Jarðakaup erlendra aðila skoðuð
Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, hefur skipað sérfræðihóp sem falið er að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum á Íslandi.
Hópnum er einnig ætlað að greina framtíðaráskoranir tengdar erlendu eignarhaldi jarða og hvort þörf sé á að leggja til breytingar á lögum til að takmarka frekar jarðakaup erlendra aðila hér á landi eða gera aðrar ráðstafanir. Þetta kemur fram í frétt á heiðasíðu ráðuneytisins.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili skýrslu sem lögð verður fram á Alþingi og nýtt sem innlegg í fyrirhugað frumvarp um breytingu á jarðalögum sem verður lagt fram af atvinnuvegaráðherra á næsta þingvetri.
Friðrik Árni Friðriksson Hirst, aðjúnkt við Háskóla Íslands, er formaður hópsins.
Áformað er að starfhópurinn skili skýrslu fyrir 1. mars 2027 sem atvinnuvegaráðherra mun leggja fram á Alþingi.
