhæfar lóðir fyrir þá sem vilja byggja.“
 
Nýtt hverfi reist á Lónsbakka
 
Í hinum þéttbýliskjarna sveitar­félagsins, á Lónsbakka, stendur einnig til að taka til hendinni og reisa ný hús við götu sem hlotið hefur nafnið Reynihlíð. Fyrir eru á svæðinu hús við tvær götur, Birkihlíð og Skógarhlíð, og þar er ein laus lóð. Um þessar mundir er sveitarfélagið að óska tilboða í gatnagerð og veitulagnir og verða þau opnuð upp úr miðjum september.
 
„Við gerum ráð fyrir að unnið verði við þessa jarðvegsvinnu í vetur og að næsta vor verði í boði fyrstu byggingarhæfu lóðirnar í nýju hverfi,“ segir Snorri. Í fyrsta áfanga þess er gert ráð fyrir að reisa 7 rað- og parhús, með alls 16 íbúðum og einnig þrjú fjölbýlishús. Þau verða misstór, frá fjórum og upp í 12 íbúðir í hverju.
 
Íbúar um 400 þegar hverfið verður fullbyggt
 
Snorri segir að uppbyggingu í Reynihlíðarhverfinu verði skipt upp í alls þrjá áfanga. Fullbyggt verða 90 íbúðir í hverfinu og íbúar í kringum 400 talsins í Lónsbakkahverfinu í heild. „Það kemur í ljós innan tíðar hver viðbrögð verða, við byrjum á að kanna þau áður en hafist verður handa við næstu skref, en í næsta áfanga er t.d. gert ráð fyrir smærri íbúðum sem ákveðin eftirspurn er eftir. Þetta verður því fjölbreytt hverfi, blanda af smærri íbúðum í fjölbýli, rað- og parhús og einnig einbýlishús,“ segir Snorri. 
 
Samstarf við leigufélög er fýsilegt
 
Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur einnig samþykkt að huga að því að auka framboð af leiguhúsnæði í sveitarfélaginu. Það á nú þrjár íbúðir í útleigu sem fyrst og fremst eru fyrir starfsmenn Þelamerkurskóla. Bæði á að skoða hvort sveitarfélagið geti ýtt undir aukið framboð með beinni þátttöku eða með öðrum leiðum, svo sem í samstarfi við aðra. Snorri segir að leigufélög, m.a. Búfesti, hafi sýnt áhuga á að reisa íbúðir í sveitarfélaginu og að þau mál séu á vinnslustigi. „Sveitarfélagið sjálft er í sjálfu sér ekki á þeim buxununum að reisa húsnæði til útleigu á eigin vegum, en okkur gæti þótt fýsilegur kostur að eiga samvinnu um slíkt verkefni við félög sem starfa á því sviði,“ segir hann. 
 
Byggja upp iðnaðarsvæði
 
Iðnaðarhverfi hefur undanfarin misseri verið í uppbyggingu á svæði skammt norðan við Húsasmiðjuna. Tvö hús eru þegar risin á því svæði, búið að úthluta tveimur lóðum sem eru tilbúnar en framkvæmdir enn ekki hafnar á þeim. Þá eru að sögn Snorra enn til tvær lausar lóðir á því svæði. Hann segir að margs konar starfsemi sé í gangi á hinu nýja iðnaðarsvæði, bílaviðgerðir, vélaverkstæði, þar sé flutnings- og vörubílaþjónusta, jarðverktaki og ökuskóli. „Það eru þarna m.a. fyrirtæki sem þurfa gott pláss fyrir sína starfsemi og sjá sér hag í að koma sér fyrir á þessu nýja iðnaðarsvæði okkar,“ segir hann.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...