Liðsmenn Norðurlands eystra voru kampakátir á Flúðum eftir að þeir urðu landsmeistarar kjördæma árið 2026.
Liðsmenn Norðurlands eystra voru kampakátir á Flúðum eftir að þeir urðu landsmeistarar kjördæma árið 2026.
Mynd / BSÍ
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Höfundur: Björn Þorláksson

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra haldi fyrir tveimur sterkum landsbyggðasveitum um helgina þegar kjördæmamótið í sveitakeppni í bridds fór fram í félagsheimilinu á Flúðum.

Hátt í 200 keppnisbriddsspilarar tókust á og þegar upp var staðið hafði sveit Norðurlands eystra unnið öruggan sigur með 474 stig. Sveit Vestfjarða náði silfrinu með 423 stig. Reykjavík varð að láta sér duga þriðja sætið og lið Reykjaness (sem margir töldu sigurstranglegt) endaði í fjórða sæti. Ísak Örn Sigurðsson-Gunnlaugur Karlsson unnu „butlerinn“ í mótinu. með 1.56 í 108 spilum.

Eitt rosalegasta spil mótsins, spil 10, kom fyrir í lokaumferðinni. Austur gefur, NS á hættu. (Sjá stöðumynd).

Sigurliðið græddi 17 impa á tveimur borðum af fjórum í þessu spili og munar um eyðurnar tvær fyrir AV. 20 spilarar skoruðu 600-660 í grandsamningi. Fmm pör í AV spiluðu doblaða hjartasamninga og uppskáru 790- 1070. Hér skipti sköpum að geta opnað á fjöldjöfli í austur eða stelast til að opna á einu hjarta.

Áhugavert er að þar sem norður var sagnhafi í þremur gröndum án þess að AV létu í sér heyra og lítið hjarta kom út á ás vesturs, þá fann enginn framhaldið sem hefði banað samningnum á svipstundu. Lyfta spaðagosa. En þegar hjartagosinn birtist í ásinn er gisk hvort norður hóf leik með KG eða DG í hjarta. Spennandi spil, bridds.

Umsjón: Björn Þorláksson,

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.