Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Brokkólíspírur.
Brokkólíspírur.
Mynd / Úr einkasafni
Líf&Starf 7. desember 2017

Fæðið reyndist lykillinn að heilsunni

Höfundur: smh

Katrín H. Árnadóttir umhverfisfræðingur framleiðir spírur, smájurtir (e. microgreens) og grös úr  baunum, fræjum og ertum af ástríðu í Hafnarfirði og markaðssetur vörur sínar undir merkinu Ecospíra. Hún fékk hvatningarverðlaun garðyrkjunnar 2017 á sumardaginn fyrsta síðastliðinn. Neysla á spírum hefur farið mjög vaxandi í kjölfar stofnunar Ecospíru en spírurnar eru fáanlegar í flestum matvöruverslunum og eru dag­lega á borðum margra mötuneyta  og veitingahúsa.  

Talið er að tilteknar spírur geymi ofurhollustu og að við neyslu myndist ákveðið efni sem rannsóknir benda til að geti veitt forvörn gegn ýmsum sjúkdómum og hafi jafnvel lækningamátt.

Katrín H. Árnadóttir umhverfisfræðingur.

„Ég stofnaði Ecospíru árið 2012 eftir að ég reyndi af eigin raun lifandi spírað og grænt fæði sem lækningafæði,“ segir Katrín um upphaf Ecospíru. „Að upplifa endurnýjunarmöguleika fæðisins á líkamlega og andlega líðan var nánast eins og að endurfæðast. Reynslan vakti hjá mér áhuga á að kynna mér nánar eiginleika lifandi og spíraðs fæðis sem og söguna á bak við þetta fæði.

Niðurstaða þeirrar athugunar sannfærði mig um mikilvægi þess að koma þessari vöru á almennan markað.“ 

Sérvirk heilandi jurtaefni

Katrín hefur skoðað vel rannsóknir á þeim efnum sem myndast við neyslu á spírunum. „Í þessu fæði eru mikilvæg sérvirk jurtaefni sem eru frumuverjandi ásamt ríkulegum andoxunarefnum sem hlutleysa sindurefni en sindurefni geta verið skaðleg fyrir frumur líkamans og flýtt fyrir hrörnun. Þá er fæðið mjög auðmelt og ensímríkt sem auðveldar upptöku næringarefnanna út í blóðið. Spírur eru jafnframt auðugar af  trefjum sem næra góðu þarmaflóruna.  Neysla á spírum er í raun frábær leið til að neyta meira af jurtaefnum sem líkaminn okkar þarfnast því við þurfum í raun einungis að neyta lítils magns af spírum til að fá mikið af jurtaefnum í líkamann,“ útskýrir Katrín.

„Ég framleiði nú um tíu til tólf tegundir af spírum og einnig ýmsar smájurtir og kress (e. microgreens)  sem og grös, eins og sólblómagrös og baunagrös. Ég hef mjög góða aðstöðu til að framleiða hvaða tegund sem er og í miklu magni; er með afkastamiklar vélar og gott rými. Ég hef því getað framleitt það sem eftirspurn er eftir hverju sinni. Vinsælustu spírurnar eru radísuspírur. Ég framleiði fjórar mismunandi tegundir af þeim, grænar, hárauðar, bleikar og rauðkálsrauðar. Þær eru ekki bara bragðgóðar og fallegar heldur einnig mjög afeitrandi fyrir líkamann, innihalda m.a. ríkulegt magn C- og A-vítamína og kalsíum auk annara næringarefna.  Enn fremur bendir nýleg rannsókn til að að þær hafi svipuð frumuverjandi áhrif og brokkólíspírur sem fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að geti m.a. hindrað æxlismyndun í líkamanum.“

Bragðsterkar spírur vinsælar á veitingahúsum

Þó svo að Katrín hafi byrjað að framleiða spírur aðallega sem heilsufæði hefur notkun á þeim á veitingahúsum farið vaxandi á þeim fimm árum sem Ecospíra hefur verið starfrækt. „Hjá veitingamönnum hafa bragðsterkari spírurnar verið vinsælastar; blaðlauks-, hvítlauks- og radísuspírur.  

Spírurnar eru borðaðar ferskar með öllum mat – eins og salat. Þær eru settar ofan á brauð, í hamborgara, í vefjur,  í samlokur og í græna drykki. Það er í raun hægt að borða þær með öllu. Bragðeiginleikar spíra eru mjög mismunandi eins og grænmetið sem kemur af þessum fræjum. Blaðlaukur, hvítlaukur, brokkólí og radísur; allt er þetta grænmeti með mismunandi bragði sem við sækjumst eftir í matnum okkar – og það sama á við um spírurnar nema þær eru safaríkari og bragðið ferskara.“ 

Lífrænt vottuð framleiðsla

Katrín sóttist strax eftir lífrænni vottun fyrir starfsemi sína. „Ef fræin eru ekki vottuð lífræn þá getur maður ekki verið viss um að þau séu laus við skordýraeitur og/eða önnur svokölluð varnarefni. Spírur eru frá sex til fimmtán daga gamlar þegar þær eru tilbúnar til neyslu. Þess vegna er  mikilvægt að fræin hafi ekki verið húðuð eða sprautuð fyrir framleiðslu þar sem þá væri möguleiki á að efnin séu enn til staðar í vörunni. Það er ekki hægt að markaðssetja matvöru sem heilsuvöru sem er mögulega blönduð varnarefnum.

 Brokkólíspírurnar mest rannsakaðar

Að sögn Katrínar eru brokkólíspírurnar mest rannsakaðar af öllum spírum. „Það er einkum vegna þess að í brokkólí greindust efni sem reyndust hafa frumuverjandi áhrif, einkum gagnvart krabbameinsfrumum.  Þessi verndandi áhrif eru talin stafa af glúkórafaníninu (brennisteinsglýkósíð) sem plantan inniheldur. Til þess að líkaminn geti nýtt sér þetta efni verður að vera til staðar plöntuensímið mýrósínasi sem umbreytir efninu í lífvirka efnið súlfórafan. Rannsóknir hafa sýnt að súlfórafan getur meðal annars hindrað æxlismyndun, örvað afeitrun krabbameinsfruma úr líkamanum, hindrað útbreiðslu krabbameins, hægt á krabbameinsvexti auk fjölmargra annarra heilsuverndandi áhrifa. Til þess að plöntuensímið mýrósínasi sé nýtilegt og til staðar við niðurbrot glúkórafaníns má ekki hita grænmetið við hærra hitastig en 47 gráður á Celsíus. Því er mikilvægt að borða brokkólíið ferskt. Rannsóknir á brokkólíspírum leiddu í ljós að þær innihalda upp í 100 sinnum meira af glúkórafaníni en fullvaxta brokkólíplanta. 

Þar sem spíranna er neytt ferskra nýtist ensímið mýrósínasi við niðurbrot glúkórafaníns í súlfórafani í meltingarveginum sem fer síðan út í blóðið og hefur þessi frumuverjandi áhrif sem er í raun stórkostlegt. Það ættu í raun allir að borða sem svarar einni skeið af brokkólíspírum á dag, á sama hátt og fólk tekur inn lýsi,“ segir Katrín.

„Starfsemin hefur þróast á þann veg að framleiðslan er ekki eingöngu spírur heldur einnig smájurtir og  grös. Ég get í raun framleitt hvað sem er á þessu sviði.“

Urban farming – matvælarækt í þéttbýli

Katrín segist þakklát fyrir hvatningarverðlaunin og hún muni halda sínu striki og byggja upp. „Já, það var sérlega skemmtilegt að fá hvatningarverðlaun garðyrkjunnar, ég er mjög þakklát og stolt af því. Starfsemin hefur þróast á þann veg að framleiðslan er ekki eingöngu spírur heldur einnig smájurtir og  grös. Ég get í raun framleitt hvað sem er á þessu sviði. Hef góð tæki, gott húsnæði hér í Hafnarfirði og gott og reynt starfsfólk. Ég er í raun með það sem vinsælt er núna að kalla Urban farming, matvælarækt í þéttbýli. Héðan er stutt á markað og í flestum tilvikum eru spírurnar komnar í verslanir og/ eða á borð neytandans daginn eftir uppskeru.  Þróunin framundan hjá mér er að halda uppbyggingunni áfram, framleiða meira og fjölbreyttari jurtir og grös ásamt því að auka þjónustu við einstaklinga varðandi heilsufæði og ráðgjöf í þeim efnum. 

Margir hafa leitað til mín um heilsuráðgjöf vegna minnar reynslu í þeim efnum og hef ég fram að þessu haft lítinn tíma til að sinna því. Hins vegar hef ég rýmri tíma núna og langar að miðla af reynslu minni til þeirra sem þess þurfa. Ég er fullkomlega sannfærð um að heilnæmt fæði ásamt hæfilegri hreyfingu sé lykillinn að heilbrigði. Núverandi álag á heilbrigðiskerfið er ekki náttúrulögmál heldur væri hægt að minnka álagið mikið með heilsusamlegri lífsstíl. 

Með aukinni vitund fólks á mikilvægi heilnæms fæðis kemur Ecospíra sterkt inn,“ segir Katrín.

 

10 myndir:

Skylt efni: Ecospíra | spírur | heilsufæði

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!
Líf&Starf 19. apríl 2022

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!

Nú hefur leikfélag Hólmavíkur sett upp farsann Bót og betrun eftir Michael Coone...

Ef væri ég gullfiskur!
Líf&Starf 28. mars 2022

Ef væri ég gullfiskur!

Spéfarsinn „Ef væri ég gullfiskur“ eftir Árna Ibsen, í flutningi leikfélags Umf....

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði
Líf&Starf 16. mars 2022

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði

Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði frumsýndi leikritið „Ekki um ykkur” eftir Gun...

Verndarar láðs & lagar
Líf&Starf 14. mars 2022

Verndarar láðs & lagar

Þegar verndarar láðs og lagar ber á góma er gaman að rekast á þá þar sem maður á...

Flestir gullsmiðir voru bændur
Líf&Starf 28. febrúar 2022

Flestir gullsmiðir voru bændur

Árið 2011 hlaut Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður þakkarviðurkenningu FKA – Fé...

Hann á það skilið? Á hann það skilið?
Líf&Starf 2. febrúar 2022

Hann á það skilið? Á hann það skilið?

Í kaflanum „Misseristalið og tildrög þess“ eftir Þorkel Þorkelsson, í 1. tbl. Sk...