Örlagavaldur kríu og lunda
Sandsíli við Ísland er í lægð. Stofninn hefur minnkað og nýliðun er lítil. Ástæður eru ekki alveg kunnar en þær tengjast hækkandi sjávarhita. Skortur á sandsíli er helst bagalegur fyrir fugla. Fá merki eru um að stofninn sé að rétta úr kútnum en þó er ekki öll von úti.