Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Frá landnámi hefur íslenski fjárhundurinn reynst bændum mjög vel við rekstur og smölun á kindum og öðrum búfénaði og lengi vel bjuggu þeir nánast eingöngu í sveitum landsins.
Frá landnámi hefur íslenski fjárhundurinn reynst bændum mjög vel við rekstur og smölun á kindum og öðrum búfénaði og lengi vel bjuggu þeir nánast eingöngu í sveitum landsins.
Mynd / Sóley Ragna
Fréttir 27. júlí 2022

Dagur íslenska fjárhundsins haldinn hátíðlegur

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Mikill áhugi er á íslenska fjárhundinum og ræktun hans enda fjölgar þeim stöðugt í landinu. Ekki eru nema um 70 ár síðan tegundin var í útrýmingarhættu.

„Á fyrri hluta 20. aldar fækkaði hundum ört á Íslandi en það var bein afleiðing hundabannsins, sem sett var á 1924. Enn frekar hafði aukinn innflutningur annarra tegunda áhrif á stofnstærð íslenska fjárhundsins, en um 1960 var nánast hvergi að sjá þessa vinalegu hunda, með uppréttu eyrun og hringaða skottið. Með mikilli vinnu, skipulagi og alúð tókst góðum hópi af fólki að finna tegundatýpíska hunda um allt land og byggja upp stofn af fallegum, kynsterkum íslenskum fjárhundum,“ segir Sóley Ragna Ragnarsdóttir, sem er í forsvari fyrir vinnuhóp dags íslenska fjárhundsins, sem er 18. júlí ár hvert. Hún er líka eigandi slíks hunds og hefur gert mikið af því að taka ljósmyndir af tegundinni.

Í dag eru um eitt þúsund íslenskir fjárhundar á Íslandi og fer þeim alltaf fjölgandi. Sóley Ragna hvetur alla til að kynna sér okkar frábæra þjóðarhund enda trygglyndir, vinnusamir fjölskylduhundar, sem þjóðin má vera stolt af.
Þúsund hundar í landinu

Sóley segir að öflugir ræktendur og unnendur tegundarinnar hafi tekið við keflinu og í dag er stofn íslenska fjárhundsins ört vaxandi. Það eru um 80 ræktendur innan Hundaræktarfélags Íslands að rækta íslenska fjárhunda og talið er að um 1.000 hundar séu á landinu í dag.

„Íslenski fjárhundurinn er eini þjóðarhundur Íslands og þrátt fyrir að svipa töluvert til skyldra hundategunda á Norðurlöndum býr tegundin yfir ýmsum eiginleikum sem greinir íslenska fjárhundinn frá öðrum tegundum. Sambland af miklu vinnueðli, sjálfstæði og ljúfu geðslagi gera íslenska fjárhundinn að frábærum vinnu- og heimilishundi. Eitt af einkennum tegundarinnar er þéttur, veðurþolinn feldur sem gerir þeim kleift að þrífast vel í öllum veðrum og vindum,“ segir Sóley.

Íslenskir bændur og íslenski fjárhundurinn hafa átt einstakt samband frá landnámi, enda mikið um hundakynið í sveitum landsins.

Mikið af hundum erlendis

Að sögn Sóleyjar hefur íslenski fjárhundurinn verið nokkuð eftirsóttur erlendis.

Til séu heimildir frá 15. öld um að enskar hefðarkonur og bændur hafi sóst eftir íslenskum fjárhundum og keypt þá dýrum dómum.

„Undanfarin 20-30 ár hefur áhuginn á tegundinni erlendis aukist til muna, þá sérstaklega í Svíþjóð og Danmörku en einnig víðar í Evrópu og í Ameríku,“ segir Sóley aðspurð hvort hundategundin sé mikið hjá fólki sem býr erlendis.

Hún segir enn fremur að sjarmi og fegurð íslenska fjárhundsins sé óumdeild og hefur ásamt áhugaverðri sögu tegundarinnar, kveikt áhuga fólks um allan heim á dásamlega þjóðarhundi okkar Íslendinga.

Íslenski fjárhundurinn á 18. júlí

Dagur íslenska fjárhundsins var haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn 18. júlí síðastliðinn, en tilgangur dagsins er að vekja athygli á honum.

Unnendur íslenska fjárhundsins hittust um allan heim með hundana sína og nutu dagsins. Til að mynda voru skipulagðir viðburðir í Árbæjarsafni og í Glaumbæ þar sem gestir og gangandi gátu fræðst um íslenska fjárhundinn og sögu tegundarinnar.

Á Þingvöllum, Selfossi og meira að segja í Svíþjóð og Danmörku voru skipulagðar göngur þar sem íslenskir fjárhundar stálu senunni og stoltir eigendur vöktu mikla lukku.

Saga tegundarinnar

Dagur Íslenska fjárhundsins verður að sjálfsögðu haldinn aftur að ári, þann 18. júlí 2023. Þema dagsins þá verður saga tegundarinnar og óskar vinnuhópur dagsins eftir myndum af íslenskum fjárhundum.

„Við hvetjum því alla til að fara í gegnum myndaalbúmin sín, kíkja í gömlu kassana í geymslunni og rýna í myndirnar sem hanga upp á vegg hjá ömmu og afa. Ef þú kemur auga á fallega mynd af íslenskum fjárhundi sem var fæddur fyrir árið 2003 má endilega senda hana á netfangið difdagur@gmail.com,“ segir Sóley.