Æðarrækt og fuglatilskipun Evrópusambandsins
Æðarrækt hefur lengi þótt ein göfugasta búgrein sem stunduð er á Íslandi. Saman fer sjálfbær nýting á æðardún sem ella færi forgörðum og bændur láta fuglunum í té vernd fyrir vargi og aðstoð við hreiðurgerð. Þannig byggir æðardúntekja á reglubundinni umgengni við hreiður villtra fugla á varptíma og í mörgum tilvikum samfelldri viðveru mannsins til ...


