Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Toyota Mirai árgerð 2021. Búinn rafmótorum sem fá orku sínu frá vetnis-efnarafal, en ekki rafhlöðum.
Toyota Mirai árgerð 2021. Búinn rafmótorum sem fá orku sínu frá vetnis-efnarafal, en ekki rafhlöðum.
Fréttir 20. janúar 2021

Kemst allt að 640 km á einni fyllingu

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Toyota setti á markað í Banda­ríkjunum í byrjun desember, 2021-útgáfu af sportlegum Toyota Mirai sem er búinn efnarafal sem gengur fyrir vetni (hydrogen fuel cells). Fyrsta árgerð þessa bíls kom á markað í Kaliforníu 2015, en nýi bíllinn er verulega mikið breyttur. Þá er hann ekki lengur með framdrifi, heldur afturhjóladrifi eins og alvöru sportbíll.

Vetnisknúnir rafbílar virðast vera það sem æ fleiri bílaframleiðendur veðja nú helst á til lengri framtíðar, sérstaklega varðandi stór og þung ökutæki. Ástæðan er einkum minni tími sem fer í að hlaða orku á bílinn en raunin er með rafbíla. Þá er ekki síðri ástæða að þá þarf ekki lengur að treysta á mjög dýrar lithium-Ion rafhlöður sem eru auk þess afar umdeildar, verulega óvistvænar í framleiðslu og dýrar í förgun. Vetnistæknin er þó ekki heldur ókeypis og áfyllingarstöðvar eru dýrar enn sem komið er.

Ætlað að ýta undir innviða­uppbyggingu fyrir vetni

Frumgerðin af Toyota Mirai 2021 módelinu var fyrst frumsýnd á Los Angeles bílasýningunni 2019, að því er fram kemur á vefsíðu Green Car Reports. Vonast Toyota til að nýi bíllinn muni ýta undir uppbyggingu dælustöðva fyrir vetni í Bandaríkjunum sem líka verður orkumiðill á stórum bílum sem Toyota er með í farvatninu. Sami vandi blasir við á Íslandi, þar sem nánast engin áhersla hefur verið á uppbyggingu innviða fyrir vetni. Landsvirkjun hefur samt bent á nauðsyn á slíku ef menn hugsi í alvöru um orkuskipti á Íslandi.

Innviðir hins nýja Toyota Miriai er talsvert öðruvísi en í hefðbundnum bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.

Kemst allt að 640 km á tankafyllingunni

Drægni þessara vetnisknúnu rafbíla er ansi góð. Á meðan 2020 gerðin komst 499 km, eða 312 mílur á tankfylli, kemst nýja 2021 gerðin um 640 km, eða 400 mílur á einni tankafyllingu. Svipaðan tíma tekur síðan að fylla á tankana eins og á hefðbundnum bensín- eða dísilbíl. Það er því engin pirrandi löng töf á að hlaða orku á bílinn sem væri raunin ef hann notaðist eingöngu við rafhlöður. Bæði vetnisknúnu efnarafalsbílarnir og hreinræktaðir rafbílar með rafhlöðum notast þó við sams konar eða svipaða rafmótora til að drífa bílinn áfram.

Með því að hafa afturhjóladrif í bílnum segir Toyota meiri möguleika skapast til að koma fyrir vetnisgeymum í þessum sportbíl og næstu kynslóð af efnarafal.

Með svipaðan lúxus og hefðbundnir bensín- og dísilbílar

Toyota Mirai kemur m.a. í XLE útgáfu sem er með hita í sætum, lofthreinsikerfi, niðurfellanlegum hliðarspeglum með innbyggðum hliðarljósum. Þá verður hægt að velja úr nokkrum litum á bílnum, hvítum, svörtum, rauðum og djúpum málmlit, væntanlega gráum. Þá mun vera boðið upp á takmarkaðan fjölda eintaka í Hydro Blue lit.

Toyota efnarafallinn breytir vetni í raforku og út um pústið kemur hrein vatnsgufa.

Þakið er úr gleri með fyrirdraganlegu sólskyggni og afturgluggar eru skyggðir.

Boðið er upp „Faux“ leður­klæðningu á sætum í svörtu og hvítu útgáfunum.

Undir bílnum eru 19 tommu felgur, en hægt er að fá stærri felgur í Limited útgáfu bílsins.

Í öllum Mirai bílunum er 12,3 tommu upplýsingaskjáir í mælaborði sem eru vel staðsettir fyrir ökumann. Upplýsingakerfið notast við Android Auto stýrikerfi og Apple CarPlay sem samhæfð eru Amazon Alexa kerfinu. Þá er þráðlaust hleðslukerfi fyrir aukabúnað.

Mirai er einn af þremur bílgerðum frá Toyota sem verða með nýja árekstrarviðvörunarkerfinu „Toyota Safety Sense 2,5+“. Kerfið varar ökumann m.a. við gangandi umferð og hjólreiðafólki. Þá les kerfið umferðarmerki, akreinamerki og fleira.

Stefnir í slag milli rafhleðslu- og vetnisbíla?

Virðist því stefna í harðan slag á milli rafhlöðubíla og vetnisbíla á komandi árum, ekki ólíkt því sem fólk þekkti við innleiðingu á myndbandstækninni þegar hatrömm barátta var á milli VHS og Beta kerfanna auk fleiri kerfa þar sem VHS náði yfirhöndinni.

Nissan „lúffar“ í hörðum átökum um rafhleðslukerfi

Slagur hefur reyndar verið í gangi um árabil á milli ólíks rafhleðslubúnaðar rafbílaframleiðenda. Hefur þetta tafið mjög og aukið kostnað vegna innviðauppbyggingar vegna rafbíla. Nissan hefur gengið fast eftir að fá CHAdeMO-hleðsluformatið sem staðlað kerfi. Nú hefur Nissan gefist upp og mun taka upp CCS hraðhleðslukerfi og Tesla hefur síðan verið með sitt eigið kerfi. Nýr Nissan Ariya crossover rafmagnsbíllinn frá Nissan verður t.d. gerður fyrir CCS hleðslubúnað og velta menn því fyrir sér hvort Tesla verði tilneytt til að taka líka upp CCS kerfið.

Meðan ekki tekst að framleiða rafhlöður úr öðrum, ódýrari, léttari og vistvænni efnum en raunin er í Lithium-Ion rafhlöðunum, þá er þó alveg mögulegt að vetnisknúnu bílarnir geti haft vinninginn, allavega á veigamiklum sviðum. 

Skylt efni: vetni | vetnisbílar

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...