Söngleikurinn um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk hefur glatt hjörtu landsmanna um áraraðir
Söngleikurinn um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk hefur glatt hjörtu landsmanna um áraraðir
Menning 6. október 2026

Píla pína

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Leikfélag Hveragerðis, sem hefur glatt gesti og gangandi í rétt tæp áttatíu ár núna, undirbýr af kappi uppsetningu á ævintýrasöngleiknum um músina sem allir þekkja, hana Pílu pínu.

Leikfélagið var stofnað á vetrarmánuðunum 1947, örlítið yngra en Hveragerðisbær sem fagnar stórafmæli sínu með fjölbreyttri afmælisdagskrá nú allt árið. Þótti vel við hæfi að setja söngleikinn upp af því tilefni, heiðra verk höfundarins sem bjó um árabil í Hveragerði, en Píla pína er þekkt og ástsælt íslenskt barnaleikrit og ævintýrasaga eftir skáldið Kristján frá Djúpalæk. Hann er einnig höfundur ljóðanna, sem eru flutt undir lögum Heiðdísar Norðfjörð og Ragnhildar Gísladóttur.

Aðalpersónan er litla, hugrakka og lífsglaða músin Píla pína sem býr í músabyggðinni í Lyngbrekku og lendir í ýmsum ævintýrum. Verkið kom upphaflega út sem bók og hljómplata árið 1981 og hefur tónlistin úr verkinu, svo sem lögin „Strengir“ og „Saknaðarljóð Gínu mömmu“ fylgt mörgum kynslóðum Íslendinga. Sagan hefur nokkrum sinnum verið sett á svið sem ævintýrasöngleikur hjá atvinnu- og áhugaleikfélögum um allt land en nú tekur leikstjórinn Gunnar Gunnsteinsson við taumunum hjá leikfélagi Hveragerðis og er næsta víst að sýningin eigi eftir að gleðja marga.

Öll tónlist hefur verið sett í nýjan búning og ljá nýjar útsetningar verkinu ferskan blæ. Leikritið um Pílu pínu skipar stóran sess í hjörtum margra Íslendinga, en saga hennar og ævintýri hafa glatt margar kynslóðir barna. Áætlað er að frumsýna í byrjun október og miða má nálgast á tix.is innan skamms. 

Skylt efni: Hveragerði | Áhugaleikhús

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Líf og starf 20. október 2026

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal

Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal...