Flottasti strumpastrætóinn
– Prufuakstur á Kia PV5 Passenger
Að þessu sinni fékk Bændablaðið til prufu Kia PV5 Passenger sem er fimm manna fólksbíll byggður á vinsælasta sendibíl landsins.
Útlit PV5 er mjög ólíkt öllu öðru sem er á markaðnum og sker hann sig úr á góðan hátt. Bíllinn er afgerandi kantaður í útliti og ætti vel heima í kvikmynd sem gerist í háþróaðri veröld eftir 50 ár. Þrátt fyrir að vera framúrstefnulegur er PV5 augljóslega Kia, en margt í útlitinu vísar til annarra bíla frá sama framleiðanda, en þar má sérstaklega nefna aðalljósin sem eru mjó lína með skörpum hornum. Ljósgræni liturinn á því eintaki sem blaðamaður fékk til prufu gæti allt eins verið fenginn að láni frá einhverjum hergagnaframleiðanda.
Þrír stórir farþegar í aftursætum
Aðaleiginleiki Kia PV5 er hið mikla pláss. Þetta er fimm sæta bíll og eru framsætin ekkert ólík því sem er í flestum stærri fólksbílum. Aftursætin eru hins vegar með því stærsta sem gerist á markaðnum, en þar gætu þrír landsliðsmenn í körfubolta setið hlið við hlið án þess að þrýsta of mikið á hver annan. Þá er skottið stærra en í stærstu jeppum og er það nánast fullkomlega ferkantað í forminu, enda PV5 í grunninn sendibíll. Skotthlerinn á fólksbílaútgáfu PV5 opnast upp og er það hár að áðurnefndir landsliðsmenn gætu staðið þar vandræðalaust undir.
Aftari dyrnar eru rafmagnsknúnar rennihurðir sem er hægt að virkja með því að taka í húninn, ýta á takka við hlið hurðarinnar eða í mælaborðinu, eða með takka á fjarstýringunni. Hliðarrúðurnar að aftan eru ekki rafknúnar, heldur eru þetta litlir gluggar sem dregnir eru með handaflinu eftir brautum. Gluggarnir á afturhurðunum eru skyggðir og nokkuð litlir, þannig að hjá aftari farþegunum er nokkuð dimmt. Aðgengi að aftursætunum er með allra besta móti, en í B-boganum eru þægileg handföng og gólfið í farþegarýminu er lágt á meðan sætin sjálf eru í góðri hæð.
Hurðirnar frammi í eru sérstakar að því leyti að hurðaspjöldin eru óvenju þykk. Því getur verið erfitt fyrir þá sem eru ekki tággrannir að komast út sé bílnum lagt í þröngt stæði. Plássið frammi í hefði nýst betur ef hurðaspjöldin hefðu verið þynnri og sætin færð örlítið til hliðar, en þá hefði verið hægt að bæta við einu sæti í miðjuna, eða gera göngufært milli aftari og fremri sæta.
Sætisstaða ökumanns og farþega í framsætinu er álíka há og í jeppa sem gefur yfirsýn yfir þétta umferð. Útsýnið fram fyrir bílinn er nokkuð gott, en þó er rétt að nefna að það eru blindir punktar af tvískiptum A-boganum. Hliðarrúðurnar að framan eru með því stærsta sem undirritaður hefur séð og eru eflaust á pari við það sem gerist í vörubílum, en neðri brún gluggans flúttir nánast við læri ökumannsins. Hliðarspeglarnir eru af stærri gerðinni og sitja nokkuð aftarlega, þannig að þeir trufla ekki útsýnið.
Óvenjulipur miðað við stærð
Aksturslag bílsins er keimlíkt því sem er hjá öðrum nýlegum rafmagnsbílum frá systurfyrirtækjunum Kia og Hyundai. Bíllinn er almennt hljóðlátur, en þó glymur aðeins meira í farangursrýminu en í hefðbundnum fólksbíl. Miðað við sendibíla er bergmálið alls ekki slæmt. Afl vélarinnar dugar vel til þess að taka fram úr án vandræða og er bíllinn nógu viðbragðsgóður til þess að geta skotist inn í göt í umferðinni. PV5 býður samt ekki upp á geigvænlega hröðun úr kyrrstöðu þegar allt er gefið í botn.
Feiknalegt geymslupláss er hér og þar um mælaborðið, eins og djúpur miðjustokkur, hanskahólf í meðalstærð, auka-hanskahólf framan við stýrið og geymsluvasar í hurðum. Frammi í eru rafknúin sæti beggja vegna og eru þau jafnframt með hita. Flestir ættu að geta komið sér vel fyrir í vönduðum sætunum, en ökumenn sem eru yfir 190 sentímetrum þurfa að sætta sig við að ekki er hægt að draga stýrið eins langt út og á bílum eins og Volkswagen, Skoda og Volvo.
Þrátt fyrir að vera stór bíll er PV5 feikna lipur og beygjuradíusinn mun minni en við er að búast. Sá sem þetta ritar áttaði sig oft ekki á stærð bílsins og átti það til að skella afturdekkjunum yfir gangstéttarkanta í kröppum beygjum. Fjöðrunin er mjúk en dempararnir eru ekki nema meðalgóðir. Bíllinn ræður því vel við hraðahindranir, en hárfínar ójöfnur í veginum skila sér í örlitlum skjálfta á háum hraða.
Eins og fylgir öllum nýjum bílum heyrist viðvörunarhljóð þegar ekið er yfir hámarkshraða. Kia hefur blessunarlega útfært þetta hljóð á þann hátt að það er ekki óþolandi, heldur þægilegur ómur sem bendir ökumanninum vinsamlegast á að hann er kominn yfir hámarkshraða. Þeir viðkvæmustu geta auðveldlega drepið á pípinu með því að halda inni einum hnappi í stýrinu. Sé maður á ferðalagi og mikið að horfa á landslagið í kringum sig á bíllinn það til að skamma ökumanninn fyrir að horfa ekki nógu mikið á veginn. Þá er hægt að setja hanska eða trefil yfir myndavélina framan við stýrið og þá hættir bíllinn að kvarta.
Fyrir hvern er PV5?
Þessi bíll ætti að koma til greina hjá öllum þeim sem vilja mikið pláss fyrir farþega og farangur og eru til í að skoða eitthvað annað en jeppa. Leigubílstjórar, foreldrar með þrjú ung börn eða þeir sem þurfa að breyta bílum fyrir hjólastólaaðgengi eru í huga undirritaðs líklegir kaupendur. PV5 kemur hins vegar ekki í staðinn fyrir jeppa að því leyti að það er lágt undir hann og býðst PV5 aðeins með framhjóladrifi. Akstursdrægnin er góð og við venjulega notkun á Íslandi er leikandi hægt að ná meira en 350 kílómetrum á einni hleðslu, á meðan framleiðandinn gefur upp allt að 412 kílómetra drægni.
Sá bíll á markaðnum sem helst er hægt að líkja við Kia PV5 er Volkswagen ID.Buzz en aðrir rafknúnir fólksbílar byggðir á sendibílum eru alls ekki á sama skala þegar kemur að nytsemi og smekklegri hönnun. Verðmunurinn á þessum tveimur bílum er hins vegar merkilega mikill, en ódýrasti ID.Buzz strumpastrætóinn frá Volkswagen er á 9.490.000 krónur á meðan Kia PV5 er á 8.090.777 krónur (bæði verð miðast við 500.000 styrk frá Orkusjóði).
