Áhugaleikhús landsins – áfram gakk!
Vissir þú að áhugaleikhús bjóða upp á mikilvægan vettvang þar sem fólk á öllum aldri getur ræktað hæfileika sína, eflt sjálfstraustið og fundið samfélag – enda skapar þessi ástríðufulla listsköpun nefnilega dýrmætar minningar fyrir bæði þátttakendur jafnt sem áhorfendur.
Á dögunum kom út ársrit BÍL, Bandalags íslenskra leikfélaga, þar sem farið er yfir verkefni félaganna, áhugaleiksýningu ársins 2026, stjórnarfundi, menningarstefnu ... svo eitthvað sé nefnt. Skemmtilegt er að lesa yfir sameiningarsöng áhugaleikara, sigurlagið í samkeppni sem haldin var á Selfossi fyrir um 40 árum, enn og aftur staðfestingu á því hve galdurinn til að skapa brennur heitt í hjörtum víða um land.
Í ávarpi segir Hörður Sigurðarson, framkvæmdastjóri BÍL, fjárhagslega þrautagöngu samtakanna heilmikla og hafi staðið yfir síðan framlög til áhugaleiklistar voru skorin niður um helming í kjölfar hrunsins.
Sú aðgerð var þungt högg sem hafði víðtæk áhrif á leikfélög á landinu og helsta birtingarmynd þess sennilega sú bitra staðreynd að 62 leikfélögum sem störfuðu árið 2010 hafði fækkað niður í 40 árið 2025. Baráttan til að snúa við hinum gríðarlega niðurskurði á allnokkuð í land og því gott að árétta og minna á mikilvægi leiklistarlífs í landinu.
Það er því enn og aftur tilefni til þess að hvetja sem flesta að kynna sér áhugaleikhúsin í nærsveitum, öllum opin og mannbætandi svo ekki sé meira sagt.
Yfirlit leikhúsanna má finna á vefsíðu bandalagsins allt frá Kópavogi til Fljótsdalshéraðs og allt þar í kring. Ættu allir að geta fundið sér þar eitthvað við sitt hæfi, hvort sem er að standa á sviði, sjá um förðun, ljós, hljóð, búninga eða leikmynd ... en ótal verkefni fylgja hverri uppsetningu og gleði og kraftur sem þeim fylgja gefur hjörtum liðsmanna kipp, enda sálin í hverju samfélagi.
Vaninn er að sýningar hefji vinnslu að hausti og í byrjun árs, frumsýning þá í kringum 6 vikum síðar. Því eru þær flestar að renna sitt skeið núna en gaman er að segja frá því að leikfélagið Lauga er akkúrat aðeins með seinna móti núna, og verður með þrjár sýningar í lok nóvember. Verið er að setja upp gamanverkið Beint í æð og tekið verður á móti sýningargestum í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík dagana 20., 21. og 25. nóvember nk.
Miðapantanir og nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu leikfélagsins Laugu, eða í síma 848-1505 hjá Sóleyju Jóns. eða 865-7491 hjá Nönnu Aðalheiði.
Þeir sem eru farnir að hlakka til jólanna ættu að hafa bak við eyrað að a.m.k. bæði Leikfélag Kópavogs og Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði verða með sérstakar jólasýningar. Um átta sýningar er að ræða hjá Leikfélagi Kópavogs sem sýnir verkið Jólapakkarnir, einstaka jólaupplifun fyrir börn og fullorðna, fullt af húmor, söng og hasar.
Jólapakkarnir fjallar um hóp af jólapökkum sem vakna til lífsins seint á aðfangadagskvöld og uppgötva sér til undrunar að það er enn ekki búið að opna þá. Ringulreið verður þegar upp kemst að einn pakkinn sker sig úr og hverfur svo skyndilega. Í kjölfarið brýst út tortryggni og ásakanir á báða bóga milli pakkanna og ástandið versnar enn frekar þegar grunur vaknar um að skrímsli leynist á meðal þeirra. Þeir þurfa þó að standa saman og leysa málin áður en jólamorgunninn gengur í garð.
Frekari upplýsingar og miða má finna á vefsíðu tix.is – og mælst er til þess að hafa hraðar hendur því nú þegar er uppselt á frumsýninguna sem verður þann 15. nóvember. Sýnt verður helgarnar 21.-22. nóv., 28.-29. nóv. og svo 5.-6. desember eru lokasýningar.
Freyvangsleikhúsið heldur vana sínum þegar kemur að jólasýningunum og frumsýnir nú barnaverkið Marísól og leitin að gleðinni eftir formanninn, Jóhönnu S. Ingólfsdóttur, sem einnig leikstýrir verkinu. Þetta er hugljúf jólasaga, rétt rúmur klukkutími að lengd og hentar því vel fyrir yngstu kynslóðina. Sex sýningar eru í boði frá og með 20. nóvember, miða má panta á tix.is eða í síma 857-5598. Fjallað verður betur um verkið í næsta Bændablaði, en þó verður að hafa hraðar hendur þegar kemur að því að panta miða, en líkt og hjá sýningum Jólapakkanna er nú þegar uppselt á frumsýninguna í Freyvangi.
En áfram gakk – allir í áhugaleikhúsin!
