Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Ný stjórn deildar loðdýrabænda; Bjarni Stefánsson í Túni og feðgarnir Ásgeir Pétursson og Pétur Ásgeirsson á Dalsá.
Ný stjórn deildar loðdýrabænda; Bjarni Stefánsson í Túni og feðgarnir Ásgeir Pétursson og Pétur Ásgeirsson á Dalsá.
Mynd / Sigurður Már Harðarson
Fréttir 9. apríl 2026

Loðdýrabændur starfa áfram í deild Bændasamtaka Íslands

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Einungis eitt bú enn starfandi

Loðdýrabændur munu áfram starfa í sérstakri búgreinadeild, þó einungis eitt bú standi eftir á Dalsá í Mosfellssveit þar sem feðgarnir Ásgeir Pétursson og Pétur Ásgeirsson stýra búrekstri minkabús.

Í lok síðasta árs bárust fréttir af því að öll fimm minkabúin á Suðurlandi hefðu ákveðið að hætta búrekstri. Í nýrri stjórn deildarinnar eru feðgarnir ásamt Bjarna Stefánssyni í Túni í Flóa, sem þó er hættur búskap á sínu búi.

Trúnaðartraust skortir milli Matvælastofnunar og bænda

Fráfarandi stjórn skipuðu þau Björn Harðarson formaður, Veronika Narfadóttir og Hjalti Logason.  Á deildarfundinum voru samþykktar tvær tillögur, báðar sem viðbragð við fréttaflutningi Ríkisútvarpsins í fréttaskýringaþættinum Kveik um meintan slæman aðbúnað minka á nokkrum búum.

Í fyrri tillögunni er því beint til Búnaðarþings Bændasamtaka Íslands að persónugreinanleg gögn úr eftirlitsskýrslum Matvælastofnunar séu ekki gerð opinber. Fundurinn hvetur stjórn Bændasamtaka Íslands til að taka upp samtal við Matvælastofnun til að byggja upp trúnaðartraust milli stofnunarinnar og bænda.

Í rökstuðningi með tillögunni segir að fullur trúnaður þurfi að vera til staðar milli eftirlitsstofnunar og eftirlitsþega enda hafi eftirlitsstofnun eins og Matvælastofnun víðtækar heimildir til inngrips og aðgerða á meðan dýraeigendur hafi takmarkaðan rétt. Þannig sé tekið fram í verklagsreglum Matvælastofnunar að munnleg athugasemd við framkvæmd eftirlits geti talið óásættanleg hegðun eftirlitsþega.

Félagsmenn séu varðir fyrir skipulagðri glæpastarfsemi

Í seinni tillögunni er því einnig beint til  Búnaðarþings Bændasamtaka Íslands að gera aðgerðaráætlun til að verja félagsmenn fyrir skipulagðri glæpastarfssemi í sveitum landsins.

Í rökstuðningi segir að nýlega hafi Ríkisútvarpið auglýst í sjónvarpi sínu að auðvelt væri að fremja innbrot hjá bændum og auðvelt væri að finna bæi þar sem auðvelt væri að brjótast inn. Ríkisútvarpið hafi einnig upplýst um að stofnunin væri í samstarfi við aðila sem fremja innbrot hjá bændum. Með skipulagðri glæpastarfssemi sé einnig átt við skipulögð mannorðsmorð íslenskrar ríkisstofnunar á íslenskum borgurum.

Skylt efni: Loðdýr | Búnaðarþing

Ísteka fær skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum
Fréttir 13. maí 2026

Ísteka fær skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum

Matvælastofnun hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt sta...

Bragðarefur í Grasagarði Reykjavíkur
Fréttir 13. maí 2026

Bragðarefur í Grasagarði Reykjavíkur

Mánudaginn 18. maí verður fræðsluganga um Grasagarð Reykjavíkur í tilefni af alþ...

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
Fréttir 13. maí 2026

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi

Tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi og kv...

100 ára afmæli fagnað með hátíðardagskrá
Fréttir 13. maí 2026

100 ára afmæli fagnað með hátíðardagskrá

Reykholt í Biskupstungum er einn af byggðakjörnum Bláskógabyggðar en þar búa um ...

Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði
Fréttir 13. maí 2026

Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði

Ljóð munu flæða um götur, sundlaugar, veggi og verslanir á Egilstöðum og Seyðisf...

Fundað um líffræðilega fjölbreytni
Fréttir 12. maí 2026

Fundað um líffræðilega fjölbreytni

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fundaði með Astri...

Æðarbændur kynna fullunnar vörur
Fréttir 12. maí 2026

Æðarbændur kynna fullunnar vörur

Vöruhönnuðir þróa nú fullunnar vörur úr eigin dúni og kynna nýtt vörumerki á Hön...

Ísland segir sig frá Orkusáttmálanum
Fréttir 12. maí 2026

Ísland segir sig frá Orkusáttmálanum

Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá Orkusáttmálanum (ECT). Úrsögnin teku...