Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Frá afgreiðslu mála í Súlnasal á þriðjudaginn.
Frá afgreiðslu mála í Súlnasal á þriðjudaginn.
Mynd / smh
Fréttir 25. mars 2021

Einungis sjö mál til afgreiðslu frá Búnaðarþingi

Höfundur: smh

Einungis sjö mál lágu fyrir Búnaðarþingi að þessu sinni. Öll voru þau samþykkt samhljóða í Súlnasal síðastliðinn þriðjudag. Veigamesta málið fjallaði um tillögu að nýju félagskerfi bænda, með sameiningu Bændasamtaka Íslands (BÍ) og búgreinafélaganna.

Félagskerfi bænda

Í greinargerð er því beint til þeirra búgreina, sem tryggja skulu landfræðilega dreifingu á búgreinaþingi, að við kosningu fulltrúa á búgreinaþing sé höfð til hliðsjónar svæðisskipting landsins eins og hún liggur fyrir í gögnum.

Markmiðið með breytingunum er að ná aukinni skilvirkni í félagskerfinu og eflingu hagsmunagæslu í landbúnaði.

Lagt fram um mitt ár 2021

Því er enn fremur beint til þeirra aðildarfélaga, sem hyggjast sameinast Bændasamtökum Íslands, að gera nauðsynlegar ráðstafanir og breytingar á sínum samþykktum svo sameiningin megi ganga í gegn um mitt ár 2021. Stefnt er að því að nýjar samþykktir BÍ, þingsköp Búnaðarþings og búgreinaþings verði lagt fyrir til samþykktar á aukabúnaðarþingi 10. júní 2021.

Rannsóknir á kolefnisspori í íslenskum landbúnaði

Búnaðarþing 2021 telur brýnt að auka þekkingu og skilning á kolefnisferlum í íslenskri landbúnaðarframleiðslu. Þar þurfa innlendar vísindastofnanir að stíga fram með haldbærri þekkingu og hagnýtum lausnum. Búnaðarþing 2021 beinir því til Alþingis að auka fjármagn til rannsókna á kolefnisspori íslensks landbúnaðar. Búnaðarþing 2021 beinir því til Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) að taka forystu í rannsóknum á losun og bindingu kolefnis í landbúnaði á Íslandi. Búnaðarþing 2021 beinir því til LbhÍ að búrekstur skólans verði fyrirmynd í loftslagsvænum aðgerðum. 

Þróun vísindastarfs í landbúnaði

Styrkja þarf samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar með öflugra vísinda-, mennta- og rannsóknastarfi í greininni.

Stjórn BÍ er falið að kynna sér þessi mál og leggja fram greinargerð á Búnaðarþingi 2022.

Afleysingaþjónusta fyrir bændur

Búnaðarþing 2021 samþykkir að koma á afleysingaþjónustu fyrir bændur vegna veikinda eða slysa. Lagt er til að gerður verði samningur milli Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga, Vinnumálastofnunar og Bændasamtaka Íslands um fjárstuðning vegna afleysinga ef upp koma veikindi, slys eða önnur óvænt áföll í búrekstri, sem valda því að bændur geti af þeim sökum ekki sinnt búum sínum.  

Nýliðun í landbúnaði 

Búnaðarþing 2021 ályktar að styðja þurfi betur við nýliðun í landbúnaði.  Er stjórn BÍ falið að vinna að málinu meðal annars í tengslum við endurskoðun búvörusamninga. Lagt er til að unnin verði úttekt á því hvernig núverandi fyrirkomulag hefur reynst í ljósi fjölda umsókna og þeirra fjármuna sem hafa verið til úthlutunar. Niðurstöður úttektarinnar verði nýttar í endurskoðun Rammasamnings í samstarfi við Samband ungra bænda og Ráðgjafarmiðstöðvar í landbúnaðar.

Aukin tryggingavernd bænda  

Búnaðarþing 2021 kallar eftir heildstæðri endurskoðun á tryggingamálum bænda, þar með talið á lögum um Bjarg-ráðasjóð. Markmiðið er að auka tryggingavernd bænda, fyrirsjáanleika og skilvirkni við uppgjör á tjónum í landbúnaði.  Stjórn BÍ er falið að kalla eftir því að skipaður verði starfshópur með fulltrúum BÍ, tryggingafélaga, Náttúruhamfaratrygginga Íslands og ráðuneyta þar sem farið verði heildstætt yfir tryggingamál bænda.

Sýklalyfjaónæmi 

Búnaðarþing 2021 krefst þess að íslensk stjórnvöld láti heilbrigði landsmanna njóta vafans umfram viðskiptahagsmuni innflutningsaðila þegar kemur að sjúkdómavörnum á Íslandi.

Í greinargerð kemur fram að sýklalyfjaónæmi sé orðin ein stærsta heilbrigðisógn í heiminum í dag. Því hvetji Búnaðarþing stjórnvöld til þess að gæta hagsmuna bænda í þessu mikilvæga máli og standa fast á réttinum til þess að verjast sýklalyfjaónæmi eins og kostur er.

Skylt efni: Búnaðarþing 2021