Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Frá Sviðaveislunni 2022. F.v.: Ester Sigfúsdóttir, Matthías Lýðsson, Steinunn Þorsteinsdóttir, Hafdís Sturlaugsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir, Sverrir Guðbrandsson og Reynir Björnsson.
Frá Sviðaveislunni 2022. F.v.: Ester Sigfúsdóttir, Matthías Lýðsson, Steinunn Þorsteinsdóttir, Hafdís Sturlaugsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir, Sverrir Guðbrandsson og Reynir Björnsson.
Mynd / Aðsendar
Menning 29. október 2023

Öflug viðburðadagskrá í vetur

Höfundur: Ester Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri.

Nú er veturinn farinn að láta á sér kræla og víða á landsbyggðinni eru söfn aðeins opin ferðafólki og gestum yfir sumartímann.

Sauðfjársetur á Ströndum hafði fastan opnunartíma í fjóra mánuði í sumar og stefnir að því að lengja hann um mánuð á næsta ári: Þá á að vera opið frá miðjum maí fram í miðjan október.

En nú er vetrarstarfið fram undan. Þá er innra starfið í gangi, unnið að rannsóknum, nýjar sýningar undirbúnar, hugað að skráningu og frágangi í munageymslunni. Það á líka að skipta um eina útihurð og gera umbætur í eldhúsinu fyrir næsta sumar. Það eru líka fjölmargir viðburðir á dagskránni yfir veturinn þar sem heimafólk er helsti markhópurinn. Þrátt fyrir að vera eitt minnsta safn landsins, hvort sem litið er til veltu eða starfsmannahalds, hefur Sauðfjársetrið svo sannarlega náð því markmiði sínu að vera mikilvæg menningarmiðstöð í héraðinu, jafnframt því að vera viðurkennt safn og ferðaþjónustuaðili.

Í þessari viku er leiksýning í Sævangi, Kómedíuleikhúsið er að koma í heimsókn með leikritið um Nansen. Og á laugardaginn verður árleg sviðaveisla Sauðfjársetursins. Þar koma um 100 gestir og eiga saman góða kvöldstund við söng og skemmtun. Aðalatriði kvöldsins er þó maturinn, þarna eru borðuð svið, köld og heit, ný, söltuð og reykt, auk þess sem gestir gæða sér á heitum sviðalöppum og sviðasultu og fá svo blóðgraut og fleiri gómsæta eftirrétti.

Árlegir jólatónleikar eru komnir á dagskrá, en síðustu ár hafa Dúllurnar, sem er tveggja söngkvenna hljómsveit á Ströndum, haldið tónleika með Sauðfjársetrinu og þá hefur öll innkoman jafnan verið gefin í gott málefni, t.d. hafa Kraftur og Píetasamtökin notið góðs af því. Svo verða bókakynningar, sögustundir og spilavist á dagskránni af og til fram að jólum og líka spilað þriggja vikna langt jólaheimabingó á vefnum. Síðustu þrjú ár hefur Sauðfjársetrið verið með í jólabókaflóðinu og gefið út nýja bók árlega, en hvílir sig á því fjöri þessi jólin.

Gestafjöldi á Sauðfjársetrinu var meiri í sumar en áður hefur verið, en ekki er búið að taka endanlegar tölur saman. Þegar best lætur hafa um sex þúsund manns komið í heimsókn á ári, en gestir eru fleiri núna. Mest munar um mætingu á stórhátíðir ársins, Náttúrubarnahátíðina í júlí og Íslandsmótið í hrútadómum í ágúst.

Sauðfjársetrið vill þakka öllum gestum sínum kærlega fyrir komuna og við hlökkum til að hitta ykkur aftur. Ef þið viljið fylgjast með mælum við með að þið merkið við Sauðfjársetur á Ströndum á Facebook.

Hrútadómar 2023 – Sigurvegarar í hrútadómum 2023, frá vinstri: Gunnar Steingrímsson, Stóraholti í Fljótum, Jón Stefánsson, Broddanesi á Ströndum
og Elvar Stefánsson, Bolungarvík.

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...