Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Ásthildur Skjaldardóttir, bóndi á Bakka á Kjalarnesi, Kolbrún Silja Ásgeirsdóttur, kynningar- og fjáröflunarstjóri, Krabbameinsfélags Íslands og Elías Hartmann Hreinsson, deildarstjóri búvörudeildar Sláturfélags Suðurlands.
Ásthildur Skjaldardóttir, bóndi á Bakka á Kjalarnesi, Kolbrún Silja Ásgeirsdóttur, kynningar- og fjáröflunarstjóri, Krabbameinsfélags Íslands og Elías Hartmann Hreinsson, deildarstjóri búvörudeildar Sláturfélags Suðurlands.
Mynd / smh
Fréttir 8. desember 2016

Bændur afhenda styrk vegna sölu á bleika rúlluplastinu

Höfundur: smh

Elías Hartmann Hreinsson, deildarstjóri búvörudeildar Sláturfélags Suðurlands, og Ásthildur Skjaldardóttir, bóndi á Bakka á Kjalarnesi, afhentu fyrir skemmstu Krabbameinsfélagi Íslands 900 þúsund krónu styrk sem safnaðist af sölu á bleiku rúlluplasti í vor og sumar.

Það var Kolbrún Silju Ásgeirsdóttur, kynningar- og fjáröflunarstjóri, Krabbameinsfélags Íslands, sem veitt styrknum formlega viðtöku við bleikar rúllustæðurnar á Bakka. Styrkurinn skiptist á milli þriggja aðila; bænda, Trioplast (sænska plastframleiðandans) og þeirra sem selja bleika plastið hér á Íslandi. Hver um sig samþykkti að láta 1 evru renna til Krabbameinsfélags Íslands, sem samsvaraði  samanlagt 425 krónum af hverri seldri plastrúllu. Andvirði söfnunarfjár átaksins mun, að sögn Kolbrúnar, ganga til endurnýjunar tækja til brjóstamyndatöku í Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.

Í fyrsta sinn á Íslandi

Það var í fyrsta skiptið á liðnu sumri sem bleikar heyrúllur skreyttu tún íslenskra bænda og að sögn Elíasar, sem hafði frumkvæðið að því að prófa þetta hér á landi, frétti hann af sambærilegum verkefnum frá nágrannalöndum okkar. „Viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum og það kom á daginn að við áttum ekki allt það bleika plast sem við hefðum getað selt. Við erum því reynslunni ríkari fyrir næsta sumar.“  Uppruna slíkra verkefna mun þó vera hægt að rekja til Nýja-Sjálands og viðskiptavina Trioplast þar í landi. Bændakonur þar í landi óskuðu eftir því að bleikt rúlluplast yrði framleitt til að minna á árvekni vegna brjóstakrabbameins. Í framhaldinu voru gerðar tilraunir og í framhaldinu var slíkt plast tekið til sölu í Nýja-Sjálandi og í kjölfarið fylgdu meðal annars Noregur, Svíþjóð, Þýskaland, Sviss, Bretland og Írland.

Barnabörnunum finnst þetta æðislegur litur

Ásthildur bóndi á Bakka sagði við afhendingu styrksins að flestir þekktu til einhverra sem hefðu greinst með brjóstakrabbamein. „Okkur fannst bara upplagt að styrkja verkefnið. Við höfum misst allt of marga, allt of unga úr brjóstakrabbameini og þetta er góð leið til að sýna samstöðu og styrkja Krabbameinsfélagið. Okkur þykir bleiki liturinn bara fallegur og barnabörnunum okkar finnst hann alveg æðislegur. Þetta er bara skemmtilegt,“ segir Ásthildur.

Söluaðilar bleika rúlluplastsins hér á landi eru Kaupfélag Skagfirðinga, Bústólpi, Sláturfélag Suðurlands og Kaupfélag Vestur Húnvetninga, Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag Steingrímsfjarðar og KM þjónustan Búðardal.

Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein hjá íslenskum konum og greinast 200 konur á hverju ári. Ein af hverjum níu fær brjóstakrabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Það er eitt fárra krabbameina sem hægt er að greina á byrjunarstigum með skipulagðri leit. Allar konur á aldrinum frá 40 til 69 ára fá boð frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins um að mæta í leit að brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti. 

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...