Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Blóðtaka á Álftarhóli í Austur-Landeyjum. Alls var tekið blóð í um 24.000 skipti á árinu. Fjöldi blóðtökuhryssna var 4.141 á 90 starfsstöðvum.
Blóðtaka á Álftarhóli í Austur-Landeyjum. Alls var tekið blóð í um 24.000 skipti á árinu. Fjöldi blóðtökuhryssna var 4.141 á 90 starfsstöðvum.
Mynd / ghp
Fréttir 21. nóvember 2022

Minni framleiðsla blóðs

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Framleiðsla blóðtöku hefur minnkað töluvert síðan í fyrra vegna fækkunar bænda í starfsgreininni. Ástæðan rekja forsvarsmenn Ísteka ehf. til birtingar myndbands dýraverndarsamtakanna AWF, umfjöllun því tengdu og áhrif þess á bændur.

Þetta kemur fram í yfirliti yfir starfsemi Ísteka ehf. á blóðtökutímabilinu árið 2022.

Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka.

Starfsstöðvar voru 90 talsins og hafði fækkað um 30 bú síðan í fyrra. Alls voru 4.141 tæk í blóðsöfnun en heildarfjöldi hryssna í stóðum bænda var 4.779. Rúmur helmingur blóðtökuhryssna gaf blóð sjö eða átta sinnum og er hlutfall hryssna sem gefur hámarksmagn miðað við reglugerð hærra en meðaltal á viðmiðunartímabili fyrirtækisins.

Afurðaverð hækkaði

Í yfirlitinu kemur fram að nýtt greiðslukerfi til bænda hafi orðið til þess að vægi þeirra hryssna sem best gáfu af sér var aukið en þar að auki var grunntaxti blóðeininga hækkaður um 8%. Með þessu hækkaði andvirði blóðs hjá meðalgóðri framleiðsluhryssu úr 70.000 kr. í 95.000 kr. og er fullyrt að afurðaverð hafi hækkað að jafnaði um 35,7% milli ára.

Einnig kemur fram að eftirlitsdýralæknar Ísteka hafi heimsótt yfir 90% starfsstöðva á blóðtökutímabilinu. Þá hafi forsvarsmenn fyrirtækisins haft af því spurnir að MAST hafi heimsótt alla aðila á tímabilinu auk þess sem eftirlitsaðilar á vegum erlendra kaupenda lyfjaefnanna hafi heimsótt meirihluta bænda.

Lýsa furðu á framkomu AWF

Í yfirlitinu eru ástæður framleiðsluminnkunar raktar til áhrifa af birtingu myndbands dýraverndarsamtakanna AWF, sem höfðu þau áhrif á bændur að þeir upplifðu sig jaðarsetta. „Því miður tókst samtökunum það ætlunarverk sitt grátlega vel, að sannfæra margt fólk og samtök með rakalausum fullyrðingum sem þau heimfærðu á atvinnugreinina í heild“, segir í fréttatilkynningu Ísteka. Þá var ástæða samdráttarins einnig rakin til erfiðrar mönnunar í hópi dýralækna en þó hafi verið komið í veg fyrir tjón með „lipurð annarra dýralækna og ráðningu erlendra dýralækna“.

Segir enn fremur að bændur hefðu orðið varir við fulltrúa AWF í nágrenni 15 bæja. Segir að Ísteka hafi hafnað viðtali við þau og lýsi þau mikilli furðu á framkomu og verklagi hópsins sem hefði t.a.m verið ágengur gagnvart bændum.

„Markmiðið virðist beinlínis hafa verið að skapa þessar ógnandi aðstæður til að ná viðbrögðum bænda á filmu. Ísteka gerir ráð fyrir að efnið verði birt á næstu mánuðum í einhverju formi. Tekið skal fram að enginn varð var við faldar myndavélar í nágrenni sínu, hvort sem er á bæjarhlöðum eða við blóðtökur. Tíminn mun leiða í ljós hvort þær voru til staðar eða ekki. Vitað er að samtökin hafa um langt skeið haft mikinn áhuga á þeim bæjum þar sem Ísteka heldur sín stóð til að ná þar í efni enda telja þau áhrifin af því vera mun sterkari en upptökur frá bæjum almennt. Ekki fundust neinar faldar upptökuvélar í sumar en fyrrgreint upptökuteymi sást þó við einn þeirra og virtust þar vera að taka viðtöl við sig sjálf.“

Um fjörutíu endurtekin frávik

Samkvæmt reglugerð nr. 90/2022 um blóðtöku úr fylfullum hryssum ber að skrá öll frávik sem verða við blóðtöku, þar með talið tilvik um áberandi ótta eða streitu hjá merunum. Í yfirliti Ísteka segir að erfitt kunni að vera að skilgreina nákvæmlega hvað telst eiginlegt frávik en ákvörðun hafi verið tekin um að skrá frekar meira en minna. „Af um 24.000 blóðtökum voru skráð frávik í 391 tilviki (1,6%). Langflest tilvik voru skráð vegna hryssna sem sýndu einkenni túlkuð sem ótti eða streita. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra (90% tilvikanna) jafnaði sig (róaðist) strax eða meðan á dvöl í bás stóð. Endurtekin frávik voru skráð hjá 41 hryssu og er það eindregin ráðlegging Ísteka að eigendur þeirra íhugi vel hvort þær eigi heima í þessu hlutverki til frambúðar,“ segir í yfirlitinu.

Skráð slys voru fimm hjá hryssum og eitt hjá folaldi og afföll hryssna voru sjö talsins. „Þá voru á tímabilinu skráð tilvik sem kallast „ofbeiting valds“ í skráningarforminu teljandi á fingrum annarrar handar sem er samt of mikið. Að mati Ísteka er mjög nauðsynlegt að allir sem koma að vinnu við blóðtöku missi ekki sjónar á hlutverki sínu og leggi ávallt höfuðáherslu á velferð og nærgætni í umgengni sinni við hryssurnar. Þetta á að sjálfsögðu við í hvaða búfjárhaldi sem er,“ segir enn fremur í yfirlitinu.

Staðfest var að einn hundur hafi haft neikvæð áhrif á hryssur og segir að framvegis muni Ísteka gera þá kröfu að dýralæknar hefji ekki blóðtökur séu hundar nærstaddir.

Hryssur á vegum Ísteka

Fyrirtækið sjálft hélt 280 hryssur í fjórum hópum í sumar, sem fyrirtækið segir telja tæp 6% af heildarfjölda hryssna. Í yfirlitinu eru helstu frávik í þeim hópi talin upp. Þar með talið var of mikill hófvöxtur hjá nokkrum hryssum, hryssa sem lét folaldi sem þurfti að aflífa, mertryppi sem kastaði folaldi og tilfelli endurtekinna hegðunarfrávika sem urðu til þess að nokkrar hryssur voru teknar úr hópunum.

Í niðurlagi yfirlitsins segir að hrossabúskapur til framleiðslu blóðs til lyfjaframleiðslu og folaldakjöts sé eðlislíkur öðrum búskap að flestu leyti.

„Frávik, slys og afföll verða vissulega í þessari starfsemi eins og annarri en þau eru fá miðað við það sem þekkist úr öðrum rekstri. Það ber því þessu fallega en oft misskilda búskaparformi vel söguna, búskap sem getur hentað mun fleirum en nú þegar stunda hann. Markmiðið og stöðug vinna Ísteka er að skerpa sem kostur er á öllum verkferlum til að lágmarka frávik af hvaða tagi sem er, búskapnum í heild til framdráttar.“

Skylt efni: Ísteka | blóðmerar

Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri
Fréttir 14. mars 2026

Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri

Dagana 16.-17. mars næstkomandi verður nýsköpunarvinnustofa í Landbúnaðarháskóla...

Fólk fylgir ekki næringarráðleggingum
Fréttir 13. mars 2026

Fólk fylgir ekki næringarráðleggingum

Offita er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Danir fylgja ekki opinberum næ...

Ostur er ostur
Fréttir 13. mars 2026

Ostur er ostur

Í gær vísaði Landsréttur máli Danóls ehf. gegn ríkinu vegna tollflokkunar á pizz...

Tæp 60% hafa aðgang að afleysingu
Fréttir 13. mars 2026

Tæp 60% hafa aðgang að afleysingu

Um 57% bænda í Bændasamtökum Íslands hafa aðgang að afleysingafólki samkvæmt kön...

Beðið eftir stefnumótun fyrir garðyrkjunám á Íslandi
Fréttir 12. mars 2026

Beðið eftir stefnumótun fyrir garðyrkjunám á Íslandi

Enn er beðið eftir pólitískri stefnumótun um málefni garðyrkjunáms á Íslandi, en...

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum
Fréttir 12. mars 2026

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum

Í undirbúningi er átak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum í umsjón Lands og sk...

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði
Fréttir 12. mars 2026

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði

Alls uppfylltu 47 kúabú skilyrði Auðhumlu um framleiðslu á úrvalsmjólk alla mánu...

Setja ætti niður samningsmarkmið
Fréttir 12. mars 2026

Setja ætti niður samningsmarkmið

Bændasamtök Íslands (BÍ) setja sig ekki upp á móti því að áframhald viðræðna við...