Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Dæmi eru um að byggja má upp öfluga og góða þjónustu ríkisstofnana þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað.
Dæmi eru um að byggja má upp öfluga og góða þjónustu ríkisstofnana þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað.
Mynd / Þórgnýr Dýrfjörð
Fréttir 8. júlí 2017

Góðar fyrirmyndir til staðar en stefnu stjórnvalda skortir

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Margar vel heppnaðar fyrir­myndir eru til staðar og þekking á því hvernig standa megi að opnun og eflingu starfsstöðva opinberra stofnana af höfuðborgarsvæðinu úti á landsbyggðinni, en stefnu stjórnvalda skortir sárlega. Þetta má segja að hafi verið ein af niðurstöðum fundar sem Akureyrarstofa og Atvinnu­þróunarfélag Eyjafjarðar stóðu fyrir á Akureyri nýverið. 
 
Markmið fundarins var að hvetja stofnanir og fyrirtæki til að skoða þau tækifæri sem felast í því að styrkja starfsstöðvar sínar vítt og breitt um landið, m.a. með því að setja upp dreifða starfsemi með sérhæfingu og þekkingu á völdum stöðum eða með því að skilgreina störf án staðsetningar. Greint er frá ráðstefnunni á vefsíðu Akureyrarbæjar.
 
Fram kom að nauðsynlegt sé að stjórnvöld taki grundvallarákvörðun um að byggja upp tvo borgarkjarna á Íslandi og að það sé góð leið til að tryggja jafnari dreifingu þjónustu og opinberra starfa á landinu og þar með byggðar.
 
Vantar skýrari stefnu
 
Guðmundur Baldvin Guðmunds­son, formaður bæjarráðs Akureyrar, ræddi augljósa kosti þess fyrir landsbyggðirnar og íbúa að fyrirtæki og stofnanir byggi upp starfsstöðvar víðar en bara þar sem markaður er stærstur og nefndi einnig að skýrari stefnu stjórnvalda um opinberar stofnanir skorti.
 
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri og Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár, sögðu frá sínum stofnunum og tóku dæmi um hvernig má byggja upp öfluga og góða þjónustu þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað á landinu. 
 
Þegar embætti skattstjóra á landinu voru sameinuð undir einum hatti ríkisskattsjóra varð í raun til ný stofnun og miklar breytingar urðu m.a. með þeirri afleiðingu að störfum á starfsstöð á Akureyri fjölgaði. Starfsfólki Þjóðskrár á Akureyri hefur líka fjölgað jafnt og þétt á síðustu árum. Í máli beggja mátti heyra að það hvað Akureyri er öflugur þjónustukjarni, skipti miklu máli þegar lagt var af stað og ræður miklu um það hversu vel hefur gengið. Skúli nefndi sérstaklega að Akureyri hafi marga þætti sem borg hefur og það hafi skipt sköpum. 
 
Rafræn stjórnsýsla forsenda þess að skipulag gangi snurðulaust
 
Fram kom hjá báðum að rafræn stjórnsýsla er forsenda þess að þjónusta og skipulag gangi snurðulaust fyrir sig. Þá nefndu þau bæði að tilvist Háskólans á Akureyri er og var grundvallaratriði í að árangur hefur náðst. Skipulag beggja stofnananna felur í sér að sérhæfð svið þeirra eru staðsett á Akureyri þannig að til verður sérþekking og teymi margra starfsmanna sem vinna að sömu verk­efnum. Skúli nefndi sérstaklega að mikil tíðni flugferða milli Akureyrar og Reykjavíkur hafi verið stór þáttur í að byggja upp á Akureyri á sínum tíma og að fækkun ferða á þessari leið hafi bitnað t.a.m. á fundarhaldi á Akureyri.
 
Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra, var síðastur frummælenda. Hann brýndi fólk til dáða og sagði frá öflugri stefnu Dana í flutningi valdra stofnana frá Kaupmannahöfn. Danir hafa sett sér það markmið að 11,5% opinberra starfa verði flutt frá höfuðborgarsvæðinu. 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...